Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-252/2023 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998

Lagt er til að styrkja heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs til að viðhafa markvissara eftirlit með fiskverði og stytta málsmeðferðartíma hjá úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Hlutverk Verðlagsstofu skiptaverðs er að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlutum eins og nánar er kveðið á um í lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998. Til að Verðlagsstofa geti rækt hlutverk sitt með markvissari hætti, m.a. með tilliti til nýrra kjarasamninga, er nauðsynlegt að skýra betur heimildir stofunnar til aðgangs að upplýsingum frá öðrum stjórnvöldum, til að útfæra áhættumiðað samtímaeftirlit með fiskverði og stytta málsmeðferðartíma hjá úrskurðarnefnd.

S-252/2023· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. des. 2023 – 15. des. 2023· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998

Lagt er til að styrkja heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs til að viðhafa markvissara eftirlit með fiskverði og stytta málsmeðferðartíma hjá úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-252/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. desember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 847)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. nóvember 2024)

Þrjár umsagnir bárust í samráðsgátt um áform um lagasetningu. Drög að frumvarpi voru svo birt í samráðsgátt í málum nr. 2/2024 og nr. 36/2024. Frumvarp varð að hluta til að lögum nr. 82/2024, en ákvæði um stafrænt aðgengi upplýsinga var fellt út.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Kári Jónsson
    Verðlagsstofa skiptaverð varð úrelt fyrirbæri um leið og fyrsti fiskmarkaðurinn (Faxamarkaður) varð staðreynd á Íslandi (1986) að sjómenn skuli sætta sig við arðránið er óskiljanlegt, að stjórnvöld skuli að eigin frumkvæði ekki stoppa þetta er sömuleiðis óskiljanlegt. Ekkert tryggir betur hæstaverð á fiski upp úr sjó fyrir útgerð/sjómenn/bæjarfélög og ríkissjóð heldur en sala á öllum fiski á fiskmarkaði verði staðreynd tafarlaust, ekkert tryggir betur gegnsæi fiskverðs en fiskmarkaðurinn, þess vegna legg ég til að verðlagsstofa skiptaverðs verði aflögð og tryggt með lögum að allur fiskur verði… Lesa alla

    Verðlagsstofa skiptaverð varð úrelt fyrirbæri um leið og fyrsti fiskmarkaðurinn (Faxamarkaður) varð staðreynd á Íslandi (1986) að sjómenn skuli sætta sig við arðránið er óskiljanlegt, að stjórnvöld skuli að eigin frumkvæði ekki stoppa þetta er sömuleiðis óskiljanlegt. Ekkert tryggir betur hæstaverð á fiski upp úr sjó fyrir útgerð/sjómenn/bæjarfélög og ríkissjóð heldur en sala á öllum fiski á fiskmarkaði verði staðreynd tafarlaust, ekkert tryggir betur gegnsæi fiskverðs en fiskmarkaðurinn, þess vegna legg ég til að verðlagsstofa skiptaverðs verði aflögð og tryggt með lögum að allur fiskur verði seldur á fiskmarkaði. Bestu kveðjur Kári Jónsson Suðurnesjabæ.

  • #2Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS)

    Meðfylgjandi er umsögn SFS

  • #3Árni Sverrisson

    Meðfylgjandi er umsögn FS, SSÍ og VM

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-252/2023: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998 · Alviti