Drög að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (tillögur starfshóps um endurskoðun húsaleigulaga)
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar tillögur starfshóps innviðaráðherra um breytingar á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-140/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 21. ágúst 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 18 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 754)
- Tillögur starfshóps - drög að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum
- Samanburðarskjal - tillögur starfshóps felldar inn í gildandi húsaleigulög
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (18)
- #1Jakob Helgi Þórðarson
Í tilliti til núverandi stöðu á leigumarkaði (ritað í Júlí 2023) þá tel ég, sem leigjandi á leigumarkaði, ríka ástæðu til að hindra bindingu á leiguverði við vísitölur. Mjög algengt er að leiguverð á Íslandi séu nú bundin við vísitölu neysluverðs, sem leiðir til þess að leiguverð uppfærist og breytist mánaðarlega. Slíkt er jafnan tekið fram í auglýsingum fyrir leiguhúsnæði, og því er auðvelt að sjá að meirihluti leigusamninga kemur þróast í þessa átt í framtíðinni. Leigjendur eru í dræmri stöðu á núverandi leigumarkaði á Íslandi til að mótmæla slíkum tengingum við vísitölur, þar sem frambo… Lesa alla
Í tilliti til núverandi stöðu á leigumarkaði (ritað í Júlí 2023) þá tel ég, sem leigjandi á leigumarkaði, ríka ástæðu til að hindra bindingu á leiguverði við vísitölur. Mjög algengt er að leiguverð á Íslandi séu nú bundin við vísitölu neysluverðs, sem leiðir til þess að leiguverð uppfærist og breytist mánaðarlega. Slíkt er jafnan tekið fram í auglýsingum fyrir leiguhúsnæði, og því er auðvelt að sjá að meirihluti leigusamninga kemur þróast í þessa átt í framtíðinni. Leigjendur eru í dræmri stöðu á núverandi leigumarkaði á Íslandi til að mótmæla slíkum tengingum við vísitölur, þar sem framboð á leiguhúsnæði er verulega á skjön við eftirspurn. Í slíkum aðstæðum leigumarkaðs er hæglega séð að mótmæli leigjanda gagnvart slíkum ákvæðum leigusala, varðandi bindingu leiguverðs við vísitölur, valdi því að leigusali hafi hafsjó annara leigjanda til að velja úr, í stað þess að koma til móts við leigjanda sem sýnir mótmæli. Leigjendur hafa því ekki annara kosta völ en að sættast við óréttmæt ákvæði í leigusamningum, ellegar fái þeir ekki kost á húsnæði á leigumarkaði. Ég tel því ástæðu til að taka skýrar fram í yrðingu 37. Gr., 4mgr., að breyting á leiguverði á tímabundnum samningum nær sömuleiðis til bindinga á leiguverði við vísitölu neysluverðs (eða annara vísitala).
- #2Öryrkjabandalag Íslands
Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum
- #3Sigurður Eyberg Jóhannesson
Góðan dag, Kapp er best með forsjá. Hér væri ráð að gæta þess að þrengja ekki svo að réttindum leigusala að þeir sjái sér ekki hag í að halda áfram að reka húsnæði á leigumarkaði. Það myndi vinna gegn markmiðinu um að auka framboð húsnæðis á leigumarkaði. Leigusamningar eru samningar tveggja aðila á frjálsum markaði og það er ekki augljóst að mikil íhlutun yfirvalda sé til bóta. Hugsanlega eru aðrar leiðir betri til að styrkja stöðu þeirra sem verst standa. Þá er öll orðræða í þá átt að leigusalar séu gróðrapungar afar ósmekkleg og líklegast í langflestum tilfellum ósanngjörn (hér er auðvit… Lesa alla
Góðan dag, Kapp er best með forsjá. Hér væri ráð að gæta þess að þrengja ekki svo að réttindum leigusala að þeir sjái sér ekki hag í að halda áfram að reka húsnæði á leigumarkaði. Það myndi vinna gegn markmiðinu um að auka framboð húsnæðis á leigumarkaði. Leigusamningar eru samningar tveggja aðila á frjálsum markaði og það er ekki augljóst að mikil íhlutun yfirvalda sé til bóta. Hugsanlega eru aðrar leiðir betri til að styrkja stöðu þeirra sem verst standa. Þá er öll orðræða í þá átt að leigusalar séu gróðrapungar afar ósmekkleg og líklegast í langflestum tilfellum ósanngjörn (hér er auðvitað ekki átt við frumvarpið heldur þá orðræðu sem oft er notuð til réttlætingar slíkri lagasetningu). Oftast er um að ræða venjulegt fólk sem með dugnaði hefur komið sér upp auka húsnæðiseiningu til fjárfestingar, tekjuöflunar á leigumarkaði, fyrir afkomandur sína o.s.frv. Það hlýtur að vera þessu fólki í sjálfsvald sett hvaða verð þeir vilja fá fyrir eignir sínar - er það ekki eðlilegur hluti af frelsi þeirra til að fara með sínar eigur? Þeir sem hafa verið í stöðu leigusala þekkja líka sumir á eigin skinni og aðrir sem betur fer aðeins að afspurn að það þarf ekki nema einn slæman leigjanda til að þurrka út tekjur ársins - og jafnvel til margra ára. Í þessu samhengi er líka rétt að minnast þess að eignarrétturinn er friðhelgur skv. stjórnarskrá en í 72. gr. segir: "Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir." Hér má velta fyrir sér hvort um eignaupptöku sé að ræða af hálfu yfirvalda ef þessi lög taka gildi? Stjórnarskráin leyfir slíkt ef almannahagsmunir kalla á - og það má sjálfsagt færa rök fyrir því að slæm staða leigjenda á markaði séu slíkir almannahagsmunir - en þá ættu yfirvöld að bæta leigusölum tjón þeirra. Er reiknað með því að slíkt verði gert? Það er hæpið. Hér þarf því að gæta þess að yfirvöld opni ekki á málsóknir frá leigusölum sem telja sig hlunnfarna. Markmiðin eru göfug hér en ekki er víst að löggjöf sé rétta leiðin að markmiðunum. Kapp er best með forsjá. bk Sigurður E. Jóhannesson
- #4Hagstofa Íslands
Sjá meðfylgjandi skrá
- #5Sigurður Orri Hafþórsson
Góðan dag. Sjá má umsögn Húseigendafélagsins í viðhengi. F.h. Húseigendafélagsins, Sigurður Orri Hafþórsson.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.