Sameining héraðsdómstóla
Með frumvarpinu er lagt til að átta héraðsdómstólar landsins verði sameinaðir í einn dómstól sem verði með starfsstöðvar þar sem héraðsdómstólarnir eru nú staðsettir.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-29/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. febrúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (9. maí 2023)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 23. mars 2023. Í greinargerð er gerð grein fyrir umsögnum um málið.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Marinó Gunnar Njálsson
Ágætu viðtakendur Við lestur tillögunnar í samráðgáttinni, þá vekur það athygli mína, að gefa á talsvert frjálsræði við val á þeim stað sem mál verður rekið. Ég veit að Evrópuréttur er túlkaður á mismunandi hátt, þegar kemur að neytendarétti, á Íslandi og af Dómstól Evrópusambandsins (CJEU), en CJEU hefur lagt á það áherslu og raunar sett ofan í við landsdómstóla þegar því hefur ekki verið fylgt, að neytandi eigi rétt á því að mál gegn honum sé rekið í hans heimabyggð eða sem næst henni. Hvet ég til þess, að texta lagabreytinganna verði breytt þannig, að þessi réttur neytandans verði vi… Lesa alla
Ágætu viðtakendur Við lestur tillögunnar í samráðgáttinni, þá vekur það athygli mína, að gefa á talsvert frjálsræði við val á þeim stað sem mál verður rekið. Ég veit að Evrópuréttur er túlkaður á mismunandi hátt, þegar kemur að neytendarétti, á Íslandi og af Dómstól Evrópusambandsins (CJEU), en CJEU hefur lagt á það áherslu og raunar sett ofan í við landsdómstóla þegar því hefur ekki verið fylgt, að neytandi eigi rétt á því að mál gegn honum sé rekið í hans heimabyggð eða sem næst henni. Hvet ég til þess, að texta lagabreytinganna verði breytt þannig, að þessi réttur neytandans verði virtur. Virðingarfyllst Marinó G. Njálsson Fróðaþingi 3 203 Kópavogur
- #2Ólafur Björnsson
Undirritaður vill leggja áherslu á að við sameiningu héraðsdómsstólanna verði leitast við að tryggja að starfsmenn dómstólanna búi á því svæði sem starfstöðin er. Annars er er margt gott í þessu frumvarpi, m.a. að hægt sé að taka fyrir mál, þar sem málið er rekið. Með kveðju, Ólafur Björnsson hrl.
- #3Skagafjörður
Á 35. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 15. febrúar 2023 var tekið fyrir mál til samráðs nr. 29/2023 „Sameining héraðsdómstóla“ og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar skýrslu starfshóps dómsmálaráðherra um sameiningu héraðsdómstóla og er sammála þeirri tillögu sem er að finna í skýrslunni um að nauðsynlegt sé að efla starfsemi héraðsdómstóls/-stóla á núverandi starfsstöðvum, þ.á.m. Sauðárkróki, og að staðsetning þeirra verði lögfest. Jafnframt að lögfest verði að þrír starfsmenn verði að lágmarki starfandi á hverri starfsstöð, þar af að minnsta kosti tveir héraðsdó… Lesa alla
Á 35. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 15. febrúar 2023 var tekið fyrir mál til samráðs nr. 29/2023 „Sameining héraðsdómstóla“ og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar skýrslu starfshóps dómsmálaráðherra um sameiningu héraðsdómstóla og er sammála þeirri tillögu sem er að finna í skýrslunni um að nauðsynlegt sé að efla starfsemi héraðsdómstóls/-stóla á núverandi starfsstöðvum, þ.á.m. Sauðárkróki, og að staðsetning þeirra verði lögfest. Jafnframt að lögfest verði að þrír starfsmenn verði að lágmarki starfandi á hverri starfsstöð, þar af að minnsta kosti tveir héraðsdómarar eða einn héraðsdómari og einn dómarafulltrúi, sem skapa ætti enn betra faglegt umhverfi hjá héraðsdómi. Hins vegar þarf að gæta að því að mögulegar breytingar leiði ekki til verri þjónustu við borgara landsins eða að of mikil sérhæfing myndi leiða til þess að áhuginn á því að starfa á einstökum starfsstöðvum á landsbyggðunum myndi dvína. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #4Stjórn Dómarafélags Íslands
Vísað er til draga að lagafrumvarpi um sameiningu héraðsdómstólanna sem birtist í samráðsgátt stjórnvalda 10. febrúar sl. Af hálfu Dómarafélags Íslands er vakin athygli á því að verði þær breytingar, sem lagðar eru til í frumvarpsdrögunum, að lögum yrði þar um að ræða stærstu breytingu á skipan héraðsdómstólanna í rúmlega 30 ára sögu þeirra. Komi til þess að ráðherra leggi fram á Alþingi frumvarp um slíka sameiningu mun félagið fjalla nánar um málið og skila umsögn um það. Dómarafélagið bendir á að dómstólar hafa sérstaka stöðu samkvæmt 2. gr. og ákvæðum V. kafla stjórnarskrárinnar. Því er m… Lesa alla
Vísað er til draga að lagafrumvarpi um sameiningu héraðsdómstólanna sem birtist í samráðsgátt stjórnvalda 10. febrúar sl. Af hálfu Dómarafélags Íslands er vakin athygli á því að verði þær breytingar, sem lagðar eru til í frumvarpsdrögunum, að lögum yrði þar um að ræða stærstu breytingu á skipan héraðsdómstólanna í rúmlega 30 ára sögu þeirra. Komi til þess að ráðherra leggi fram á Alþingi frumvarp um slíka sameiningu mun félagið fjalla nánar um málið og skila umsögn um það. Dómarafélagið bendir á að dómstólar hafa sérstaka stöðu samkvæmt 2. gr. og ákvæðum V. kafla stjórnarskrárinnar. Því er mikilvægt að hafa að leiðarljósi við skipulagsbreytingar af þessum toga að þær ógni ekki stjórnskipulegu sjálfstæði dómstóla, bæði sem stofnana svo og sjálfstæði einstaka dómara í störfum sínum. Þótt frumvarpsdrögin feli í sér grundvallarbreytingar á skipulagi héraðsdómstóla í landinu verður ekki séð að í undirbúningnum hafi verið metið sérstaklega hvort og þá hvaða áhrif slík nýskipan hefur mögulega á sjálfstæði dómstóla þar á meðal starfskjör dómara og hvernig er tryggt að breytingarnar standist þær kröfur sem leiddar verða af ákvæðum stjórnarskrárinnar og alþjóðasamninga í þessum efnum. Dómarafélagið telur mikilvægt að slík vinna fari fram komi til þess að frumvarp byggt á fyrirliggjandi drögum verði lagt fram á Alþingi, enda er löggjafanum nauðsynlegt að geta metið breytingar út frá þessum fyrirmælum stjórnarskrárinnar. Virðingarfyllst, Stjórn Dómarafélags Íslands
- #5Ingimar Ingason
Dómsmálaráðuneyti Samráðsgátt Reykjavík, 20. febrúar 2023 Efni: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um dómstóla nr. 50/2016 (sameining héraðsdómstólanna). Laganefnd Lögmannafélags Íslands (LMFÍ) fagnar þeim breytingum sem frumvarpsdrögin bera með sér. Telur laganefnd að þær efnisbreytingar sem þau fela í sér séu til þess fallnar að styrkja málsmeðferð á héraðsdómsstiginu og auka skilvirkni í dómskerfinu. Sérstök áhersla er lögð á það af hálfu Laganefndar að 1. gr. frumvarpsins, sem verði að 3. gr. dómstólalaga, standi óhögguð. Í 1. mgr. er sagt til um 8 starfsstöðv… Lesa alla
Dómsmálaráðuneyti Samráðsgátt Reykjavík, 20. febrúar 2023 Efni: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um dómstóla nr. 50/2016 (sameining héraðsdómstólanna). Laganefnd Lögmannafélags Íslands (LMFÍ) fagnar þeim breytingum sem frumvarpsdrögin bera með sér. Telur laganefnd að þær efnisbreytingar sem þau fela í sér séu til þess fallnar að styrkja málsmeðferð á héraðsdómsstiginu og auka skilvirkni í dómskerfinu. Sérstök áhersla er lögð á það af hálfu Laganefndar að 1. gr. frumvarpsins, sem verði að 3. gr. dómstólalaga, standi óhögguð. Í 1. mgr. er sagt til um 8 starfsstöðvar héraðsdómsins um allt landið og auk þess í 3. mgr. að ávallt skuli starfa að lágmarki þrír starfsmenn á hverri starfsstöð, þar af tveir löglærðir. Að mati Laganefndar er mikilvægt að styrkja starfsstöðvarnar í sessi með fyrrgreindri lagasetningu og kveða þar með niður þann orðróm að sameining héraðsdómsstólanna verði til þess að dómstólar á landsbyggðinni leggist af. Starfsstöðvar á landsbyggðinni eru að mati Laganefndar mikilvægar fyrir réttindi almennings um greiðan aðgang að dómstólum, en einnig ber að líta til þess að án starfsstöðva héraðsdóms á landsbyggðinni munu lögfræðingar ekki geta átt þess kost að fá starf við hæfi í tengslum við dómstólakerfið utan höfuðborgarsvæðisins. Á það sérstaklega við um lögfræðinga sem hafa aflað sér málflutningsréttinda, þ.e. lögmenn. Laganefnd fagnar því einnig að með frumvarpinu verði starfsstöðvarnar efldar með aukningu á störfum löglærðra á starfsstöðvum. Eins og staðan er í dag eru í þremur dómstólum á landsbyggðinni einungis starfandi einn löglærður einstaklingur (dómari) ásamt ritara og/eða öðru starfsfólki. Má ætla að faglegt starf dómstólanna muni eflast með því að dómari fái sér við hlið annan dómara eða eftir atvikum dómarafulltrúa eins og fyrirhuguð lagabreyting ber með sér. Laganefnd vekur athygli á b-lið 11. gr. frumvarpsins, sem breytir 33. gr. dómstólalaganna. Í fyrrgreindu ákvæði er dómstjóra fengið óskorað vald til að úthluta málum til dómara óháð starfsstöð og óháð aðseturs dómara. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að slík úthlutun sé ein af lykilforsendum þess ávinnings sem vænta megi af sameiningu dómstólanna í einn, m.a. til að jafna vinnuálag hjá dómurum o.fl. Laganefnd bendir á að úthlutun mála til dómara varðar ekki einvörðungu dómarana sjálfa eða dómstólinn, heldur ekki síður aðila þess, málflytjendur og saksækjendur. Þó það horfi til hægðarauka fyrir dómstólinn að reka mál t.d. á starfsstöð utan höfuðborgarsvæðisins þrátt fyrir að varnarþingið sé þar, þá má staðhæfa að það sé ekki til hægðarauka fyrir lögmann sem hefur starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu. Í það minnsta verði þá að haldast í hendur við slíka úthlutun óskoruð heimild til að taka mál fyrir rafrænt eða að lögmenn fái útlagðan ferðakostnað greiddan úr ríkissjóði. Með vísan til framangreinds vill Laganefnd þannig leggja til að í b-lið 11. gr. frumvarpsins verði gert ráð fyrir meginreglum um úthlutunina og að Dómstólasýslunni verði falið að setja nánari reglur. Í öllu falli telur Laganefnd að meta verði á þessi stigi lagasetningarinnar hvort lögfesta beri vísireglur um úthlutunina og/eða að hvaða leyti Dómstólasýslan kæmi að reglusetningu þar um. Tilgangurinn yrði fyrst og fremst að tryggja samræmi og gagnsæi í úthlutun mála af hálfu hins nýja héraðsdóms. Laganefnd vill að lokum gera athugasemd við ákvæði 13. gr. frumvarpsins, sem breytir 36. gr. dómstólalaga. Í 2. mgr. er gert ráð fyrir nýrri reglu um að dómari hafi nokkuð frjálsar hendur með það hvar mál er tekið fyrir, þ.e. á hvaða þingstað. Einu skorðurnar sem settar eru á þá ákvörðun er mat dómarans á því hvar þyki heppilegt að taka málið fyrir. Þó það geti vissulega horft til hægðarauka og tímasparnaðar að hafa sveigjanleika með staðsetningu á fyrirtöku mála, þá telur Laganefnd að reisa verði einhverjar skorður við ákvarðanatöku af þessu tagi af hálfu dómara og lögfesta til hvaða sjónarmiða verði að líta við mat á því hvað teljist heppilegur þingstaður. Má þar nefna að taka verði tillit til búsetu og/eða staðsetningar bæði aðila máls og lögmanna, hvort um sé að ræða umfangsmikið mál eða einfalt, hvort mál verði tekið fyrir rafrænt eða ekki o.s.frv. Laganefnd leggur skv. þessu til að frumvarpið verði skoðað betur. Virðingarfyllst, f.h. laganefndar LMFÍ Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.