Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum um opinberar stofnanir (framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits)
Lagt er til að breytt verði 1. mgr. 4. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði og 3. gr. laga nr. 112/2015, um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-262/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 15. janúar 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (26. janúar 2024)
Umsagnir bárust frá einum aðila, Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna þar sem komu fram ábendingar um tiltekin formsatriði til að leiðrétta í mati á áhrifum lagasetningar. Engar efnislegar athugasemdir voru gerðar við áformaskjölin. Ráðuneytið gerði leiðréttingar á skjalinu Mat á áhrifum lagasetningar í samræmi við ábendingar Hafrannsóknastofnunar við vinnslu og frágang endanlegs mats á áhrifum frumvarpsins. Drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum um opinberar stofnanir (framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits) verða birt á samráðsgátt.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Þorsteinn Sigurðsson
Hafrannsóknastofnun gerir ekki athugasemdir við áform um breytingar á lögum nr. 61/2006 né 3. gr. Laga nr. 112/2015. Stofnunin vekur athygli á tveimur atriðum sem finna má í mati á áhrifum lagasetningar þætti C2. Undir tölulið 1, áhrif á fyrirtækjaeftirlit og reglubyrði kemur fram að þær breytingar sem lagðar eru til munu falla undir það eftirlit sem Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun hafa nú þegar á sviði ferskvatnsmála og sjávarútvegs og hafa því ekki í för með sér aukna reglubyrði. Framangreint á við um Fiskistofu en ljóst að fyrirhuguð breyting á lögum nr. 61/2006 mun ekki hafa áhrif á s… Lesa alla
Hafrannsóknastofnun gerir ekki athugasemdir við áform um breytingar á lögum nr. 61/2006 né 3. gr. Laga nr. 112/2015. Stofnunin vekur athygli á tveimur atriðum sem finna má í mati á áhrifum lagasetningar þætti C2. Undir tölulið 1, áhrif á fyrirtækjaeftirlit og reglubyrði kemur fram að þær breytingar sem lagðar eru til munu falla undir það eftirlit sem Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun hafa nú þegar á sviði ferskvatnsmála og sjávarútvegs og hafa því ekki í för með sér aukna reglubyrði. Framangreint á við um Fiskistofu en ljóst að fyrirhuguð breyting á lögum nr. 61/2006 mun ekki hafa áhrif á starfsemi Hafrannsóknastofnunar sem sinnir rannsóknum og ráðgjöf en ekki eftirliti. Undir tölulið 2, samkeppnisskilyrði er sagt að verið sé að jafna tækifæri strandveiðibáta á mismunandi landsvæðum til sóknar. Vandséð er hvernig umræddar lagabreytingar hafa áhrif þar á. F.h. Hafrannsóknastofnunar, Þorsteinn Sigurðsson Forstjóri
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.