Afnám banns við framleiðslu áfengis til einkaneyslu (heimabruggun)
Lagðar eru til breytingar á áfengislögum þannig að heimilt verði að framleiða áfengi til einkaneyslu með ákveðnum takmörkunum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-68/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. mars 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (27. ágúst 2026)
Málefni fyrirhugaðs frumvarps er ekki lengur á forræði dómsmálaráðuneytisins, sbr. forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 5/2025.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Andri Eiríksson
Afnám á refsingu við framleiðslu á vægu fíkniefni í heimahúsi til einkaneyslu er skynsamlegt og eðlilegt. Það er ánægjulegt að vita að sú forræðishyggja sem hefur mengað allar ákvarðanir stjórnvalda hvað varðar ávanabindandi efni verði ef til vill beisluð, þessi sama forræðishyggja og olli bjórbanninu sem er í hávegum höfð af þeim sem fara með völd hér á landi. Yfirstéttin vill enn hafa vit fyrir almenningi og taka ákveðnar ákvarðanir okkar hönd. Ég afþakka það pent og bið um valdið til að hafna af eigin sjálfsdáðun, sem ég geri. Þótt ég myndi hvorki kaupa né brugga áfengi sjálfur óska é… Lesa alla
Afnám á refsingu við framleiðslu á vægu fíkniefni í heimahúsi til einkaneyslu er skynsamlegt og eðlilegt. Það er ánægjulegt að vita að sú forræðishyggja sem hefur mengað allar ákvarðanir stjórnvalda hvað varðar ávanabindandi efni verði ef til vill beisluð, þessi sama forræðishyggja og olli bjórbanninu sem er í hávegum höfð af þeim sem fara með völd hér á landi. Yfirstéttin vill enn hafa vit fyrir almenningi og taka ákveðnar ákvarðanir okkar hönd. Ég afþakka það pent og bið um valdið til að hafna af eigin sjálfsdáðun, sem ég geri. Þótt ég myndi hvorki kaupa né brugga áfengi sjálfur óska ég þeim sem kjósa þann lífstíl góðs gengis.
- #2Hrafnkell Freyr Magnússon
Undirritaður rekur verslun þar sem ég sel hráefni og búnað til framleiðslu á bjór. Stór hluti viðskiptavina minna eru heimabruggarar. Verslun mín og þekking er sérsniðin að heimagerðum bjór og því læt ég duga að ræða aðeins heimagerðan bjór en ekki annað heimagert áfengi. Heimabruggun á bjór er áhugamál sem hundruðir stunda hér á landi, sumir í leynd af ótta við þá staðreynd að heimabrugg er ólöglegt á Íslandi með ríflegum refsiramma. Bjórgerð í heimahúsum snýst ekki um framleiðslu á ódýru áfengi. Bjórgerð er margslungið áhugamál þar sjálfráða einstaklingar leggja alúð og metnað í eigin han… Lesa alla
Undirritaður rekur verslun þar sem ég sel hráefni og búnað til framleiðslu á bjór. Stór hluti viðskiptavina minna eru heimabruggarar. Verslun mín og þekking er sérsniðin að heimagerðum bjór og því læt ég duga að ræða aðeins heimagerðan bjór en ekki annað heimagert áfengi. Heimabruggun á bjór er áhugamál sem hundruðir stunda hér á landi, sumir í leynd af ótta við þá staðreynd að heimabrugg er ólöglegt á Íslandi með ríflegum refsiramma. Bjórgerð í heimahúsum snýst ekki um framleiðslu á ódýru áfengi. Bjórgerð er margslungið áhugamál þar sjálfráða einstaklingar leggja alúð og metnað í eigin handverk þar sem saman kemur hugmyndaauðgi, þekking og reynsla. Mikill metnaður er lagður í gæði umfram magn og hafa keppnir um besta heimagerða bjórinn verið haldnar undanfarin ár af fágun, félagi áhugamanna um gerjun. Því hefur oft verið borið fyrir að það hafi enginn haft áhuga á að breyta lögunum því þetta virki ágætlega eins og er; lögunum sé ekki framfylgt og því taki því ekki að breyta þeim. Núna finnst mér kominn tími til að gera áhugamál margra íslendinga löglegt og því styð ég þetta frumvarp heilshugar. Fyrir hönd Hlekkir sf / Brew.is Hrafnkell Freyr Magnússon Eigandi
- #3Dagur Helgason
Undirritaður er heimabruggari. Heimur bruggsins er heillandi, spennandi, flókinn og fallegur. Það að umbreyta korni, ávöxtum, hunangi eða öðru slíku í sætan vökva sem svo er færður örsmáum verum sem útbúa gómsætar veigar fyrir okkur er upplifun sem er töfrum líkust. Það að upplifa þetta krefst ákveðins aga, nákvæmni, þolinmæði og síðast en ekki síst meiri hreinlætisvitundar en nokkurn hefði órað fyrir. Líkt og annar útbúnaður á mat og drykk er fólk mistilbúið til þess að gera þetta sjálft. Það hafa ekki allir þolinmæði í að rækta upp súr til að setja í brauð eða til þess að fara út í ber… Lesa alla
Undirritaður er heimabruggari. Heimur bruggsins er heillandi, spennandi, flókinn og fallegur. Það að umbreyta korni, ávöxtum, hunangi eða öðru slíku í sætan vökva sem svo er færður örsmáum verum sem útbúa gómsætar veigar fyrir okkur er upplifun sem er töfrum líkust. Það að upplifa þetta krefst ákveðins aga, nákvæmni, þolinmæði og síðast en ekki síst meiri hreinlætisvitundar en nokkurn hefði órað fyrir. Líkt og annar útbúnaður á mat og drykk er fólk mistilbúið til þess að gera þetta sjálft. Það hafa ekki allir þolinmæði í að rækta upp súr til að setja í brauð eða til þess að fara út í berjamó til þess að tína ber í sultu. Fólk sem ekki hefur þolinmæði í að gera þessa hluti einfaldlega kaupir þá í verslunum landsins. Sumir vilja baka súkkulaði köku á sunnudögum en aðrir vöfflur eða jafnvel kleinur og allir eru með sína útfærslu á þessu, sem gerir heimagerðu vöruna einstaka (og að sjálfsögðu betri í huga þess sem gerir hana). Heimabrugg er ekkert frábrugðið þessu, sumir vilja útbúa létta lager bjóra, aðrir bragðmeiri IPA bjór og enn aðrir kolsvarta, tunnuþroskaða stout bjóra, en í öllum tilfellum eru þessir bjórar lagaðir að bragðlaukum bruggara og því að sjálfsögðu betri en nokkur vara sem hægt væri að kaupa (a.m.k. í huga bruggaranna). Ólíklegt verður að teljast að þátttaka í áhugamálinu hafi í för með sér óhóflega drykkju en stærsta vandamál flestra heimabruggara er að þeir vilja helst brugga meira en þeir vilja drekka og eiga þeir flestir því oftast til bjór. Þeir sem þekkja til alkóhólisma vita það að á heimilum þar sem einstaklingur hefur ekki stjórn á sinni drykkju er allt áfengi drukkið jafn óðum og það kemur inn og er þetta þver öfugt við mína upplifun af heimabruggurum. Eins verður að teljast ólíklegt að lögleiðing hafi í för með sér aukna unglingadrykkju en þeir sem hafa eytt vikum eða mánuðum í að útbúa dýrindis veigar eru harla ólíklegir til að afhenda þær unglingum sem hafa lítið vit á veigunum og eru eingöngu að sækjast eftir áhrifum vínandans. Ef aðili ætlar að framleiða áfengi fyrir þann markhóp sem unglingar, sem í flestum tilfellum væru bara að sækjast eftir vínanda, eru þá er eingöngu ein vara sem er rökrétt að framleiða, en það er landi. Landi er ódýr, fljótlegur og einfaldur í framleiðslu. En með áframhaldandi banni á eimingu er hætta á slíkri framleiðslu lágmörkuð. Heimabrugg snýst fyrst og fremst um að fá frelsi til að skapa þá upplifun sem hverjum og einum hugnast. Það að banna slíkt á meðan áfengi er löglegt er í besta falli kjánalegt, því ég fagna því verið sé skoða það að breyta þessum hluta laganna án þess að blanda öðrum, og mögulega umdeildari, breytingum saman við. Dagur Helgason Heimabruggari, ríkisstarfsmaður, verkfræðingur og nörd.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.