Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-78/2023 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Slit og uppgjör ÍL-sjóðs

Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að mæla fyrir um skipulögð slit og uppgjör ÍL-sjóðs með hagfelldri niðurstöðu fyrir þá sem hafa hagsmuna að gæta.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

ÍL-sjóður var stofnaður með lögum nr. 151/2019 í árslok 2019 með það að markmiði að lágmarka áhættu ríkissjóðs í tengslum við úrvinnslu og uppgjör á uppsöfnuðum fjárhagsvanda forvera hans Íbúðalánasjóðs. Var ÍL-sjóður þá færður undir yfirstjórn fjármála- og efnahagsráðuneytisins en Íbúðalánasjóður hafði verið í umsjón félagsmálaráðuneytisins. Í október 2022 lagði fjármála- og efnahagsráðherra fyrir Alþingi skýrslu um stöðu sjóðsins í samræmi við áskilnað 3. gr. laganna. Tilgangur skýrslunnar var að upplýsa Alþingi um úrvinnslu eigna og skulda sjóðsins með sviðsmyndum um mögulega þróun til næstu áratuga, sem gera ráð fyrir viðvarandi taprekstri, og möguleg áhrif á ríkissjóð í ljósi einfaldrar ábyrgðar á skuldum sjóðsins, einkum svonefndra íbúðabréfa. Í einfaldri ábyrgð samkvæmt skilmálum verðbréfanna felst að ríkissjóður tryggir endurgreiðslur á höfuðstól skulda, auk áfallinna vaxta og verðbóta til uppgjörsdags, eins og nánar er rakið í skýrslunni. Niðurstaða greiningarinnar í skýrslunni er að ÍL-sjóður muni fyrirsjáanlega ekki geta staðið undir öllum skuldbindingum sínum á gjalddaga og sé því í reynd orðinn ógjaldfær. Með skýrslu ráðherra var stigið fyrsta skrefið til þess að Alþingi taki afstöðu til þess hvernig brugðist verði við þessari stöðu mála. Í framhaldi af því er í þessu skjali gerð grein fyrir áformum um að leggja fyrir Alþingi lagafrumvarp um slit ÍL-sjóðs og uppgjör á hinni einföldu ríkisábyrgð vegna sjóðsins ásamt ráðstöfunum við úrvinnsluna í þágu lögfestra markmiða um að lágmarka áhættu og kostnað ríkissjóðs. Tilgangurinn með áformaðri lagasetningu er að fjallað verði um og tekið á fyrirliggjandi gjaldþroti ÍL-sjóðs með fyrirhyggju og skipulegum aðgerðum á þann hátt að eigendur skuldabréfa sjóðsins, sem eru að langmestu leyti langtíma fagfjárfestar, hafi góða möguleika á að verða jafn eða betur settir miðað við að ríkissjóður efni þá einföldu ríkisábyrgð sem kveðið er á um í skilmálum skuldabréfanna. Samhliða því verði án frekari dráttar komið í veg fyrir að vegna aðgerðaleysis stjórnvalda myndist án lagastoðar gríðarlegar viðbótarskuldbindingar sem kröfur á ríkissjóð. Þannig verði vaxandi vanda ekki velt áfram til framtíðar heldur leyst úr honum tímanlega áður en í óefni er komið. Reynslan sýnir að það er farsælasta leiðin að tryggja sjálfbærni opinberra fjármála þannig að þau geti mildað ágjöf og mætt skakkaföllum sem hætt er við að samfélagið þurfi að geta staðið af sér annað slagið.

S-78/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. mar. 2023 – 12. maí 2023· 9 umsagnir

Slit og uppgjör ÍL-sjóðs

Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að mæla fyrir um skipulögð slit og uppgjör ÍL-sjóðs með hagfelldri niðurstöðu fyrir þá sem hafa hagsmuna að gæta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-78/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. maí 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (3. nóvember 2023)

Viðbrögð við ábendingum og athugasemdum sem bárust eru reifuð í meðfylgjandi niðurstöðuskjali. Hliðsjón var höfð af sjónarmiðum sem sett voru fram við áframhaldandi vinnslu málsins. Drög að frumvarpi hafa verið lögð fram til samráðs í samráðsgátt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-78/2023: Slit og uppgjör ÍL-sjóðs · Alviti