Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-161/2023 · Dómsmálaráðuneytið

Breyting á lögræðislögum

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögræðislögum í þeim tilgangi að bregðast við ábendingum um atriði sem betur megi fara í lögunum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: febrúar); 154. þing (áætlað: janúar).

Með lögum nr. 84/2015 voru samþykktar nokkrar breytingar á lögræðislögum, nr. 71/1997, sem voru m.a. liður í fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Breytingarnar fólu einnig í sér viðbrögð við tilmælum alþjóðlegra eftirlitsaðila með mannréttindaskuldbindingum Íslands ásamt ábendingum frjálsra félagasamtaka, fagaðila o.fl. um ágalla á lögunum. Eftir gildistöku laganna hefur komið fram nokkur gagnrýni á gildandi lögræðislög þar sem því er m.a. haldið fram að umræddar breytingar hafi ekki gengið nægilega langt og að lögin séu enn ekki í fullu samræmi við þær kröfur sem leiða má af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá hafa komið fram ábendingar um frekari úrbætur í lagaumgjörð frá alþjóðlegum eftirlitsaðilum, umboðsmanni Alþingis og fagaðilum. Hefur m.a. verið bent á að taka þurfi til endurskoðunar efnisleg skilyrði lögræðislaga fyrir nauðungarvistun. Frumvarp það sem hér er birt til samráðs felur ekki í sér heildarendurskoðun á lögunum, heldur er leitast við að gera mikilvægar úrbætur til að bregðast við helstu gagnrýni sem gildandi löggjöf hefur sætt og koma til móts við ábendingar um atriði sem talin eru að betur mættu fara í löggjöfinni. Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu lúta að því að koma til móts við ábendingar um tryggara lagaumhverfi þegar kemur að sviptingu lögræðis og meðferð þeirra mála fyrir dómi, skilyrðum fyrir nauðungarvistun og auknum kröfum um eftirlit yfirlögráðenda. Lagt er til að heimild til lögræðissviptingar geti byggst á geðröskun en ekki geðsjúkdómi eða fötlun sem slíkri. Sömuleiðis er lagt til að skilyrði fyrir nauðungarvistun geti byggst á geðröskun í stað geðsjúkdómi og að heimildin geti auk þess byggst á því að öryggi annarra en hins vistaða sjálfs sé hætta búin. Lögð er til ríkari rannsóknarskylda á dómara í lögræðissviptingarmálum og auknar kröfur gerðar um eftirlit yfirlögráðenda með lögráðamönnum og ráðsmönnum. Þá eru í frumvarpinu lagðar til ýmsar smávægilegar lagfæringar sem tengjast m.a. fyrri breytingu á lögunum, þess efnis að svipting lögræðis getur nú einungis verið tímabundin ásamt því að fjárhæðir sem tengjast skýrslugjöf lögráðamanna og ráðsmanna til yfirlögráðanda hafa verið uppfærðar og samræmdar. Með frumvarpinu er stefnt að því að styrkja réttarstöðu þess viðkvæma hóps sem lögræðislög taka til.

S-161/2023· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 30. ágú. 2023 – 29. sep. 2023· 16 umsagnir

Breyting á lögræðislögum

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögræðislögum í þeim tilgangi að bregðast við ábendingum um atriði sem betur megi fara í lögunum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-161/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. september 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 925)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
  • #1Örn Helgason

    Góðan dag. Útskipting orðsins geðsjúkdómur fyrir orðið geðröskun er engin breyting sem veldur því að þetta stangast á við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta mun valda hugsanlegri fjölgun sjálfræðissviptinga sem gengur gegn sáttmálanum. Það vantar einnig inn ákvæði varðandi tímalengd sviptinga. Það mætti vera þarna ákvæði um hámarkstíma á sjálfræðissviptingum. Ég vonast til að þið takið tillit til þessa og gerið viðeigandi breytingar. Kveðja Örn Helgason

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um fyrirhugaðar breytingar á lögræðislögum. Kv. Flosi H. Sigurðsson

  • #3Gunnar Ármannsson

    Umsögn þessi snýr eingöngu að þeim breytingum sem kynntar eru og varða fyrirætlan um að lögbinda þá skyldu að tvö læknisvottorð þurfi að liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin um sviptingu lögræðis eða nauðungarvistun. • Er sérstök þörf á að lögbinda slíka skyldu? • Er núverandi lagaumhverfi er varðar læknisvottorð ófullnægjandi? • Er raunhæft að setja þá reglu í lög að fyrir hendi séu tvö læknisvottorð frá læknum sem eru fullkomlega óháðir hvor öðrum? Hvað ef þau eru ekki samhljóða? • Er skynsamlegt að lögbinda reglu um útgáfu fleiri læknisvottorða frá því sem nú er?

  • #4Reykjavíkurborg

    Meðfylgjandi er umsögn Reykjavíkurborgar um frumvarp til breytinga á lögræðislögum nr. 71/1997.

  • #5Landssamtökin Þroskahjálp

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-161/2023: Breyting á lögræðislögum · Alviti