Áform um frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja (gjaldtaka ökutækja,eldsneytis, kolefnisgjald o.fl.)
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja (gjaldtaka ökutækja,eldsneytis, kolefnisgjald o.fl.).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-147/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. ágúst 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 61 umsögn barst
- Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 301)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. nóvember 2024)
Sjá niðurstöðuskjal.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (61)
- #1Ketilbjörn Benediktsson
Ég vil bara benda á að hraðamælar í bílum eru ekki löggildir mælar til gjaldtöku og eru oftast hafðir vitlausir um ca. 5% til að verja bílaframleiðendur lögsókn. Þessi gjaldtaka er að mínu mati aðeins möguleg með sérstökum þar til gerðum mælum.
- #2Björn Jón Níelsson
Ef skattur er tekin af bílum sem aka um vegina þá er krafa um að peningarnir renni til vegaframkvæmda. Það virðist vera orðin viðtekin venja hjá ríkiskassanum að skattpína landsmenn svo þegar skatturinn er dottinn inn í kassann eru fingralangir sem veita þeim peningum annað en var lofað.
- #3Böðvar Guðmundsson
legg til að fyrst á að fella á brott gjöld úr bensín og olíuverði að bætt verði inn í lögin um hámarksprósentu álagninu á eldsneyti til að álagning söluaðila hækki einfaldlega bara ekki og verð standi í stað sem að myndi ýta undir verðbólgu lika
- #4Guðmundur Rúnar Jónsson
"Þá segir að kílómetragjaldið komi í stað olíu- og bensíngjalda, sem nú eru greidd við kaup á jarðefnaeldsneyti. Þau verði samhliða felld brott." Viðbótarskattur sem ekkert verður lagt niður í staðinn fyrir, sagan segir það. Bifreiðagjöld lögð á tímabundið til allt að tveggja ára eru rukkuð tvisvar á ári enn þann dag í dag tæpum þremur áratugum síðar. Þetta verður sama illþefjandi illmelta dellan, steinn mun ekki standa yfir steini, aðeins skattheimtan og aukagjöldin munu standa, engar niðurfellingar.
- #5Þórir Björn Guðmundsson
Hvernig á að rukka veggjald fyrir bíla sem koma t.d með norrænu?
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.