Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-166/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur (sameining Náttúrufræðistofnunar Ísl., Landmælinga Ísl. og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn

Frv. um sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Ramý er ætlað að styrkja og einfalda starfsemi þessara stofnana og efla starfsstöðvar á landsbyggðinni.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Frumvarpinu er ætlað að styrkja og einfalda starfsemi Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mývatn (Ramý), stuðla að frekari þekkingaruppbyggingu og nýsköpun og efla starfsstöðvar á landsbyggðinni. Um er að ræða hluta af áformum um endurskipulagningu stofnana ráðuneytisins þar sem gert er ráð fyrir að til verði þrjár öflugar stofnanir í stað átta. Áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í maí 2023, mál nr. 103/2023. Frumvarpið felur í sér breytingu á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, þar sem gert er ráð fyrir að Náttúrufræðistofnun yfirtaki réttindi og skyldur Landmælinga Íslands og RAMÝ. Gert er ráð fyrir að við sameininguna verði starfsfólk Landmælinga og RAMÝ hluti af hinni sameinuðu stofnunun og er jafnframt lagt til að heiti stofnunarinnar verði framvegis Náttúrufræðistofnun. Með sameiningunni eru ekki lagðar til breytingar á lögbundnum verkefnum stofnananna, heldur eru eingöngu lagðar til lagabreytingar sem þörf er á til samræmis vegna sameiningarinnar. Lagt er til að fagráð skv. lögum um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu verði lagt af sökum þess að sá tilgangur þess að viðhalda tengslum náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Náttúrufræðistofnun Ísland, Hafrannsóknarstofnun og Háskóla Íslands auk sveitarfélagsins, verði ekki fyrir hendi eftir sameininguna. Einnig verði felld niður ákvæði um sérstök setur með sjálfstæðan fjárhag og er það til samræmis við ábendingar Ríkisendurskoðunar, en setrafyrirkomulagið hefur þegar verið lagt af í framkvæmd. Verði sameiningin að veruleika mun fjöldi starfsfólks í sameinaðri stofnun verða alls 72, sem áfram starfi á núverandi starfsstöðvum stofnananna í Garðabæ, Akranesi, Akureyri, Mývatni og Breiðdalsvík. Gert er ráð fyrir að Náttúrufræðistofnun taki 1. janúar 2024 við hlutverki, verkefnum, réttindum og skyldum, eignum og skuldbindingum Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.

S-166/2023· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. sep. 2023 – 2. okt. 2023· 8 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur (sameining Náttúrufræðistofnunar Ísl., Landmælinga Ísl. og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn

Frv. um sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Ramý er ætlað að styrkja og einfalda starfsemi þessara stofnana og efla starfsstöðvar á landsbyggðinni.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-166/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. október 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 479)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. nóvember 2025)

Frumvarp til laga um Náttúrufræðistofnun var lagt fram á Alþingi 10. nóvember 2023. Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 14. maí 2024 og ný sameinuð stofnun tók til starfa 1. júlí 2024. Um niðurstöður samráðs vísast í 5. kafla greinargerðar frumvarpsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-166/2023: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur (sameining Náttúrufræðistofnunar Ísl., Landmælinga Ísl. og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn · Alviti