Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka o.fl.)
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Með frumvarpinu er lagðar til ýmsar breytingar á lögunum, m.a. um eldisgjald.
Á 151. löggjafarþingi var mælt fyrir frumvarpi til breytinga á hafnalögum sem náði ekki fram að ganga. Frumvarpið hafði að geyma sum þeirra ákvæða sem finna má í frumvarpi þessu, þ. á m. um eldisgjald og heimild til rafrænnar vöktunar í höfnu. Jafnframt hafði frumvarpið að geyma ákvæði til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2017/352 um að setja ramma um veitingu hafnarþjónustu og um sameiginlegar reglur um gagnsæi í fjármálum fyrir hafnir í íslenskan rétt. Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að skipta efni þess frumvarps í tvennt, annars vegar þetta frumvarp og hins vegar frumvarp til innleiðingar á reglum sem leiða af EES-samningnum (sem mælt hefur verið fyrir á Alþingi – sjá 712. mál á 153. lögþ.).
Með frumvarpi þessu eru eftirfarandi breytingartillögur gerðar:
- Í fyrsta lagi lagt til að í hafnarreglugerð verði mælt fyrir um afmörkun tiltekinna hafnarsvæða, þ.e. þjónustusvæði, skipulagssvæði skv. 1. mgr. 5. gr., hafnarsvæði farþegaskipa, siglingasvæði og mengunarlögsaga. Eru jafnframt lagðar til skilgreiningar á þjónustusvæði, hafnarsvæði farþegaskipa og siglingasvæði.
- Í öðru lagi er lagt til að ákveðin verkefni verði færð frá Samgöngustofu til Vegagerðinnar.
- Í þriðja lagi er lagt til að lagt til að hafnalög mæli fyrir um rafræna vöktun í höfnum.
- Þá er í fjórða lagi lagt til nýtt ákvæði um eldisgjald, þ.e. gjald sem tekið er fyrir eldisfisk í sjókvíum, þar með talin eldisseiði, sem umskipað er, lestaður er eða losaður í höfnum.
- Í fimmta lagi er lagt til að gjaldskrárákvarðanir hafna verði kæranlegar til Samgöngustofu.
- Í sjötta lagi er lagt til að ákvæði laga um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, um hafnsögu verði færð í hafnalög.
- Í sjöunda lagi er lagt til að Samgöngustofa hafi heimild til að mæla fyrir um aðgangsbann.
- Í áttunda lagi er lagt til að hafnir og aðrir aðilar, sem annast fermingu og affermingu búlkaskipa, skuli tilkynna Samgöngustofu um þá starfsemi.
- Loks er í níunda lagi lagt til að Landhelgisgæsla Íslands hafi heimild til að ákveða að skip skuli halda til skipaafdreps.
S-37/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 21. feb. 2023 – 6. mar. 2023· 8 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka o.fl.)
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Með frumvarpinu er lagðar til ýmsar breytingar á lögunum, m.a. um eldisgjald.
Góðan dag
Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga við drög að frumvarpi til hafnalaga.
f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga
Flosi H. Sigurðsson
Góðan dag,
Í viðhengi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka o.fl.)
Með góðum kveðjum
F.h. SAF
Gunnar Valur
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)