Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-118/2023 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Breytingar á lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir

Lagt er til að bæta við lög nr. 38/2018 reglugerðarheimildum svo ráðherra sé heimilt að kveða með nánari hætti á um ýmis atriði laganna.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Vinna innan félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins hefur leitt í ljós að gera þarf breytingar á lögum nr. 38/2018. Það er mat ráðuneytisins að æskilegt sé að kveða í reglugerð nánar á um tiltekin atriði sem fjallað er um í III. kafla laga nr. 38/2018, þ.e. þeim kafla sem fjallar um þjónustu. Meðal þeirra atriða er hvernig fari með fæði starfsfólks sem matast með notanda og kostnað vegna þessa. Einnig um aðstoðarmannakort fyrir fatlað fólk sem veiti aðstoðarmanni viðkomandi ókeypis aðgang hjá hinu opinbera, svo sem á söfn, í sund o.s.frv. Er hér m.a. tekið mið af tillögum úr skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018, frá 2022. Um sum þessara atriða var fjallað í reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum, nr. 1054/2010, en sú reglugerð var sett á grundvelli eldri laga um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992. Einnig kemur til álita að útfæra þau atriði sem fjallað er um í V. kafla laganna um atvinnumál. Á grundvelli eldri laga var sett reglugerð um atvinnumál fatlaðra, nr. 376/1996. Ljóst er að uppfæra þarf reglugerðina þar sem hún er ekki í samræmi við gildandi lög og framkvæmd, en auk þess hafa flest ákvæða hennar hafa nú verið lögfest í V. kafla laga nr. 38/2018.

S-118/2023· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. jún. 2023 – 21. júl. 2023· 2 umsagnir

Breytingar á lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir

Lagt er til að bæta við lög nr. 38/2018 reglugerðarheimildum svo ráðherra sé heimilt að kveða með nánari hætti á um ýmis atriði laganna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-118/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. júlí 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 772)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-118/2023: Breytingar á lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir · Alviti