Útlendingalög (alþjóðleg vernd)
Dómsmálaráðuneytið óskar umsagna um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-236/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 1. desember 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 722)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
- #1Jón Frímann Jónsson
Lagabreytingar sem skerða réttindi fólks sem sækir um vernd á Íslandi eru alltaf og verða alltaf í andstöðu við alþjóðlega sáttmála Sameinuðu Þjóðanna, Mannréttinda Sáttmála Evrópu og fleiri alþjóðlega samninga og sáttmála. Þessi öfga-hægri stefna í þessum málaflokki til þess að draga athyglina frá stórfelldri vanhæfni í sjálfstæðisflokknum og allri ríkisstjórninni er til háborinnar skammar og ætti ekki að líðast í íslenskum stjórnmálum. Ef fólk ræður ekki við það starf sem það hefur valið sér, þá ætti það að finna sér eitthvað annað að gera en ekki taka út vanhæfnina á varnarlausu fólki se… Lesa alla
Lagabreytingar sem skerða réttindi fólks sem sækir um vernd á Íslandi eru alltaf og verða alltaf í andstöðu við alþjóðlega sáttmála Sameinuðu Þjóðanna, Mannréttinda Sáttmála Evrópu og fleiri alþjóðlega samninga og sáttmála. Þessi öfga-hægri stefna í þessum málaflokki til þess að draga athyglina frá stórfelldri vanhæfni í sjálfstæðisflokknum og allri ríkisstjórninni er til háborinnar skammar og ætti ekki að líðast í íslenskum stjórnmálum. Ef fólk ræður ekki við það starf sem það hefur valið sér, þá ætti það að finna sér eitthvað annað að gera en ekki taka út vanhæfnina á varnarlausu fólki sem er að flýja ofsóknir morðóðra stjórnvalda í alræðisríkjum, þar sem mótmæli og að segja frá skoðunum sem eru stjórnvöldum eru alltaf dauðadómur eða ávísun á áreiti sem varir allt lífið. Síðan er allt fólki að sem er að flýja ýmis stríð sem eru núna í heiminum. Verndun mannlífs ætti að vera helsta markmið allra laga og það er ekki markmiðið hérna. Útlendingalög eins og þau eru í dag á Íslandi hafa það að markmiði að valda þjáningum og koma illa fram við fólk sem er nú þegar réttindalaust með öllu. Slíkt á aldrei að líða. Dómsmálaráðherra ætti að gera íslendingum þann greiða og segja sig frá embætti án tafar.
- #2Benedikt Páll Jónsson
Ég tel að þessi breyting sé löngu tímabær og skýrari rammi gerir öllum gott.
- #3Andri Eiríksson
Það er mikil þörf á þessum breytingum. Þótt það sé kaldrifjað og birtist þeim sem lengst sitja til vinstri sem eintóm illmennska, þá er kominn tími til að grisja mun þéttar úr þeim fjölda sem hingað vill koma.
- #4Svavar Kjarrval Lúthersson
Þar sem kaflinn um samræmi við stjórnarskrár og alþjóðlegar skuldbindingar minnast ekki á Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þá vil ég minna á 11. gr., 2. mgr. 14. gr., 1. mgr. 18. gr. og fleiri greinar sem við gætu átt eftir atvikum. Frumvarpsvinnan ætti að fara fram í samstarfi við samtök fatlaðs fólks, sbr. 1. mgr. 32. gr. samningsins.
- #5Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um útlendingalög (alþjóðleg vernd)
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.