Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um inngildandi menntun.
Ekki komið til Alþingis
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: september).
Í frumvarpinu er lagt til að sett verði heildarlög um inngildandi menntun barna og ungmenna í leik-, grunn- og framhaldsskólum og frístundastarfi, og skipulag þjónustu við inngildandi menntun.
Í frumvarpinu er kveðið á um að í leik-, grunn- og framhaldsskólum og frístundastarfi skuli fara fram inngildandi menntun og um rétt barna og ungmenna til þess. Inngildandi menntun felur m.a. í sér heildstætt skipulag kennslu, starfshátta og stuðningsúrræða í skóla- og frístundastarfi, eftir eðli og umfangi þarfa hvers barns og ungmennis. Það byggir á þverfaglegri teymisvinnu, markvissu símati og hagnýtingu gagna til að auka skilvirkni, efla gæði starfs og styðja við farsæla skólagöngu allra barna og ungmenna. Gert er ráð fyrir að inntak inngildandi menntunar verði útfært nánar í reglugerð.
Þá er í frumvarpinu lagt til að kveða á um rétt barna og ungmenna til inngildandi menntunar, þ. á m. um rétt barna, ungmenna og foreldra til að óska eftir því að þörfum barns og ungmennis sé mætt og í hvaða farveg beina skal slíkum beiðnum. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir því nýmæli að gera áætlun um inngildandi menntun fyrir börn og ungmenni þegar þörf er á.
Með frumvarpinu er einnig lagt til að útfæra, samræma og lögbinda þjónustu við inngildandi menntun í skóla- og frístundastarfi með það að markmiði að efla stuðning við börn og ungmenni, foreldra og starfsfólk skóla og frístundastarfs. Meginefni frumvarpsins snýr að skipulagi og verkefnum þjónustu við inngildandi menntun en þar á meðal er mikil áhersla á samstarf og samþættingu. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að framkvæmd og inntak þjónustunnar verði útfærð nánar í reglugerð. Með frumvarpinu er lagt til að þjónustan verði þrískipt:
1. Innri skólaþjónusta sem er innra stoðkerfi skóla- og frístundastarfs á vettvangi viðkomandi skóla og er liður í daglegu starfi þess.
2. Ytri skólaþjónusta sem er ytra stoðkerfi skóla- og frístundastarfs og er ætlað að vera faglegur stuðningur, annars vegar sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og frístundastarf, og hins vegar ríkis við framhaldsskóla. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu verður falið að veita ytri skólaþjónustu við framhaldsskóla. Ytri skólaþjónusta felur m.a. í sér ráðgjöf til starfsfólks skóla við kennslu- og starfshætti, starfsþróun og samstarf heimila og skóla, ráðgjöf til barna, ungmenna og foreldra, auk mats á þáttum sem hafa áhrif á nám, líðan og velferð barna eða ungmenna í skóla- og frístundastarfi.
3. Landsstuðningur við skólaþjónustu sem er miðlægur samræmdur stuðningur nýrrar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu þvert á skólastig og um land allt. Stuðningurinn felur m.a. í sér að styðja við og samhæfa fagleg vinnubrögð skólaþjónustu á ólíkum skólastigum, styðja við starfsþróun, skólaþróun og ferli stöðugra umbóta í skólum og veita ráðgjöf og leiðsögn í málefnum barna og ungmenna sem eru í viðkvæmri stöðu í skólakerfinu.
Þá er lagt til að eftirlit með innri og ytri skólaþjónustu verði hjá ráðuneytinu ásamt því að beina skal kvörtunum og ábendingum um aðra framkvæmd laganna til ráðuneytisins.
Í samræmi við framangreint eru lagðar til viðeigandi breytingar á lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla, lögum um framhaldsskóla, lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Að lokum er lagt til í ákvæðum til bráðabirgða að ráðist verði í þrjú afmörkuð verkefni í tengslum við gildistöku laganna. Í fyrsta lagi er það verkefni sem snýr almennt að innleiðingu laganna, í öðru lagi skal taka umgjörð eftirlits þjónustunnar til endurskoðunar á innleiðingartímabilinu og í þriðja lagi að heilbrigðisráðuneytið, í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið, skoði með nánari hætti fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við skólakerfið.
S-60/2024· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2024 – 12. mar. 2024· 24 umsagnir
Frumvarp til laga um inngildandi menntun
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um inngildandi menntun.
Komið sæl
Ég heiti Kristín og hef starfað sem grunnskólakennari í tuttugu og fimm ár í Fjallabyggð. Í dag starfa ég sem sérkennari eftir að hafa klárað meistaranám í sérkennslufræðum. Ég hef mikla reynslu við almenna kennslu sérstaklega í raungreinum. Í dag er ég í leiðtoganámi í læsi og félagi í félagi læsisfræðinga. Ég tók þátt í samráðinu á síðasta skólaári og fannst gott að láta gott af mér leiða til að auka farsæld barna í skólastarfi. Þess vegna bíð ég mig fram aftur í áframhaldandi samráði.
Með fyrir fram þökk
Kv Kristín Brynhildur
Sérkennari við grunnskóla
Fjallabyggðar
Eitt eru fögur fyrirheit í reglum en annað er veruleikinn.
Í dag er biðtími leikskólabarns eftir talmeinafræðingi allt að þremur árum, bið eftir greiningu einhver ár og leikskóla er stundum lokað vegna manneklu.
Dagljóst er að ef tilgreind þjónusta á að standa til boða þá verður að fjármagna hana þannig að hún sé a.m.k. viðunandi eða að forgangsraða í versta falli.
Skortur á starfsfólki og sérfræðingum er ekki "náttúrulögmál" heldur þarf að gera nám og störf eftirsóknarverð. s.s. með einföldun og aðlögun náms að aðstæðum nemenda með styrkjum og sérstökum stuðningi og að vinnuaðstaða,…Lesa alla
Eitt eru fögur fyrirheit í reglum en annað er veruleikinn.
Í dag er biðtími leikskólabarns eftir talmeinafræðingi allt að þremur árum, bið eftir greiningu einhver ár og leikskóla er stundum lokað vegna manneklu.
Dagljóst er að ef tilgreind þjónusta á að standa til boða þá verður að fjármagna hana þannig að hún sé a.m.k. viðunandi eða að forgangsraða í versta falli.
Skortur á starfsfólki og sérfræðingum er ekki "náttúrulögmál" heldur þarf að gera nám og störf eftirsóknarverð. s.s. með einföldun og aðlögun náms að aðstæðum nemenda með styrkjum og sérstökum stuðningi og að vinnuaðstaða, vinnuálag og launakjör skapi eftirsókn í störf.
Skortur á leikskólaplássum, starfsfólki, sérfræðingum og fjármagni til málaflokksins á ekki að vera vandi foreldra og barna heldur verkefni stjórnvalda til úrlausnar.
Það að mismuna foreldrum leikskólabarna eftir aðstæðum þeirra til að stytta viðverutíma barna í leikskólum til sparnaðar er ekki boðleg leið þótt betur settir foreldrar efnalega og/eða félagslega kætist yfir gjaldfrelsi en verr settir bera á móti aukinn kostnað.
Æskileg meiri samvera foreldra og barna á að vera lögbundin fjölskyldustefna ríkis og vinnumarkaðar með áherslu á þá verr settu efnalega og félagslega sem eru einkum einstæðir foreldrar og þarna mætti líta til Svíþjóðar.
#6Gunnlaugur Auðunn Júlíusson
Góðan dag.
Eftir að hafa lesið frumvarpið yfir þá vekur það athygli að lögbundið kostnaðarmat er ekki lagt fram með frumvarpinu.
Því vakna eftirfarandi spurningar við yfirlestur þessa yfirgripsmikla frumvarps:
1. Hvað kostar innleiðing, og síðan árleg framkvæmd frumvarpsins, verði það óbreytt að lögum?
2. Hvernig verður kostnaðarskipting fyrrgreindra atriða milli ríkis og sveitarfélaga?
Virðingarfyllst
Gunnlaugur Auðunn Júlíusson, MSc í fjármálastjórnun sveitarfélaga
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)