Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (aflvísir)
Frumvarpið leggur til breytingu á 5. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, sem ætlað er að ýta undir breytingar á fiskiskipum með það að markmiði að draga úr olíunotkun þeirra.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-198/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. nóvember 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 538)
Niðurstöður samráðs (1. desember 2022)
Í umsögnum komu m.a. fram áhyggjur af því að stærri skip með trolli gætu veitt innan 12 sjómílna. Einnig kom fram ánægja með efni og markmið frumvarpsins. Frumvarpið getur sannarlega leitt til þess að stærri skip gætu veitt innan 12 sjómílna. Á sama tíma fer fram yfirgripsmikil vinna að því að skilgreina viðkvæm hafsvæði og botnvistkerfi sem njóta eiga verndar gagnvart veiðarfærum sem snerta botninn. Ekki er talið að frumvarpið leiði til röskunar á viðkvæmum svæðum en það leiðir hins vegar til þess að kolefnisspor fiskveiða getur lækkað.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Daði Hjálmarsson
Ég tel að þessar breytingar leiði til þess að meira verður veitt með trolli innan 12 mílna og veitt verður með tveimur trollum samtímis. Þetta mun leiða til mikils skaða fyrir lífríki og hrygningarstaði botnsfisks við Ísland. Þetta mun leiða til ásóknar að stærri skip megi í framtíðinni veiða líka innan 12 mílna enda yrði eftir breytingu sömu vélar í þessum skipum og eru nú í stærstu togurum á landinu. Útum allan heim eru ónýt fiskimið þar sem trollveiðar hafa verið óheftar. Þess má einnig geta að veiðar með dragnót (sem nefnd er í þessu frumvarpi) er aðeins möguleg á mjúkum botni (leir… Lesa alla
Ég tel að þessar breytingar leiði til þess að meira verður veitt með trolli innan 12 mílna og veitt verður með tveimur trollum samtímis. Þetta mun leiða til mikils skaða fyrir lífríki og hrygningarstaði botnsfisks við Ísland. Þetta mun leiða til ásóknar að stærri skip megi í framtíðinni veiða líka innan 12 mílna enda yrði eftir breytingu sömu vélar í þessum skipum og eru nú í stærstu togurum á landinu. Útum allan heim eru ónýt fiskimið þar sem trollveiðar hafa verið óheftar. Þess má einnig geta að veiðar með dragnót (sem nefnd er í þessu frumvarpi) er aðeins möguleg á mjúkum botni (leir og sand). Troll veiðar eru mögulegar á öllum botnum og er ég hræddur um að auknar trollveiðar muni eyðileggja kóralsvæði, þaraskóga og hraunbotna og þar með hrygningar og uppeldissvæði botnfiska. Það er ekki að ástæðulausu að trollveiði ætti að vera fyrir utan 12 mílur og það var einhver sátt á sínum tíma að leyfa einhverjum minni og afl litlum bátum að stunda trollveiðar fyrir innan 12 mílna. Að auka þær heimidlir eru aðeins skaðlegar umhverfinu.
- #2Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
- #3Landssamband smábátaeigenda
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.