Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-192/2022 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013 (losun úrgangs í náttúrunni)

Í frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um náttúruvernd.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember); 154. þing (áætlað: október).

Í lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd er að finna ákvæði um að almenningi sé heimil för um landið í lögmætum tilgangi en að þeim rétti fylgi skylda til að ganga vel um náttúru landsins. Úrlausnarefnið er að kveða skýrar á um að í þeirri skyldu felist bann við að losa úrgang í náttúrunni. Ekki er kveðið á um meðhöndlun úrgangs í lögum nr. 60/2013 en í lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs er kveðið á um bann við losun úrgangs annars staðar en á móttökustöð eða í sorpílát. Í varnaðarskyni og til nánari skýringa er lagt til að tilgreint verði sérstaklega í lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd að óheimilt sé að losa úrgang í náttúrunni og að um meðferð slíks úrgangs fari eftir lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

S-192/2022· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. okt. 2022 – 26. okt. 2022· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013 (losun úrgangs í náttúrunni)

Í frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um náttúruvernd.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-192/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 26. október 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 912)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. apríl 2023)

Ein umsögn við frumvarpið barst innan umsagnarfrests frá NASF á Íslandi. Umsögnin lýtur að úrgangi sem hlýst af sjó¬kvía¬eldi og verður tekin til nánari skoðunar í ráðuneytinu. Umsögnin varðar ekki efni frum¬varps¬ins með beinum hætti. Þá barst ráðuneytinu einnig umsögn Umhverfisstofnunar en í henni kemur fram að stofnunin sé sammála markmiði frumvarpsins um að skýra betur skyldur al¬mennings og upplýsa um að bannað sé að losa sig við úrgang í náttúrunni. Umhverfisstofnun telur að ekki sé rétt að bæta ákvæði um bann við losun úrgangs í náttúrunni við 1. mgr. 17. gr. laga um náttúruvernd eins o

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-192/2022: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013 (losun úrgangs í náttúrunni) · Alviti