Áform um breytingu á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta nr. 129/2009 og lögum um vörugjald á ökutækjum, eldsneyti o.fl. nr. 29/1993
Breytingar á lögum um umhverfis - og auðlindaskatta auk breytinga á lögum um vörugjöld á ökutæki, eldsneyti o.fl. (Kolefnisgjald og vörugjöld á bensíni).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-225/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. nóvember 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (2. janúar 2024)
Lagðar voru til hækkanir á fjárhæðum kolefnisgjalds auk lækkunar á almennu vörugjaldi af bensíni m.a vegna fyrirhugaðra breytinga á skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Til stóð að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta auk lögum um vörugjald á ökutæki, eldsneyti o.fl. á 154. löggjafarþingi 2023-2024. Það náði ekki fram að ganga en fyrirhugað er að leggja frumvarpið fram á vorþingi 2024.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
- #1Kolbrún Bjargmundsdóttir
“Kerfisbreytingin dregur einnig úr líkum á að innflytjendur eldsneytis til Íslands þurfi að kaupa loftslagsheimildir í nýju evrópsku viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS2) vegna upptöku þess í EES-samninginn. “ Hvaða steypa er þetta? Ég vil vera með í lestinni. Vil að keyptar séu loftlagsheimildir. Það er ástæða fyrir þessum heimildum… við eigum ekki að vera finna leiðir til að vera ekki með… Lesa alla
“Kerfisbreytingin dregur einnig úr líkum á að innflytjendur eldsneytis til Íslands þurfi að kaupa loftslagsheimildir í nýju evrópsku viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS2) vegna upptöku þess í EES-samninginn. “ Hvaða steypa er þetta? Ég vil vera með í lestinni. Vil að keyptar séu loftlagsheimildir. Það er ástæða fyrir þessum heimildum… við eigum ekki að vera finna leiðir til að vera ekki með…
- #2Daniel Þór Duch Gunnarsson
Virðast vera að refsa díselbíla eigendum fyrir að keyra bílum sem eyða minna eldsneyti. Nema það eigi að lækka vegagjöld á móti til að sporna við auknum útgjöldum heimilanna. Sé þetta bitna langmest á landsbyggðinni í þessari útfærslu.
- #3Hrafn Aðalsteinn Ágústsson
Vildi senda inn athugasemd ofnagreindra lagabretinga. Hefur verið metinn sá verðbólguhvetjandi þáttur sem hækkun á dísel hefði? Nær allir vöruflutningar eru knúnir af dísel og því hefði aukin álagningar á dísel áhirf á meira minna allt vöruverð í landinu. Allt frá dagvöru yfir í húsbyggingar og útflutnings. Lællandi álögur á dísel hefðu því verðbólgulækkandi áhrif alls staðar í hagkerfinu Undiritaður er rekstrarfræðingur í eigin rekstri, Hrafn Ágústsson
- #4Sigurjón Þ Guðmundsson
Þetta er hreinn landsbyggðinaskattur og bitnar mest á fólki sem býr lengst frá Reykjavík.Allar samgöngur eru á Díselolíu þar að leiðandi hækka allar vörur útá land hefur ekkert með mengun að gera bara veriði að ná peningum af landsbyggðinni.
- #5Aðalsteinn Hákonarson
Ef það er raunverulegur vilji ríkisstjórnarinnar að kveða niður verðbólguna þá er hækkun á díselolíu aðgerð sem leiðir til hins gagnstæða. Ísland er framleiðsluland og flutningar eru gríðarlega stór þáttur í framleiðslu- og dreifingarkostnaði. Það er ekki hægt að mæla áhrifin sem hækkun á verði olíu í vísitölunni eins og jafnan er gert því að flutningar eru nánast hluti af allri verðmyndun vöru og þjónustu og margföldunaráhrifin munu dreifast út um allt samfélagið á löngum tíma.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.