Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-35/2024 · Heilbrigðisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingar á lögum um sjúkratryggingar

Lagðar eru til ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar, svo sem um vinnsluheimildir Sjúkratrygginga og að stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: mars).

Meginefni frumvarpsins lýtur að eftirfarandi þáttum: • Skýra betur skyldu sjúkratryggingastofnunar um að byggja ákvörðunartöku og stefnumótum á gagnreyndri meðferð og faglegu og hagrænu mati. • Stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu eftir flutning til landsins. • Veita sjúkratryggingastofnuninni skýrari heimildir til að taka ákvörðun um hvort einstaklingur sé sjúkratryggður hér á landi á grundvelli búsetu. • Festa í lög greiðsluþátttöku vegna biðtíma. • Breytingar á greiðslum sjúkrahúsa vegna sjúkraflutnings án innlagnar. • Skýrari ákvæði um skráningu upplýsinga í miðlægan lyfjagreiðslugrunn og miðlægan heilbrigðisþjónustugrunn og innleiða öryggisráðstafanir til að tryggja vernd persónuupplýsinga og upplýsingaöryggi hjá sjúkratryggingastofnuninni og viðsemjendum stofnunarinnar. • Greiðsluþátttaka vegna veikinda og slysa utan Evrópska efnahagssvæðisins takmörkuð við námsmenn. • Hugtakanotkun breytt, t.a.m. er hugtakinu „bætur“ breytt í „réttindagreiðslur“. • Ítarlegri skilgreiningar á tilgangi gagnaúrvinnslu og vinnsluheimildum sjúkratryggingastofnunarinnar. • Ákvæði um einstaklingsbundna greiðsluþátttöku vegna lyfja (lyfjaskírteini) uppfærð í samræmi við framkvæmd sem var innleidd með greiðsluþátttökukerfi lyfja. • Lögfesta framkvæmd um útreikning og greiðslur til heilsugæslna á grundvelli fjármögnunarlíkana. • Ákvæði um að gögn í tengslum við samningaviðræður verði ekki afhent fyrr en að viðræðum loknum. Að öðru leyti vísast til umfjöllunar í drögum.

S-35/2024· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. feb. 2024 – 23. feb. 2024· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingar á lögum um sjúkratryggingar

Lagðar eru til ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar, svo sem um vinnsluheimildir Sjúkratrygginga og að stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-35/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. febrúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 908)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. júlí 2024)

Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Verður endurflutt á nýju þingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-35/2024: Frumvarp til laga um breytingar á lögum um sjúkratryggingar · Alviti