Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-141/2023 · Innviðaráðuneytið

Áform um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun

Markmið lagabreytingarinnar er að auka styrkveitingar til minni framleiðenda.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Lög nr. 160/2011 um svæðisbundna flutningsjöfnun tóku gildi 1. janúar 2012 og hafa það markmið að styðja framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði. Byggðastofnun fer með framkvæmd laganna og veitir styrki til framleiðenda á grundvelli úthlutunarreglna sem mælt er fyrir um í lögunum og reglugerð nr. 121/2019 um flutningsjöfnunarstyrki. Í þjónustukönnun innviðaráðuneytisins og stofnana á vegum þess sem fram fór haustið 2022 barst ráðuneytinu ábending um að flutningsjöfnunarstyrkir sem veittir eru á grundvelli laganna væru ekki að skila sér með nægilega sanngjörnum hætti til minni framleiðenda. Ráðuneytið leitaði eftir afstöðu Byggðastofnunar og benti stofnunin á að borið hafi á gagnrýni frá umsækjendum um að lægstu styrkir séu of lágir en þeir sem sækja um lægsta styrkinn eru almennt þeir sem standa höllustum fæti vegna stærðar sinnar. Hætti þeir að sækja um munu styrkfjárhæðir til stærri aðila aukast og samkeppnisstaða minni aðila gagnvart stærri versnar. Í skýrslum Byggðastofnunar hefur jafnframt komið fram að tíu stærstu styrkhafar hafa fengið um og yfir 50% af útgreiddum styrkjum. Lagði Byggðastofnun jafnframt til breytingar á úthlutunarreglum svæðisbundinnar flutningsjöfnunar til að auka styrkveitingar til minni framleiðanda. Tvennskonar breytingar á regluverkinu verða lagðar til: a. Hækkun á endurgreiðsluhlutfalli flutningskostnaðar sem hækka hlutfallslega eftir því sem flutningur vöru eða hrávöru er lengri. Slík breyting myndi fela í sér auknar styrkveitingar fyrir minni framleiðendur. b. Byggðastofnun hefur lækkað endurgreiðsluhlutfall umsókna til þess að fara ekki fram úr fjárheimildum á grundvelli 4. mgr. 6. gr. laga um svæðisbundna flutningsjöfnun og hafa umsækjendur ekki fengið nema 57-67% af samþykktri fjárhæð greidda sl. ár. Byggðastofnun leggur til að engin skerðing á endurgreiðsluhlutfalli verði á öllum umsóknum upp að 1,25% af heildarfjárveitingu hvers árs.

S-141/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 3 umsagnir

Áform um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun

Markmið lagabreytingarinnar er að auka styrkveitingar til minni framleiðenda.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-141/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 450)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. nóvember 2023)

Sjá nánar um niðurstöður samráðs á samtengdu máli - samráð um frumvarp til laga um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-141/2023: Áform um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun · Alviti