Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-155/2023 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Áform um breytingu á 15. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á 15. gr. barnaverndarlaga varðandi kostnaðarhugtök ákvæðisins.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: mars); 154. þing (áætlað: mars).

Á síðastliðnum árum hefur komu umsækjenda um alþjóðlega vernd samkvæmt lögum um útlendinga nr. 80/2016 fjölgað umtalsvert. Samhliða þeirri þróun hefur fjölgað málum þeirra barna sem fá þjónustu samkvæmt barnaverndarlögum. Vegna fjölgunar á þessum málum er þörf á að skilgreina og skýra betur þann kostnað sem ríkissjóður skal endurgreiða barnaverndarþjónustum vegna þjónustu þeirra við þennan hóp barna skv. 15. gr. barnaverndarlaga. Annars vegar er um að ræða börn sem ekki hafa fasta búsetu hér á landi og fjallað er um í 5. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga en hins vegar börn sem eru hér á landi án forsjáraðila og hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á Íslandi, sbr. 6. mgr. ákvæðisins. Markmiðið er að tryggja fullnægjandi þjónustu barnaverndarþjónustu við tiltekinn hóp barna og að skýra heimildir ríkissjóðs til að endurgreiða sveitarfélögum ákveðinn kostnað. Til stendur að breyta ákvæði 5. og 6. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga þannig að ekki verði lengur vísað til greiðslna ríkissjóðs vegna „útlagðs kostnaðar“ hvað varðar börn sem eru ekki með fasta búsetu hérlendis líkt og gert er í ákvæðinu. Í stað þess verði ríkissjóði veitt svigrúm til að mæta betur þeim kostnaði sem af þessum málum hlýst svo ákvæðið nái yfir annan kostnað barnaverndarþjónustu. Barnaverndarþjónustum ber að tryggja að réttindi og þarfir umræddra barna séu uppfylltar, m.a. hvað varðar að tryggja öruggt búsetuúrræði og virkni í samfélaginu. Ekki er gert ráð fyrir að hrófla við reglugerðarheimild ákvæðisins og stefnt er að því að reglur um kostnað sem ríkissjóður endurgreiðir verði frekar útfærðar í reglugerð.

S-155/2023· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. ágú. 2023 – 11. sep. 2023· 1 umsögn

Áform um breytingu á 15. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á 15. gr. barnaverndarlaga varðandi kostnaðarhugtök ákvæðisins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-155/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. september 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 629)
Niðurstöður samráðs (21. september 2023)

Ein umsögn barst um áformaskjalið sem verður tekin til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps. Þegar það frumvarp liggur fyrir verður það sett í Samráðsgátt og gefinn kostur á athugasemdum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-155/2023: Áform um breytingu á 15. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 · Alviti