Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-147/2023 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins

Áformað er að útbúa frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins sem felur í sér heildarendurskoðun á lögum um skipan opinberra framkvæmda.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: mars); 154. þing (áætlað: október).

Áformað er að útbúa frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins sem felur í sér heildarendurskoðun á gildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda. Í frumvarpinu verða gerðar breytingar á markmiðum og gildissviði til þannig að frumvarpið nái með heilstæðum yfir fjárfestingar á vegum ríkisins óháð því hvort um sé að ræða byggingar, mannvirki, tæki, búnað eða óefnislegar eignir. Í frumvarpinu verða ábyrgðarskil milli þeirra aðila sem koma að ákvöðunum um fjárfestingar gerðar skýrari og skilvirkari. Einnig verða sett sérstök ákvæði um stefnumörkun á þessu sviði og áætlanir um opinberar fjárfestingar til lengri og skemmri tíma til að styrkja grundvöll ákvarðana og forgangsröðun verkefna. Í frumvarpinu verður kveðið á um verkefnastjórnsýslu og ákveðna þrepaskiptingu við undirbúning fjárfestinga til að uppfylla markmið um vandaðan og gagnsæjan undirbúning. Önnur úrræði en lagasetning þykja koma ekki til álita til hægt sé að ná fram þeim breytingum sem áformuðum eru á núgildandi regluverki. Talið er nauðsynlegt að tryggja skýra og samræmda málsmeðferð við fjárfestingar ríkisins, hvort sem um er að ræða nýframkvæmdir hefðbundinna mannvirkja, vegagerð, hugbúnaðarkaup eða kaup á sérhæfðum tækjum. Umræddar breytingar taka mið af áherslum Fjármálaráðs og leiðbeiningar OECD um að samræmd umgjörð gildi um fjárfestingarákvarðanir hins opinbera og fjármögnun þeirra. Við endurskoðun gildandi laga þarf að tryggja að fjárfestingar lúti skýrum markmiðum, séu vandlega undirbúnar og standist viðmið um góða verkefnastjórnsýslu. Þá er einnig mikilvægt að framkvæmd stefnumörkunar og skuldbindinga sé gagnsæ, hagkvæm, skilvirk og með viðeigandi ábyrgð.

S-147/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. ágú. 2023 – 30. ágú. 2023· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins

Áformað er að útbúa frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins sem felur í sér heildarendurskoðun á lögum um skipan opinberra framkvæmda.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-147/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (27. september 2023)

Engar athugasemdir bárust um áform að lagasetningu. Haldið verður áfram með málið og unnin verða drög að frumvarpi sem kynnt verða í samráðsgátt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-147/2023: Áform um frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins · Alviti