Frumvarp til laga um lagareldi
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um lagareldi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-253/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. janúar 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 306 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 930)
- Niðurstöður samráðs birtar
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (306)
- #1Júlíus Birgir Kristinsson
Miðað við frumvarpið eins og það er nú ætti titill laganna að vera meira í samræmi við það sem þau fjalla í raun og veru um og ætti því að heita: "Frumvarp til laga um laxeldi". Þetta er við hæfi því fullorðinn Atlantshafslax (eftir myndbreytingu yfir í sjógönguseiði) hefur þá sérstöðu að þola heilsárseldi í sjó en sækja uppí ferskvatn til hrygningar. Undirritaður fæst við skelrækt og tjáir sig því ekki mikið um ákvæði er gilda fyrst og fremst um laxeldi. Bendi þó á eftirfarandi: Í lögunum þurfa að vera ákvæði um takmörkun á notkun efna, t.d. lúsaeitur, sem geta skaðað aðra ræktun í sjó. Bes… Lesa alla
Miðað við frumvarpið eins og það er nú ætti titill laganna að vera meira í samræmi við það sem þau fjalla í raun og veru um og ætti því að heita: "Frumvarp til laga um laxeldi". Þetta er við hæfi því fullorðinn Atlantshafslax (eftir myndbreytingu yfir í sjógönguseiði) hefur þá sérstöðu að þola heilsárseldi í sjó en sækja uppí ferskvatn til hrygningar. Undirritaður fæst við skelrækt og tjáir sig því ekki mikið um ákvæði er gilda fyrst og fremst um laxeldi. Bendi þó á eftirfarandi: Í lögunum þurfa að vera ákvæði um takmörkun á notkun efna, t.d. lúsaeitur, sem geta skaðað aðra ræktun í sjó. Best væri að rekstraraðilar í lagareldi geti snúið sé að einum aðila er varða leyfi fyrir starfseminni. Lagt er til að Matvælastofnun sé þessi aðili og sjái um samskipti við aðrar stofnanir eins og þarf í hverju tilfelli, s.s. Hafrannsóknastofnun, Fiskistofu, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun. Setja þarf viðkomandi stofnun/stofnunum tímamörk um svör við erindum er til hennar/þeirra berast frá rekstraraðilum. Þetta er tilgreint í sumum greinun laganna sem um þetta fjalla en ekki öllum. Þetta þarf að ná heildstætt yfir alla hluta ferla í umsóknum um rekstrarleyfi og öðrum erindum frá rekstraraðilum sem viðkomndi stofnun berst. Íslenska ríkið hefur nú þegar þurft að greiða fyrir kolefniskvóta þar sem þjóðinni hefur ekki tekist að minnka losun gróðurhúsalofttegunda eins og stefnt hefur verið að. Það kemur að því að því að gerðar verða kröfur á hverja atvinnugrein vegna hlutdeildar viðkomandi greinar. E.t.v. þarf að setja inn ákvæði um þetta atriði í þessum lögum sem og öðrum sem sett verða á næstunni.
- #2Björn Davíðsson
Lýst er eindregnum stuðningi við þá tillögu sem er að finna í frumvarpi matvælaráðherra um lagareldi að Eyjafjörður og Öxarfjörður bætist í hóp þeirra fjarða og flóa sem njóta friðunar fyrir sjókvíaeldi og þannig verði til heildstætt friðunar- og verndarsvæði fyrir öllu Norður og Norðausturlandi til verndar íslenskri náttúru og líffræðilegri fjölbreytni. Þá er einnig stutt að slík friðun verði færð úr reglugerð í lög
- #3Sara Sigmundsdóttir
Lýst er eindregnum stuðningi við þá tillögu sem er að finna í frumvarpi matvælaráðherra um lagareldi að Eyjafjörður og Öxarfjörður bætist í hóp þeirra fjarða og flóa sem njóta friðunar fyrir sjókvíaeldi og þannig verði til heildstætt friðunar- og verndarsvæði fyrir öllu Norður og Norðausturlandi til verndar íslenskri náttúru og líffræðilegri fjölbreytni. Þá er einnig stutt að slík friðun verði færð úr reglugerð í lög.
- #4Laxós ehf.
Vísað er í meðfylgjandi skjal
- #5Hjörvar Jóhannesson
Lýst er eindregnum stuðningi við þá tillögu sem er að finna í frumvarpi matvælaráðherra um lagareldi að Eyjafjörður og Öxarfjörður bætist í hóp þeirra fjarða og flóa sem njóta friðunar fyrir sjókvíaeldi og þannig verði til heildstætt friðunar- og verndarsvæði fyrir öllu Norður og Norðausturlandi til verndar íslenskri náttúru og líffræðilegri fjölbreytni. Þá er einnig stutt að slík friðun verði færð úr reglugerð í lög.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.