Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-137/2024 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar leyfisferla, samræming málsmeðferðar o.fl. í umhverfis- og orkumálum

Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um lagasetningu fyrir skilvirkari leyfisveitingar á sviði umhverfis- og orkumála

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: febrúar).

Ráðuneytið vinnur að verkefni með Orkustofnun, Umhverfisstofnun og ytri ráðgjöfum sem snýst um skilvirkni leyfisveitinga á sviði umhverfis- og orkumála með endurhönnun ferla, endurskoðun regluverks, stafrænum lausnum og breytingum á verklagi. Markmiðið er að einfalda og stytta afgreiðslutíma og tryggja um leið gæði og gagnsæi þessara ferla. Leyfisveitingar sem varða orkumál eru í fyrsta forgangi en heildarverkefnið nær þó einnig til annarra málefnasviða sem Umhverfis- og orkustofnun er ætlað að sinna samkvæmt frumvarpi um sameiningu stofnana. Áður hefur verið óskað eftir tillögum að skilvirkari leyfisveitingum vegna þessa verkefnis sbr. mál nr. S-94/2024 í samráðsgáttinni. Áformað er að vinna frumvarp til þeirra lagabreytinga sem teljast nauðsynlegar svo að úrbætur á leyfisveitingaferlum raungerist. Áform þessi eru opin til samráðs til 14. ágúst nk.

S-137/2024· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 4. júl. 2024 – 14. ágú. 2024· 11 umsagnir

Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar leyfisferla, samræming málsmeðferðar o.fl. í umhverfis- og orkumálum

Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um lagasetningu fyrir skilvirkari leyfisveitingar á sviði umhverfis- og orkumála

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-137/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. ágúst 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 265)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
  • #1Sigurður Eyberg Jóhannesson

    Hér er um afar mikilvæga vinnu að ræða sem ber að fagna. Það vekur hinsvegar athygli að í lið D. í áformunum er hvergi minnst á lög nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun. Þau lög eiga ekki lítinn þátt í því hversu miklar ógöngur þessi leyfisveitingaferli eru komin í. Það væri óskandi að ástæða þessa sé sú að fella eigi lögin niður með öllu - enda er þeim fullkomlega ofaukið.

  • #2Samtök iðnaðarins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins.

  • #3Hörður Einarsson
    Sjálfsagt má ýmislegt gera til þess að einfalda málsmeðferð og flýta meðferð mála í þeim málaflokkum, sem hér eru undir, eins og á ýmsum öðrum sviðum. Bezta ráðið til þess að tryggja eðlilegan gang mála og skilvirkni í stjórnsýslunni er að ráða til starfa vel menntað, hæft og duglegt starfsfólks, sem getur starfað sjálfstætt og gerir sér grein fyrir því, að það er í starfi hjá almenningi, en hveroki einstökum yfirboðurum eða ráðherrum. Þess vegna er það mikilvægt, að málefnalega sé að ráðningu svo þýðingarmikils starfsfólks staðið. Á þessu er mikill misbrestur í íslenzkri stjórnsýslu. Það þ… Lesa alla

    Sjálfsagt má ýmislegt gera til þess að einfalda málsmeðferð og flýta meðferð mála í þeim málaflokkum, sem hér eru undir, eins og á ýmsum öðrum sviðum. Bezta ráðið til þess að tryggja eðlilegan gang mála og skilvirkni í stjórnsýslunni er að ráða til starfa vel menntað, hæft og duglegt starfsfólks, sem getur starfað sjálfstætt og gerir sér grein fyrir því, að það er í starfi hjá almenningi, en hveroki einstökum yfirboðurum eða ráðherrum. Þess vegna er það mikilvægt, að málefnalega sé að ráðningu svo þýðingarmikils starfsfólks staðið. Á þessu er mikill misbrestur í íslenzkri stjórnsýslu. Það þýðir ekkert að ætla að keyra mál í gegn með frekju og offorsi og sífellt í þágu einhverra sérhagsmuna, sem kunna sér engin læti og láta kjörna ráðamenn aldrei í friði. Demba yfir ráðamenn skýrslu eftir skýrslu og úta hressilega á eftir. Það eru aumir ráðamenn, sem láta bjóða sér svona verklag. Við þá endurskoðun og "einföldun", sem nú er boðuð, skal alveg sérstaklega varað við því, að gengið verði á rétt almennings til þátttöku í meðferð mála, sem varða stórframkvædir. Nú þegar hefur verið reynt að ganga á þetta lag, og er eftir að sjá til hvers það leiðir. Almenningur virðist vera nógu góður, þegar biðlað er til hans um stuðning við einstaka stjórnmálaflokka, en þegar að meðferð mála og ákvarðanatöku kemur, gætir rótgróinnar tregðu til þess að hlýða á raddir almennra borgara og samtaka þeirra og taka verðugt tillit til álits borgaranna. í lýðræðisríki eru hin endanlegu ráð í höndum borgaranna, og allt ráðabrugg til þess að trufla það gangverk og leiðir aðeins til ógæfu. Vinsamlegast hafið þessi sjónarmið efst í huga í því stefnumótunarstarfi, sem framundan er. Virðingarfyllst, Hörður Einarsson

  • #4Helgi Guðjónsson

    Meðfylgjandi er umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

  • #5Landsvirkjun

    Meðfylgjandi er umsögn Landsvirkjunar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-137/2024: Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar leyfisferla, samræming málsmeðferðar o.fl. í umhverfis- og orkumálum · Alviti