Drög að þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028
Utanríkisráðuneytið óskar eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra hagaðila um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-135/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 484)
Niðurstöður samráðs (9. október 2023)
Alls bárust 6 umsagnir við drög að þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028. Umsagnir og svör ráðuneytisins voru birtar í samráðsgátt 9. október 2023.
- Drög að þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands
- Umsagnir og svör ráðuneytisins
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Mary Frances Davidson
Efni: Umsögn Sjávarútvegsskóla GRÓ (GRÓ-FTP) um þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028 Utanríkisráðuneytið hefur óskað eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra hagaðila um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028. Sjávarútvegsskóli GRÓ fagnar því og þakkar fyrir að hafa fengið að taka þátt í samráðsfundi sem haldinn var 2. maí sl. um mótun þeirrar þingsályktunar sem hér er til umsagnar. Að mati skólans er hún metnaðarfull og myndar ágætan ramma fyrir áframhaldandi starf á fyrirliggjandi grunni. Í henni kemur m.a. f… Lesa alla
Efni: Umsögn Sjávarútvegsskóla GRÓ (GRÓ-FTP) um þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028 Utanríkisráðuneytið hefur óskað eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra hagaðila um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028. Sjávarútvegsskóli GRÓ fagnar því og þakkar fyrir að hafa fengið að taka þátt í samráðsfundi sem haldinn var 2. maí sl. um mótun þeirrar þingsályktunar sem hér er til umsagnar. Að mati skólans er hún metnaðarfull og myndar ágætan ramma fyrir áframhaldandi starf á fyrirliggjandi grunni. Í henni kemur m.a. fram viðurkenning á mikilvægi sjávarútvegs og sjálfbærri nýtingu hafa og vatna í þróunarsamvinnu Íslands, svo og á framlagi Sjávarútvegsskólans við útfærslu og framkvæmd. Skólinn vill þó koma áframfæri einni ábendingu: Í ályktuninni bls. 6, lið IV. „GRÓ — Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu“ er vísað til niðurstöðu jafningjarýni þróunarsamvinnunefndar OECD frá því á síðasta ári. Niðurstöður úttektarinnar eru mikilvægar og nauðsynlegt að allir hagaðilar í þróunarsamstarfinu bregðast við þeim með viðunandi hætti sem fyrst. Að mati Sjávarútvegsskólans er það hins vegar óæskilegt að vísa beint til úttektar OECD/DAC í ályktuninni sjálfri, þ.e. í vegvísi (stefnu) stjórnvalda, sem ætlað er að standa allt til ársins 2028. Hætt er við að það myndi leiða til þess að áætlunin standist illa tímans tönn og að draga muni úr gagnsemi hennar, með hverri nýrri úttekt sem framkvæmd verður á næstu misserum og árum. Betur færi á því að einskorða þingsályktunina sjálfa við skýra langtímasýn, þ.e. málefni sem sýnt er að unnið verður að meira og minna á öllum gildistíma hennar. Virðingarfyllst f.h. Sjávarútvegsskóla GRÓ
- #2Unicef Ísland
Umsögn landsnefndar UNICEF á Íslandi má finna í hjálögðu skjali.
- #3Ingimar Guðni Haraldsson
Umsögn Jarðhitaskóla GRÓ um þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028 Utanríkisráðuneytið hefur lagt fram drög að þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028 og óskað eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra hagaðila. Jarðhitaskólinn hefur leikið stórt hlutverk í þróunarsamvinnu Íslands um nærri hálfrar aldar skeið og hafa fastir starfsmenn skólans, Guðni Axelsson forstöðumaður, Ingimar G. Haraldsson aðstoðarforstöðumaður og Málfríður Ómarsdóttir verkefnisstjóri, lesið drögin yfir. Umsögn þessi er send í… Lesa alla
Umsögn Jarðhitaskóla GRÓ um þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028 Utanríkisráðuneytið hefur lagt fram drög að þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028 og óskað eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra hagaðila. Jarðhitaskólinn hefur leikið stórt hlutverk í þróunarsamvinnu Íslands um nærri hálfrar aldar skeið og hafa fastir starfsmenn skólans, Guðni Axelsson forstöðumaður, Ingimar G. Haraldsson aðstoðarforstöðumaður og Málfríður Ómarsdóttir verkefnisstjóri, lesið drögin yfir. Umsögn þessi er send í nafni þeirra. Stefnan sem drögin lýsa er metnaðarfull og gerir ráð fyrir verulegri aukningu í fjárframlögum á tímabilinu 2024 – 2028. Jarðhitaskólinn fagnar því og lýsir sig reiðubúinn að taka þátt í þeirri vinnu sem það kallar á. Grunnstarfsemi Jarðhitaskólans felst í 6-mánaða þjálfun hóps nemenda frá þróunarlöndum í flestum þáttum jarðhitarannsókna og nýtingar. Auk þess styður skólinn nokkra fyrrverandi 6-mánaða nema til framhaldsnáms í jarðhitafræðum við háskóla á Íslandi árlega, heldur námskeið á vettvangi í þróunarlöndum og styður við nokkur lengri þjálfunarprógrömm utan Íslands. Niðurstöður ýmissa úttekta og eftirfylgni Jarðhitaskólans með fyrrum nemendum og þróun í þeirra heimalöndum hafa staðfest mikla gagnsemi allra þátta þjálfunarinnar. Jarðhitaskólinn er tilbúinn að takast á við þá eflingu starfseminnar sem þingsályktunartillögudrögin benda til að geti orðið á næstu árum, bæði þjálfunina hér á landi og starfsemina á vettvangi. Skólinn hefur lengi stefnt að því að efla það síðarnefnda auk þess að hafa aðeins reynt fyrir sér með netnámskeiðum. Við viljum þó gera þá athugasemd við þingsályktunartillögudrögin og viðkomandi greinargerð að þar er mikið vísað til jafningjarýni þróunarsamvinnunefndar OECD frá 2022. Við teljum ekki síður mikilvægt að hafa í huga niðurstöður annarra úttekta sem hafa verið gerðar á starfsemi GRÓ-skólanna, þ.á.m. Jarðhitaskólans. Þær hafa að öllu jöfnu verið mjög jákvæðar hvað varðar gagnsemi starfsemi Jarðhitaskólans. Við viljum sérstaklega nefna umfjöllun um GRÓ á bls.18 – 19, en þar er m.a. vísað í þá niðurstöðu jafningjarýninnar að þjálfun nema á Íslandi sé kostnaðarsöm. Hér verður að hafa í huga niðurstöður annarra úttekta, sem hafa staðfest mikla gagnsemi þessa fyrirkomulags og að hún sé kostnaðarins virði, þ.á.m. niðurstöður úttektar á framhaldsnámsstuðningi GRÓ skólanna, sem er nýlokið. Auk þess má nefna að setning um miðbik bls. 19 sem segir „Í rýniskýrslunni er umgjörð starfsins sögð orðin betri með tilkomu GRÓ …“ byggir á ónákvæmri þýðingu (þ.e. “Since Iceland’s scholarship and training programmes became the GRÓ Centre for Sustainable Development in January 2020, the overall approach has become more structured.”). Rétt þýðing væri „Í rýniskýrslunni er umgjörð starfsins sögð orðin skipulagðari með tilkomu GRÓ“. F.h. Jarðhitaskóla GRÓ Guðni Axelsson / Starfsfólk Jarðhitaskóla
- #4Rauði krossinn á Íslandi
Góðan dag, Rauði krossinn á Íslandi sendir inn umsögn um drög að þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024 - 2028 fyrir hönd frjálsra félagasamtaka í þróunarsamvinnu þ.e. Barnaheill - Save the Children á Íslandi, SOS Barnaþorpin á Íslandi og Rauða krossinn á Íslandi.
- #5Landssamtökin Þroskahjálp
Sjá meðfylgjandi skjal.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.