Beint í efni
Alviti
154. þing · Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Þingmálaskrá ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fyrir 154. þing. Þinginu er lokið: hér sést hvað af skránni Alþingi samþykkti, hvað dagaði uppi og hvað kom aldrei fram.

200

frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 154. þings

Af málum sem komu fram voru 27 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 80 seinna en áætlað var.

Hvað komst í gegn? Samanburður milli þinga

Hlutfall frumvarpa og tillagna á þingmálaskrá hvers þings sem Alþingi samþykkti fyrir þinglok. Skrárnar eru misstórar og lengri skrá getur gefið lægra hlutfall, svo fjöldinn fylgir með.

Á sama tíma: staðan á 49. degi hvers þings, talið frá þingsetningu.
ÞingDagsetningLögð framSamþykkt
158. þing27. okt. 202633 af 1501
157. þing28. okt. 202545 af 1477
154. þing31. okt. 202326 af 2000
153. þing1. nóv. 202223 af 1490

155. þingi lauk snemma vegna alþingiskosninga í nóvember 2024 og 156. þing var aðeins vorþing, svo þau eru ekki borin saman hér. Á 154. þingi tók ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við í apríl 2024; skráin var birt af ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.

Forsætisráðherra

5 af 5 komin fram

Dómsmálaráðherra

9 af 20 komin fram

Félags- og vinnumarkaðsráðherra

4 af 14 komin fram

  • Frumvarp

    Atvinnuleysistryggingar

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um atvinnuleysistryggingar sem meðal annars er ætlað að einfalda gildandi atvinnuleysistryggingakerfi sem og að bregðast við þeim breytingum sem orðið hafa á vinnumarkaði, svo sem hvað varðar ólík ráðningarform.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um atvinnuleysistryggingar.

  • Áætlað: október
    27. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu felast breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga sem meðal annars er ætlað að skýra málsmeðferð á grundvelli laganna og gera hana skilvirkari.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga, nr. 101/2010 (skilvirkari málsmeðferð og breytingar á skilyrðum).

  • Frumvarp

    Starfsendurhæfingu

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um starfsendurhæfingu. Í lögunum er kveðið á um heildstæðan feril starfsendurhæfingar og mat á virkni einstaklinga til þátttöku á vinnumarkaði eftir að starfsendurhæfing telst fullreynd. Þá er gert ráð fyrir breytingum á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð þar sem áhersla er lögð á sameiningu bótaflokka og einfaldari reglur um útreikninga á greiðslum. Frumvarpið er liður í heildarendurskoðun örorku- og endurhæfingalífeyriskerfisins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um starfsendurhæfingu.

  • Frumvarp

    Breyting á lög um um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 (störf ríkissáttasemjara)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu verða lagðar til breytingar á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur þar sem meðal annars verður litið til tillagna starfshóps sem fengið hefur það hlutverk að leggja fra m tillögur til að skýra formlegt gildi miðlunartillagna ríkissáttasemjara, forsendur framlagningar og heimildir ríkissáttasemjara til að knýja á um atkvæðagreiðslu um slíkar tillögur eftir að þær hafa verið lagðar fram. Jafnframt er það hlutverk starfshóps ins að kanna hvort, og þá hvernig, rétt sé að styrkja enn frekar hlutverk og heimildir ríkissáttasemjara hér á landi, samanber markmið sem fram koma í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lög um um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938 (störf ríkissáttasemjara).

  • Áætlað: janúar
    772. mál· Samþykkt· lagt fram 6. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu felast breytingar á lögum nr. 38/2018 þar sem tekið er mið af tillögum úr skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laganna frá árinu 2022. Lagt er til að bæta við lögin reglugerðarheimildum svo ráðherra sé heimilt að kveða með nánari hætti á um ýmis atriði laganna, meðal annars hvað varðar fæðisfé fyrir sta rfsfólk sem matast með notendum, og hvernig útfæra skuli aðstoðarmannakort fyrir fatlað fólk sem veiti aðstoðarmanni viðkomandi ókeypis aðgang hjá hinu opinbera, svo sem á söfn, í sund o.s.f rv.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatl að fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (reglugerðarheimildir).

  • Frumvarp

    Starfskjaralaga

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar· Endurflutt
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um starfskjör launafólks í stað laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980. Megintilgangur frumvarpsins er að skýra þær grundvallarreglur sem gilda á vinnumarkaði í tengslum v ið laun og önnur starfs kjör launafólks, meðal annars í því skyni að sporna gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði.

    Heiti á skránni: Frumvarp til starfskjaralaga.

  • Frumvarp

    Greiðslur vegna umönnunar langveikra eða fatlaðra barna

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar· Endurflutt
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu felast breytingar á tilhögun stuðnings við foreldra og forráðamenn fatlaðra og langveikra barna í samræmi við niðurstöður starfshóps sem skipaður var til þess að meta reynslu af framkvæmd laganna og þörf á breytingum. Einföldun kerfis með sameiningu f oreldragreiðslna og umönnunargreiðslna auk þess sem greiðslur til foreldra taki mið af umönnunarþörf og kostnaði sem er tilkominn vegna fötlunar og veikinda barnsins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um greiðslur vegna umönnunar langveikra eða fatlaðra barna.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, og lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (sjálfstætt starfandi einstaklingar o.fl.)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Gert er ráð fyrir tilteknum breytingum á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um útlendinga í samræmi við ákvæði til bráðabirgða VII. í lögum um atvinn uréttindi útlendinga þa r sem kveðið er á um að ráðherra skuli skipa starfshóp til að gera tillögur að lagabreytingum sem heimili útgáfu dvalar- og atvinnuleyfa til sjálfstætt starfandi einstaklinga og að tímabundin atvinnuleyfi skuli skilyrt við tilteknar atvinnugreinar í stað s tarfs hjá tilteknum atvinnurekendum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, og lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (sjálfstætt starfandi einstaklingar o.fl.).

  • Frumvarp

    Öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Ný heildarlög um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn. Frumvarpinu er meðal annars ætlað að setja nánari lagaákvæði um r éttarstöðu einstaklinga sem hefur verið gert að sæta öryggisráðstöfunum á grundvelli VII. kafla almennra hegningarlaga og kveða með nánari hætti á um framkvæmd ráðstafananna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn.

  • Frumvarp

    Framhaldsfræðslu

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um framhalds fræðslu eftir heildarendurskoðun á gildandi lögum, meðal annars í ljósi reynslunnar við framkvæmd gildandi laga sem og með hliðsjón af yfirstandandi heildarendurskoðun framhaldsfræðslukerfisins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um framhaldsfræðslu.

  • Áætlað: mars
    922. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að bæta úr ýmsum atriðum laganna í ljósi fenginnar reynslu af framkvæmd þeirra, svo sem að skýra ákvæði um persónulega tal smenn.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindagæsl u fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011 (ýmsar breytingar).

  • Frumvarp

    Félagslegan viðbótarst uðning fyrir örorkulífeyrisþega

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu verður kveðið á um félagslegan viðbótarstuðning við örorkulífeyrisþega sem búa hér á landi en hafa ekki áunnið sér full réttindi í almannatryggingum og hafa litlar sem engar aðrar tekjur sér til framfærslu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um félagslegan viðbótarst uðning fyrir örorkulífeyrisþega.

  • Samþykkt
    Áætlað: nóvember
    584. mál· Samþykkt· lagt fram 15. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Ályktunin felur í sér stefnu og aðgerðaáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks til ársins 2030. Verkefni sem áður voru skilgreind í framkvæmdaáætl un í málefnum fatlaðs fólks verða felld inn í landsáætlun, auk aðgerða sem unnar hafa verið af vinnuhópum undir verkefnastjórn um gerð landsáætlunar og innleiðingu samningsins.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks.

  • Þingsályktunartillaga

    Stefna í málefnum innflytjenda og flót tafólks

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs kemur fram að móta skuli skýra og heildstæða stefnu í málefnum útlendinga sem miðar að því að fólk sem sest hér að hafi tækifæri til aðlögunar og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Auk þess samþykkti Alþingi árið 2022 þingsályktun, nr. 29/152, um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022 -2025 sem kveður á um að mótuð skuli skýr og heildstæð langtímastefna í málaflokknum. Í ljósi þess er gert ráð fyrir að lögð verði fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda og flót tafólks.

Fjármála- og efnahagsráðherra

15 af 31 komin fram

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

7 af 9 komin fram

Heilbrigðisráðherra

12 af 13 komin fram

Innviðaráðherra

16 af 24 komin fram

Matvælaráðherra

5 af 13 komin fram

Menningar- og viðskiptaráðherra

12 af 24 komin fram

  • Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    32. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsin s og ráðsins (ESB) 2018/1808 frá 14. nóvember 2018 um breytingu á tilskipun 2010/13/ESB um samræ mingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hljóð- og myndmiðlunarþjónusta).

  • Áætlað: september· Endurflutt
    486. mál· Samþykkt· lagt fram 13. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið byggist að meginhluta á kvikmyndastefnu til ársins 2030 sem var kynnt 6. október 2020 á vef Stjórnarráðsins. Þar er kallað eftir breyttu fyrirkomulagi í sjóðakerfi kvikmyndagerðar til að koma til móts við nýja tíma sem einkennast af hröðu þróunar- og fjármögnunarferli verkefna. Með frumvarpinu er einnig skerpt á fáum atriðum er varða Kvikmyndasafn Íslands og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Meginefni frumvarpsins er að kveða skýrt á um heimild Kvikmyndasjóðs til að veita skilyrta styrki til sjónvarpsþáttagerða.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (skilyrtir styrkir til sjónvarpsþáttagerða).

  • Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    184. mál· Samþykkt· lagt fram 14. sep. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar í samræmi við ábendingar og athugasemdir haghafa og innleiðing á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/56/ESB um breytingu á tilskipun 2006/43/EB um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikningsskila.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur og lögum um ársreikninga (upplýsingar um hluthafa, siðareglur endurskoðenda, innleiðing, o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995 (innleiðing)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er mælt fyrir um innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á tilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma (SRD II). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög sem varða að mestu félög þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á skipule gum markaði og lúta að deili á hluthöfum slíkra félaga, upplýsingagjöf o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995 (innleiðing).

  • Áætlað: nóvember· EES-innleiðing
    627. mál· Samþykkt· lagt fram 30. jan. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er mælt fyrir um innleiðingu á ákvæðum tilskipana og re glugerða (ESB) um samtengingakerfi skráa EES-ríkjanna. Annars vegar er um að ræða upplýsingar í fyrirtækjaskrám EES-ríkjanna (BRIS – Business Registers Interconnection System) og hins vegar upplýsingar í skrám um raunverulega eigendur í EES-ríkjunum (BORIS – Beneficial Ownership Registers Interconnection System).

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003 (innleiðing).

  • Áætlað: nóvember
    938. mál· Samþykkt· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Lagt er til að sett verði gjaldskrárheimild fyrir vissa þjónustu um skjalavörslu og skjalastjórn sveitarfélaga sem er hluti af verkefnum Þjóðskjalasafns gagnvart sveitarfélögum s.s. ráðgjöf um skjalahald þeirra og eftirlit með því og miðlun gagna sveitarfélaga. Einnig er lagt til að veitt verði heimild til að taka gjald vegna kostnaðar sem fellur til vegna vinnu sérfræðinga Þjóðskjalasafns við yfirfærslu safnkosts og verkefna héraðsskjalasafns sem ákveðið hefur verið að leggja niður eða hefur fallið í vanhirðu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (menningarframlag fjölmiðlaveitna)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að kveða á um fyrirkomulag um skyldubundið menningarframlag fjölmiðlaveitna sem miðla efni til neytenda hér á landi með því að gera kröfu um að tiltekið hlutfall af áskriftartekjum vegna slíkrar miðlunar renni til menningarverkefna sem stuðli að gerð sjónvarpsefnis á íslensku.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (menningarframlag fjölmiðlaveitna).

  • Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: febrúar· EES-innleiðing
    1077. mál· Dagaði uppi· lagt fram 23. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á ákvæðum laga um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda, nr. 141/2001, laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005, laga um Neytendastofu, nr. 62/2005, og laga um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, nr. 20/2020. Markmið endurskoðunarinnar er að tryggja góða neytendavernd, tryggja bætt samræmi við EES-rétt, auka skýrleika og létta reglubyrði. Frumvarpið felur einnig í sér innleiðingu á hluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd (tilskipun um nútímavæðingu).

    Heiti á skránni: Frumvarp til markaðssetningarlaga.

  • Frumvarp

    Bókhald

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér tillögu um ný heildarlög um bókhald, sem byggjast á heildarendurskoðun á bókhaldslögum með áherslu á rafrænt bókhald og einföldun í þágu minni félaga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um bókhald.

  • Áætlað: febrúar
    690. mál· Samþykkt· lagt fram 9. feb. 2024
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    85/2007 (heimagisting). Með frumvarpinu er stefnt að því að færa sveitarfélögum vald til að ákveða nánari útfærslu heimildar til heimagistingar innan marka 90 daga heimildarinnar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr.

  • Áætlað: febrúar
    937. mál· Samþykkt· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér þrepaskipta fjölgun mánaðarlegra starfslauna sem koma til úthlutunar, fjölgun sjóða sem listamannalaun eru veitt úr, breytingar á fyrirkomulagi heiðu rslauna listamanna og almenna endurskoðun laganna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um listamannalaun, nr. 57/2009 (endurskoðun).

  • Frumvarp

    Rafrænar skuldaviðurkenningar

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar· Endurflutt
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um rafrænar skuldaviðurkenningar, nýtt lánaform sem ætlað er að veita sambærilegt réttarfarslegt hagræði og skuldabréf, en samræmast betur rafrænni lánaumsýslu og þinglýsingu auk þess að stuðla að skilvirkni og einföldun viðskipta.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um rafrænar skuldaviðurkenningar.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, o.fl. (innleiðing)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, með síðari breytingum vegna innleiðingar á tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/770 og 2019/770 um tiltekna þætti varðandi samninga um afhendingu á stafrænu efni og stafræn ni þjónustu og um samninga um sölu á vörum. Þá felur frumvarpið auk þess í sér innleiðingu á hluta til skipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsi ns 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Samband sins um neytendavernd.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um neytendakaup, nr. 48/2003, o.fl. (innleiðing).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1151 frá 20. júní 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar notkun stafrænna tækja og ferla í félagarétti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing).

  • Frumvarp

    Breyting á höfundalögum, nr. 73/1972 (höfundaréttur á stafræna innri markaðnum)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/790 frá 17. apríl 2019 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum og um breytingu á tilskipunum 96/9/EB og 2001/29/EB.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (höfundaréttur á stafræna innri markaðnum).

  • Frumvarp

    Breyting á höfundalögum, nr. 73/1972 (reglur um höfundarétt og tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/789 frá 17. apríl 2019 um reglur um nýtingu höfundaréttar og skyldra réttinda sem gilda um tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis og um breytingu á tilskipun ráðsins 93/83/EBE.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (reglur um höfundarétt og tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis).

  • Frumvarp

    Breytin gu á lögum um samvinnufélög, nr. 2 2/1991 (endurskoðun)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er stefnt að heildarendurskoðun laga um samvinnufélög.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytin gu á lögum um samvinnufélög, nr. 2 2/1991 (endurskoðun).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (innleiðing)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er ætlað að innleiða í íslenskan rétt tilskipun (ESB) 2022/2464 um upplýsingagjöf um sjálfbærni (CSRD).

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (innleiðing).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hagræði vegna styrkja til einkarekinna fjölmiðla)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Stefnt er að því að festa í sessi fyrir komulag sem skapi hvata fyrir einstaklinga og lögaðila til að styrkja einkarekna fjölmiðla. Með frumvarpinu er ætlunin að kveða á um skilyrði sem fjölmiðlar þurfa að uppfylla og skilgreina hlutverk e ftirlitsaðila með framkvæmdinni.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (hagræði vegna styrkja til einkarekinna fjölmiðla).

  • Þingsályktunartillaga

    Fjölmiðlastefnu (stefnumótun og aðgerðaáætlun)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillagan miðar að því að viðhalda og efla lýðræðislega umræðu og lýðræðisþátttöku með því að stuðla að bættu miðlalæsi og auka fjölbreytni, gagnsæi og fjölræði í fjölmiðlum. Þá miðar tillaga n að því að búa fjölmiðlum starfsumhverfi sem stuðli að öflugri fjölmiðlun í almannaþágu með virkri þátttöku fjölbreyttra fjölmiðla, auka fjölmiðlalæsi almennings og vernda börn og ungmenni gegn skaðlegu efni í fjölmiðlum.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um fjölmiðlastefnu (stefnumótun og aðgerðaáætlun).

  • Áætlað: október
    511. mál· Samþykkt· lagt fram 29. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Áætlunin inniheldur 18 aðgerðir sem mótaðar eru í samstarfi fimm ráðuneyta en markmið þeirra er að forgangsraða verkefnum stjórnvalda þegar kemu r að verndun og þróun tungumálsins.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktu nar um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2023–2026.

  • Þingsályktunartillaga

    Málstefnu íslensks táknmáls

    Samþykkt
    Áætlað: október
    37. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í þingsályktunartillögu um málstefnu um íslenskt táknmál er staða íslenska táknmálsins skýrð og er hún unnin í samræmi við drög að íslenskri málstefnu. Málstefna um íslenskt táknmál miðar að því að skilgreina markmið og aðgerðir fyrir dulin og sýnileg ferli sem varða bæði viðhorf og hegðun til jafns við stöðu og form íslenska táknmálsins.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls.

  • Þingsályktunartillaga

    Uppbyggingu á söguslóðum

    Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: febrúar
    941. mál· Dagaði uppi· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillögunni er ætlað að styðja við framþróun og eflin gu íslenskra sögustaða sem mikilvægra áfangastaða ferðamanna sem og gildi þeirra fyrir íslenskan menningararf.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um uppbyggingu á söguslóðum.

  • Áætlað: febrúar
    1036. mál· Samþykkt· lagt fram 15. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Áætlunin byggir á Framtíðarsýn og leiðarljósi íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 og verður byggð á starfi sjö vinnuhópa á sviði ferðamála.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um ferðamálastefnu til 2030 og aðgerðaáætlun hennar (ste fnumótun og aðgerðaáætlun).

Mennta- og barnamálaráðherra

7 af 13 komin fram

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

11 af 28 komin fram

  • Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    689. mál· Samþykkt· lagt fram 9. feb. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á VI. kafla A laganna sem fjallar um geymslu koldíoxíðs í jörðu sem eru nauðsynlegar til að samræma orðalag laganna við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2009/31/EB frá 23. apríl 2009 um geymslu koltvísýrings í jörðu og um breytingu á tilskipun ráðsins 85/337/EBE, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2000/60/EB, 2001/80/EB, 2004/35/EB, 2006/12/EB, 2008/1/EB og reglugerð (EB) nr. 1013/2006 og til að tryggja fullnægjandi innleiðingu tilskipunarinnar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs).

  • Frumvarp

    Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi o.fl.)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: september· Endurflutt
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagður grunnur að útfærslu tillagna starfshópa sem fjallað hafa um raforkuöryggi þar sem lagt er til að mælt verði fyrir um s öfnun og miðlun upplýsinga um stöðu á raforkumarkaði og um forgang almennra notenda og smærri fyrirtækja komi til skömmtunar rafo rku.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi o.fl.).

  • Áætlað: september· Endurflutt
    29. mál· Samþykkt· lagt fram 1. des. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    65/2003 (Raforkueftirlitið). Með frumvarpinu er lagt til að útfæra nánar ákvæði raforkulaga og laga um Orkustofnun í ljósi athugasemda Eftir litsstofnunar EFTA og krafna tilskipunar 2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyr ir raforku og um niðurfellingu tilskipunar 2003/54/EB gagnvart sjálfstæðu raforkueftirliti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu lögum um Orkustofnun, nr. 87/2003, og raforkulögum, nr.

  • Áætlað: október
    832. mál· Samþykkt· lagt fram 18. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í tengslum við endurskoðun á stofnanaskipulagi umhverfis -, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem hófst í júní 2022, hefur ráðuneytið unnið að greiningu á sér stöðu Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar (SVS). Horft var til ábendinga í stjórnsýsluúttekt Ríkisendur skoðunar á fjölda, stærð og stærðarhagkvæmni stofnana ríkisins, sem fram koma í skýrslu til Alþingis frá desember 2021. Þar kemur fram að Ríkisendurskoðun t elur ástæðu fyrir stjórnvöld að endurskoða rekstrarform SVS og bendir á að með hliðsjón af hlutverki stofnunarinnar væri eðlilegra að hún heyrði beint undir Háskólann á Akureyri (HA). Samstaða er um samruna SVS og HA og er því í frumvarpi þessu lagt til brottfall á lögum nr. 81/1997, um stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997.

  • Frumvarp

    Loftslagsstofnun

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið er tilkomið í kjölfar greiningar á tækifærum til endurskipulagningar á stofnanakerfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, en stofnanir þess eru margar og fámennar. Frumvarpið er í samræmi við stefnu stjórnvalda um einföldun stofnanakerfisins og er megináhersla lögð á að skapa vettvang fyrir kraftmeira fagstarf og árangur í nýrri stofnun. Markmiðið er að samnýta þekkingu, innviði og gögn og skapa faglega spennandi og áhugaverðan vinnustað. Auk þess að tryggja meiri sveigjanleika til að takast á við verkefnin, auka samþættingu stefnumótunar og áætlanagerðar og rekstrarhagkvæmni og bæta umgjörð mannauðsmála. Einnig að fjölga störfum á landsbyggðinni og störfum óháð staðsetningu með sveigjanlegum starfsstöðvum víða um land, að styðja við starfseiningar sem tryggja umbætur og nýsköpun, auk a stafræna umbreytingu, skilvirkari og aðgengilegri þjón ustu og samfélagsleg an ávinning. Í frumvarpinu er lagt til að Orkustofnun og sá hluti af starfsemi Umhverfisstofnunar er lýtur að loftslags- og umhverfismálum sameinist í einni stofnun. Gert er ráð fyrir að sá hluti af starfsemi Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd muni verða hluti af nýrri Náttúruverndar- og minjastofnun. Auk nýrra laga er lagt til að breytingar verði gerðar á þeim lögum þar sem viðkomandi stofnanir eru tilgreindar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Loftslagsstofnun.

  • Áætlað: október
    831. mál· Samþykkt· lagt fram 18. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið er tilkomið í kjölfar greiningar á tækifærum til endurskipulagningar á s tofnanakerfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, en stofnanir þess eru margar og fámennar. Frumvarpið er í samræmi við stefnu stjórnvalda um einföldun stofnanakerfisins og er megináhersla lögð á að skapa vettvang fyrir kraftmeira fagstarf og árangur í nýrri stofnun. Markmiðið er að samnýta þekkingu, innviði og gögn og skapa faglega spennandi og áhugaverðan vinnustað. Auk þess að tryggja meiri sveigjanleika til að takast á við verkefnin, auka samþættingu stefnumótunar og áætlanagerðar og rekstrarhagkvæmni og bæta umgjörð mannauðsmála. Einnig að fjölga störfum á landsbyggðinni og störfum óháð staðsetningu með sveigjanlegum starfsstöðvum víða um land, að styðja við starfseiningar sem tryggja umbætur og nýsköpun, auka stafræna umbreytingu, skilvirkari og aðgengilegri þjónustu og samfélagslegan ávinning. Í frumvarpinu er lögð til sameining Vatnajökulsþjóðgarðs, Þingvallaþjóðgarðs, Minjastofnunar Íslands og náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar. Auk nýrra laga er lagt til að breytingar verði gerðar á þeim lögum þar sem viðkomandi stofnanir eru tilgreindar.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um Náttúruverndar- og minjastofnun.

  • Áætlað: október
    479. mál· Samþykkt· lagt fram 10. nóv. 2023· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið er tilkomið í kjölfar greiningar á tækifærum til endurskipulagningar á stofnanakerfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, en stofnanir þess eru margar og fámennar. Frumvarpið er í samræmi við stefnu stjórnvalda um einföldun stofnanakerfisins og er megináhersla lögð á að skapa vettvang fyrir kraftmeira fagstarf og árangur í nýrri stofnun. Markmiðið er að samnýta þekkingu, innviði og gögn og skapa faglega spennandi og áhugaverðan vinnustað. Auk þess að tryggja meiri sveigjanleika til að takast á við verkefnin, auka samþættingu stefnumótunar og áætlanagerðar og rekstrarhagkvæmni og bæta umgjörð mannauðsmála. Einnig að fjölga störfum á landsbyggðinni og störfum óháð staðsetningu með sveigjanlegum starfss töðvum víða um land, að styðja við starfseiningar sem tryggja umbætur og nýsköpun, auka stafræna umbreytingu, skilvirkari og aðgengilegri þjónustu og samfélagslegan ávinning. Í sameiningarvinnu nni hefur m.a. verið lagt upp með að til verði ný Náttúruvísind astofnun með sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Veðurstofu Íslands, Íslenskra orkurannsókna (Ísor), Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn. Frekari greiningar þur fti við á stöðu Ísor sökum sérstöðu þeirrar stofnunar, en hún e r B-hluta stofnun og starfar á samkeppnisgrundvelli. Í greiningarvinnunni komu í ljós atriði sem fela í sér tilteknar áskoranir og þurfa frekari greiningar við. Í ljósi þessa var ákveðið að fyrsta skrefið yrði að leggja til sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn þar sem mikil samlegð er með verkefnum þessara stofnana og ríkur vilji til sameiningar. Í frumvarpinu verða lagðar til b reytingar á þeim lögum sem viðkoma umræddum stofnunum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum vegna sameiningar Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.

  • Áætlað: október
    924. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um úrvinnslugjald til að ná þeim markmiðum sem að var stefnt með lögum nr. 103/2021 um að skapa sem fyrst skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis á Íslandi. Stefnt er að því að skýra álagningu úrvinnslugj alds á ökutæki, uppfæra viðauka við lögin um umbúðir og bregðast við vanda innflytjenda með heimild til ákvörðunar úrvinnslugjalds á umb úðir þegar upplýsingar um meginsöluumbúð liggja ekki fyrir.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002 (hringrásarhagkerfi, umbúðir, ökutæki o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um loftslag smál, nr. 70/2012 (niðurlagning Loftslagssjóðs)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: október
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar á fyrirkomulagi styrkveitinga ráðuneytisin s. Ráðuneytið rekur tvo sjóði, Orkusjóð og Loftslagssjóð, sem styrkja verkefni sem tengjast orkuskiptum og nýsköpun á sv iði loftslagsmála. Þá hefur ráðuneytið veitt styrki til verkefna á málefnasviði ráðuneytisins og þá sérstaklega styrki til innleiðingar á hringrásarhagkerfinu. Með frumvarpinu er ætlunin að framangreindar styrkveitingar verði sameinaðar. Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði um Loftslagssjóð verði felld á brott úr lögum um loftslagsmál.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslag smál, nr. 70/2012 (niðurlagning Loftslagssjóðs).

  • Frumvarp

    Breyting á raforkulög um, nr. 65/2003 (viðskiptakerfi fyrir raforku o.fl.)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða gerðar tillögur að breytingum á raforkulögum í tengslum við rekstur skipulegs viðskiptakerfis fyrir raforku. Í raforkulögum er gert ráð fyrir rekstri skipulegs viðskiptakerfis fyrir raforku og að leyfi ráðherra þurfi til þess. Með frumvarpinu verða gerðar tillögur um reglur sem gilda skulu í viðskiptakerfi, svo sem um bann við markaðsmisnotkun sem og eftirlit með rekstri skipulegs viðskiptakerfis fyrir raforku.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulög um, nr. 65/2003 (viðskiptakerfi fyrir raforku o.fl.).

  • Áætlað: nóvember· EES-innleiðing
    543. mál· Samþykkt· lagt fram 28. nóv. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður innleiddur hluti gerða úr „Fit for 55“, loftslags- og orkulöggjafarpakka ESB. Gerðirnar sem um ræðir eru breytingar á tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Annars vegar tilskipun ESB 2023/958 (flugstarfsemi) og hins vegar tilskipun 2023/959 (staðbundinn iðnaður, sjóflutningar og byggingar, vegasamgöngur og smærri iðnaður).

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012 (EES-innleiðing, viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir).

  • Áætlað: nóvember
    898. mál· Samþykkt· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Helstu lagabálkar auðlindanýtingar sem Orkustofnun starfar eftir eru lög nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins (hafsbotnslög), lög nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (auðlindalög), raforkulög nr. 65/2003 og vatnalög nr. 15/1923. Í ákvæðum laganna er lítið fjallað um málsmeðferð eða ferli leyfisveitinga. Þá eru ákvæði um gjaldtöku ýmist ófullnægjandi eða þeim ekki fyrir að fara. Brýnt er að tryggð verði heimild stofnunarinnar til töku þjónustugjalda vegna vinnu við leyfisumsóknir vegna auðlindanýtingar, útgáfu leyfa og eftirlits með þeim.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna leyfisveitinga Orkustofnunar (þjónustugjöld).

  • Frumvarp

    Vindorku

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu er að finna sérstök ákvæði sem snúa að hagnýtingu vindorku til raforkuframleiðslu í samræmi við skýrslu starfshóps um málið. Í lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, er kveðið á um að allir virkjunarkostir, 10 MW og stærri, skuli fá umfjöllun í rammaáætlun þar sem þeim er raðað í orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um vindorku.

  • Frumvarp

    Vernd, velferð og veiðar á villtum dýrum, fuglum og spendýrum

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember· Endurflutt
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun gildandi laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Frumvarpið var lagt fram á 151. löggjafarþingi. með breytingum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um vernd, velferð og veiðar á villtum dýrum, fuglum og spendýrum.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-innleiðing, mót taka úrgangs í höfnum)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: nóvember· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttöku úrgangs frá skipum, sem breytir tilskipun (ESB) 2010/65 og fellir úr gildi tilskipun (ESB) 2000/59. Tilskipunin kemur í stað eldri tilsk ipunar um sama efni sem hefur verið innleidd hér á landi. Gera þarf nokkrar breytingar á lögunum vegna innleiðingar á tilskipuninni.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-innleiðing, mót taka úrgangs í höfnum).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (varp í hafið)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: janúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda er meginreglan sú að varp efna og hluta í hafið sé óheimilt. Umhverfisstofnun er þó heimilt að veita leyfi fyrir því að tilteknum efnum og hlutum sé varpað í hafið. Skilgreining á varpi í hafið hefur í framkvæmd valdið ákveðnum vandkvæðum og verður í frumvarpinu leitast við skýra það frekar og/eða að bæta við heimildum Umhverfisstofnunar til leyfisveitinga. Markmiðið með frumvarpinu er að auka skýrleika og koma í veg fyrir óþarfa reglubyrði, t.d. þegar litið er til mikilvægra rannsóknar- og þróunarverkefna í kolefnisbindingu á hafi.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (varp í hafið).

  • Frumvarp

    Eldsneytisbirgðir

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að mælt sé fyrir um lágmarksbirgðahald jarðefnaeldsneytis í samræmi við orkustefnu Íslands, skýrslu þjóðaröryggisráðs frá 2021 og aðgerðir sem átakshópur um úrbætur á innviðum skilgreindi í kjölfar óveðursins 2019.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um eldsneytisbirgðir.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (landtaka skipa utan hafna)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði sérstök ákvæði í lögin til að bregðast við áskorunum sem fylgja landtöku skemmtiferðaskipa á viðkvæmum svæðum utan hafna landsins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013 (landtaka skipa utan hafna).

  • Áætlað: febrúar
    348. mál· Dagaði uppi· lagt fram 16. okt. 2023
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða tillögur starfshópa sem fjallað hafa um orkuöryggi útfærðar með frekari hætti. Gerðar verða tillögur um skyldur aðila á raforkumarkaði sem og almenn og sértæk úrræði í þágu raforkuöryggis almennings.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi).

  • Áætlað: febrúar
    942. mál· Samþykkt· lagt fram 5. apr. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið er til samræmis við frumvörp sem fyrirhugað er að leggja fram á þinginu vegna stofnanasameininga ráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að þörfin á lagabreytingum verði einna helst í tengslum við nýja Náttúruverndar- og minjastofnun. Mismunandi reglur gilda að sumu leyti í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum auk þess sem samræma þarf málsmeðferðarreglur og valdheimildir stofnana samkvæmt þessum lögum. Einnig er þörf á að skoða málsmeðferðarreglur og valdheimildir Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar í tilefni af frumvarpi um nýja Loftslagsstofnun.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameininga stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis (samræming málsmeðferðarreglna, valdheimilda og annarra reglna).

  • Frumvarp

    Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003 (verkefni Raforkueftirlitsins)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: febrúar· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar vegna ábendinga frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í tengslum við verkefni Raforkueftirlitsins. Um er að ræða ábendingar ESA vegna sérstakra verkefna Raforkueftirlitsins eins og mælt er fyrir um í tilskipu n 2009/72/EB frá 13. júlí 2009 um sameiginlegar reglur um innri markaðinn fyrir raforku.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (verkefni Raforkueftirlitsins).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· Endurflutt
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    49/1997 (markmiðsákvæði, endurskoðun hættumats, sektir o.fl.). Í frumvarpinu er aukið á skýrleika laganna, bætt við ákvæði um markmið með lögunum, lagðar til breytingar á ákvæðum um endurskoðun hættumats, eftirlit, um nýtingu húseigna og innheimtu gjalda og lögð til sektarákvæði. Frumvarpið var lagt fram á 151. löggjafarþingi. með breytingum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um hollustuh ætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (EES-innleiðing, áfastir tappar og lok á einnota plastflöskur)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars· EES-innleiðing
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    á ákvæði 1. mgr. 6. gr. tilskipunar ESB 2019/ 904 sem kveður á um að einungis megi setja einnota drykkjarílát úr plasti (allt að þriggja lítra) á m arkað ef tappinn eða lokið er áfast ílátinu á meðan fyrirhuguð notkun þess stendur yfir.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuh ætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (EES-innleiðing, áfastir tappar og lok á einnota plastflöskur).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um lofts lagsmál, nr. 70/2012 (styrking stjórnsýslu loftslagsmála o.fl.)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í frumvarpinu verður lagt til endurskoðað hlutverk Loftslagsráðs í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og aukin áhersla lögð á ráð gefandi hlutverk og vísindastarf auk aðhalds- og eftirlitshlutverks gagnvart stjórnvöldum. Í frumvarpinu verða enn fremur lagðar fram tillögur að skipulagi og efnistökum landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Frumvarpið mun jafnframt fela í sér e ndurskoðun á hlutverki Umhverfisstofnunar hvað snertir loftslagsstefnu ríkis og sveitarfélaga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lofts lagsmál, nr. 70/2012 (styrking stjórnsýslu loftslagsmála o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (endurskoðun eftirlitskerfis)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að fylgja ef tir tillögum starfshóps sem stofnaður var haust ið 2022. Hlutverk starfshópsins er að koma með tillögur að nýju eftirlitskerfi á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og matvælalaga eða eftir atvikum breytingum á núverandi kerfi.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (endurskoðun eftirlitskerfis).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um stjórn vatnamála (málsmeðferðarreglur)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður lagt til að skýra málsmeðferðarreglur laga um stjórn vatnamála sem varða heimild til breytinga á vatnshloti. Höfð er hliðsjón af reynslu af framkvæmd laganna með það að markmiði að auka skilvirkni stjórnsýslu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn vatnamála (málsmeðferðarreglur).

  • Dagaði uppi eða fellt
    Áætlað: janúar
    899. mál· Dagaði uppi· lagt fram 27. mar. 2024· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Í 39. gr. a raforkulaga, nr. 65/2003, með síðari breytingum, segir að ráðherra skuli á fjögurra ára fresti leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Með þessum hætti getur Alþingi lagt fram ákveðnar meginreglur og viðmið sem taka ber mið af við gerð kerfisáætlunar á hverjum tíma, enda er í raforkulögum kveðið á um að flutningsfyrirtækið skuli taka tillit til hennar. Kerfisáætlunin er annars vegar langtímaáætlun til tíu ára og hins vegar framkvæmdaáætlun til þriggja ára. Í tillögu að uppfærðri þingsályktun verður tekið mið af stöðu verkefna sem tilgreind eru í núgildandi þingsályktun sem og orkustefnu.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

  • Þingsályktunartillaga

    Verndar- og orkunýtingaráætlun (4. áfangi)

    Kom aldrei fram
    Áætlað: mars
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Tillaga lögð fram í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um verndar- og orkunýtingaráætlun (4. áfangi).

Utanríkisráðherra

4 af 6 komin fram

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi samþykkti málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Dagaði uppi eða fellt: Málið var lagt fram en dagaði uppi eða var fellt.
  • Kom aldrei fram: Málið var aldrei lagt fram á þinginu.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.