Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-257/2023 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum

Áformuð er lagasetning um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Áformað er að leggja fram frumvarp í þeim tilgangi að annars vegar innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar (ESB) 2021/12301 um greiðslur yfir landamæri í Evrópusambandinu (kerfisbinding) og hins vegar tryggja áframhaldandi lagastoð fyrir reglugerð (ESB) nr. 260/20122 um að koma á tæknilegum og viðskiptalegum kröfum fyrir millifærslur fjármuna og beingreiðslur í evrum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/20093. Með reglugerð (ESB) 2021/1230 um greiðslur yfir landamæri í Evrópusambandinu (kerfisbinding) eru sameinuð með kerfisbindingu (e. codification) ákvæði reglugerðar (EB) nr. 924/2009 um greiðslur yfir landamæri í ESB, tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 og ákvæði reglugerðar (ESB) 2019/5184 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009. Með kerfisbindingunni er ætlunin að draga saman á einn stað breytingar á regluverkinu til einföldunar, skýringarauka og bætts aðgengis almennings. Reglugerð (ESB) 2019/518 hafði ekki verið tekin upp í EES-samninginn þegar ákveðið var að endurútgefa reglugerð (ESB) með kerfisbindingu. Reglugerð (ESB) nr. 260/2012 um að koma á tæknilegum og viðskiptalegum kröfum fyrir millifærslur fjármuna og beingreiðslur í evrum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009 var, ásamt reglugerð (EB) nr. 924/2009, innleidd í íslenskan rétt með lögum um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/2014. Í greinargerð með frumvarpinu sem varð að lögunum segir að markmið reglugerðanna sé að veita borgurum og fyrirtækjum samræmda, örugga, notendavæna og áreiðanlega greiðsluþjónustu í evrum á samkeppnishæfu verði innan EES, jafnframt því að tryggja að gjöld vegna greiðslna í evrum yfir landamæri ríkja innan EES séu hliðstæð því sem gerist vegna greiðslna í evrum innanlands. Í áformuðu frumvarpi verður kveðið á um ný lög um greiðslur yfir landamæri í evrum sem fella brott samnefnd lög nr. 78/2014. Helstu efnislegu breytingarnar frá gildandi lögum nr. 78/2014 eru að skýrari rammi verður settur um þær upplýsingar sem greiðsluþjónustuveitendum verður skylt að veita neytendum varðandi kostnað við gjaldmiðilsumreikning áður en greiðsla fer fram. Um er að ræða viðbótarráðstafanir til að vernda neytendur gegn óhóflegum gjöldum vegna gjaldmiðilsumreiknings.

S-257/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. des. 2023 – 27. des. 2023· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum

Áformuð er lagasetning um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-257/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. desember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 111)
Niðurstöður samráðs (26. ágúst 2024)

Engar umsagnir bárust

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-257/2023: Áform um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum · Alviti