Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, lögum um mannvirki og lögum um brunavarnir
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum til eflingar á brunavörnum og öryggi fólks sem hefur fasta búsetu í atvinnuhúsnæði.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-201/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 29. október 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 542)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. desember 2023)
Frumvarp þetta var lagt fram á 154. löggjafarþingi og var samþykkt sem lög á Alþingi laugardaginn 16. desember 2023. Í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu er fjallað um niðurstöður samráðs.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
- #1Ingibjörg Daníelsdóttir
Sú breyting sem hér er kynnt er eflaust til bóta en ástæða er til að minna á aðra þætti sem snúa að skráningu heimilis. Skráningin "ótilgreint í hús" er líka notuð gagnvart fólki sem býr í svokölluðu frístundahúsnæði (húsnæði sem þó uppfyllir allar kröfur um heilsárs búsetu) en þessi skráning sýnist mér hvorki gagnast yfirvöldum til að halda utan um búsetu fólks né heldur því fólki sem er skráð á þennan hátt. Samkvæmt lögum er lögheimili sá staður þar sem einstaklingur hefur fasta búsetu en miðað við núverandi fyrirkomulag eru svo aðrar reglur sem koma í veg fyrir að margt fólk eigi þess k… Lesa alla
Sú breyting sem hér er kynnt er eflaust til bóta en ástæða er til að minna á aðra þætti sem snúa að skráningu heimilis. Skráningin "ótilgreint í hús" er líka notuð gagnvart fólki sem býr í svokölluðu frístundahúsnæði (húsnæði sem þó uppfyllir allar kröfur um heilsárs búsetu) en þessi skráning sýnist mér hvorki gagnast yfirvöldum til að halda utan um búsetu fólks né heldur því fólki sem er skráð á þennan hátt. Samkvæmt lögum er lögheimili sá staður þar sem einstaklingur hefur fasta búsetu en miðað við núverandi fyrirkomulag eru svo aðrar reglur sem koma í veg fyrir að margt fólk eigi þess kost að hlíta þeim lögum jafnvel þótt það hafi fasta búsetu í óaðfinnanlegu húsnæði. Sem dæmi um óhagræði fólks sem býr við þessar aðstæður má nefna að öryrkjar missa rétt sinn til heimilisuppbótar frá TR nema sanna með vottorði tvisvar á ári að þeir búi einir. Nokkuð sem fólki væri ekki gert skylt ef húsnæðið væri "viðurkennt sem lögheimili". Ég átta mig á að sveitarfélög séu hikandi við að skuldbinda sig til aukinnar þjónustu í sumarbústaðahverfum, sinna snjómokstri, skólaakstri eða reglubundinni sorphirðu frá hverju og einu húsi. En einföld heimilisskráning Þjóðskrár ætti að vera möguleg án þess að leggja slíkar kvaðir á sveitarfélögin. Óneitanlega er mikilvægt að fólk fái að vera einhvers staðar skráð – og helst þar sem það á heima. Vel mætti hugsa sér ólíka flokka íbúðarhúsnæðis út frá kröfum um þjónustu þannig að fólki sé gert kleift að skrá rétt heimili, sé húsnæðinu á engan hátt ábótavant.
- #2Svanhvít Vatnsdal Jóhannsdóttir
Umsögn við Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, lögum um mannvirki og lögum um brunavarnir. I. KAFLI Breyting á lögum um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018. Í 1. gr segir: „Einstaklingar sem skráðir eru til lögheimilis í sveitarfélagi án tilgreinds heimilisfangs er heimilt að skrá aðsetur í atvinnuhúsnæði.“ Að mati umsagnaraðila vantar í frumvarpið skilgreiningu á hvað telst vera „óleyfisbúseta.“ Óleyfisbúseta fer fram á fleiri stöðum en í atvinnuhúsnæði, sem dæmi í geymslum fjölbýlishúsa, án samþykkis annarra íbúðareigenda við ótrygg skilyrði fyrir alla.… Lesa alla
Umsögn við Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, lögum um mannvirki og lögum um brunavarnir. I. KAFLI Breyting á lögum um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018. Í 1. gr segir: „Einstaklingar sem skráðir eru til lögheimilis í sveitarfélagi án tilgreinds heimilisfangs er heimilt að skrá aðsetur í atvinnuhúsnæði.“ Að mati umsagnaraðila vantar í frumvarpið skilgreiningu á hvað telst vera „óleyfisbúseta.“ Óleyfisbúseta fer fram á fleiri stöðum en í atvinnuhúsnæði, sem dæmi í geymslum fjölbýlishúsa, án samþykkis annarra íbúðareigenda við ótrygg skilyrði fyrir alla. III. KAFLI Breyting á lögum um brunavarnir nr. 75/2000 9. gr segir: Á eftir orðunum „skv. a. lið 1. mgr.“ í 3. mgr. kemur: við eftirlit með búsetu í atvinnuhúsnæði... Í þennan kafla vantar að mati umsagnaraðila að bæta við annars konar óleyfisbúsetu. Það mætti gera með þessum hætti:„við eftirlit með búsetu í atvinnuhúsnæði og/eða annars konar óleyfishúsnæði...“ Í greinargerð með frumvarpinu segir: 10. Óleyfisbúseta verði kortlögð með ítarlegum hætti. Hér mætti tilgreina hvar og hvernig tilkynnt er um óleyfisbúsetu.
- #3Samtök fjármálafyrirtækja
Góðan dag. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja. Virðingarfyllst, Margrét Arnheiður Jónsdóttir, lögfræðingur
- #4Öryrkjabandalag Íslands
Umsögn ÖBÍ - réttindasamtaka um frumvarp til laga um breytingu á lögum um lögheimili og aðsetur, lögum um mannvirki og lögum um brunavarnir, mál nr. 201/2023.
- #5Alþýðusamband Íslands
Virðulegur viðtakandi, Meðfylgjandi er umsögn Alþýðusambands Íslands um mál nr. 201/2023. f.h. ASÍ, Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Aleksandra Leonardsdóttir
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.