Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-83/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarkostir viðbótarlífeyrissparnaðar)

Að vörsluaðilum séreignarsparnaðar verði heimilað að verða við beiðni rétthafa um að iðgjöldum hans verði varið til fjárfestingar í tilteknum sjóði eða sjóðum um sameiginlega fjárfestingu.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs er lögð áhersla á umbætur í lífeyrismálum. Meðal markmiða sáttmálans er að auka við valfrelsi í viðbótarlífeyrissparnaði með fjölgun fjárfestingarkosta. Vörsluaðilar séreignarsparnaðar bjóða einstaklingum nú þegar upp á fjölbreyttar fjárfestingarleiðir þegar kemur að ávöxtun iðgjalda til séreignar. Framboð ávöxtunarleiða fyrir iðgjöld til séreignar er því töluvert auk þess sem einstaklingar velja sjálfir vörsluaðila iðgjaldanna. Einstaklingur hefur því val um til hvaða vörsluaðila iðgjöld hans renna sem og ávöxtunarleið sem vörsluaðili býður upp á. Að öðru leyti hefur rétthafi ekki frekari aðkomu að ákvarðanatöku um fjárfestingu iðgjaldanna. Í tillögum frumvarpsins felst að að rétthafi iðgjaldanna geti haft virkari aðkomu að því hvernig fjárfestingu þeirra er háttað Í frumvarpinu eru lagðar til viðbætur við VII. kafla A. laganna sem tekur til fjárfestingaheimilda og fjárfestingastefnu séreignarsparnaðar. Aðallega er um að ræða tillögur um að vörsluaðilum séreignarsparnaðar verði heimilt að verða við beiðni rétthafa um að iðgjöldum hans til séreignarsparnaðar verði í heild eða að hluta varið til að fjárfesta í tilteknum verðbréfasjóðum (UCITS-sjóðum), sérhæfðum sjóðum og/eða peningamarkssjóðum sem rétthafi velur sjálfur. Lagt er til að um heimildarákvæði til handa vörsluaðila sé að ræða. Því er ekki lögð skylda á vörsluaðila að verða við slíkri beiðni rétthafa bjóði hann ekki upp á slíka fjárfestingarleið. Verði tillagan að lögum tekur hún til framtíðar iðgjalda rétthafa og þegar uppsafnaðs sparnaðar hans að heild eða hluta, sé það vilji rétthafa. Þá er í frumvarpinu lagt til að gert verði að skilyrði að hlutir eða hlutdeildarskírteini í þeim sjóðum sem tillagan tekur til séu innleysanleg á hverju tíma velji rétthafi t.a.m. að gera breytingar á fjárfestingum sínum innan fjárfestingarleiðarinnar, skipta um fjárfestingarleið eða að færa sig á milli vörsluaðila. Einnig er í frumvarpinu lagt til að kveðið verði sérstaklega á um til hvaða iðgjalds til séreignar heimildin tekur.

S-83/2024· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. mar. 2024 – 18. mar. 2024· 10 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarkostir viðbótarlífeyrissparnaðar)

Að vörsluaðilum séreignarsparnaðar verði heimilað að verða við beiðni rétthafa um að iðgjöldum hans verði varið til fjárfestingar í tilteknum sjóði eða sjóðum um sameiginlega fjárfestingu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-83/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. mars 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 916)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. febrúar 2026)

Í nokkrum umsögnum kom fram að breytingar sem frumvarpið fól í sér þyrftu ferkari umræðu. Öllum umsögnum var svarað í samráðskafla frumvarpsins og komið til móts við nokkrar þeirra. Frumvarpið var lagt fram á 154. löggjafarþingi (þskj. 1361, 916. mál) en ekki fram að ganga.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-83/2024: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarkostir viðbótarlífeyrissparnaðar) · Alviti