Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-163/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002 (hringrásarhagkerfi, umbúðir, ökutæki o.fl.)

Umhverfis,- orku- og lotslagsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum um úrvinnslugjald.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Með lögum nr. 103/2021 sem breyttu m.a. lögum um úrvinnslugjald og tóku að fullu gildi þann 1. janúar sl. og innleiddu tilskipanir Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/850, (ESB) 2018/851, (ESB) 2018/852 og (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019, voru fleiri tegundir umbúða felldar undir framlengda framleiðendaábyrgð en verið hafði fram að því og eru nú allar tegundir umbúða látnar sæta úrvinnslugjaldi. Í núgildandi lögum um úrvinnslugjald er almenna reglan sú að framleiðendur og innflytjendur gefi upp þyngd og tegund umbúða utan um vörur sem fluttar eru inn en í þeim tilvikum þegar staðfestar upplýsingar um umbúðir fást ekki er þeim heimilt að gefa upp meginsöluumbúð viðkomandi vöru og greiða úrvinnslugjald í samræmi við reiknireglur sem koma fram í viðauka XVIII við lögin. Komið hefur í ljós þörf á að bregðast við þeim tilvikum þegar upp koma vandkvæði við álagningu í tilvikum þegar innflytjendur og tollmiðlarar hafa ekki undir höndum upplýsingar um meginsöluumbúð þeirra vara sem þeir flytja inn, líkt og reiknilíkan viðauka XVIII gerir ráð fyrir. Jafnframt hefur reynslan sýnt að nauðsynlegt er að bæta inn tollskrárnúmerum í viðauka XVIII til að ná utan um allar vörur og umbúðir þeirra sem eiga að bera úrvinnslugjald. Reynslan af lögunum er sú að í einhverjum tilvikum sé álagning úrvinnslugjalds á ökutæki með þeim hætti að gjaldið leggist á nýskráðan eiganda ökutækis en ekki innflytjanda. Mikilvægt er að álagningin nái því markmiði sem að var stefnt og því er ætlunin að gera tilteknar breytingar á lögunum, m.a. að kveða skýrar á um gjalddaga og innheimtu gjaldsins. Jafnframt eru lagðar til aðrar minniháttar breytingar s.s. uppfærslur tollskrárnúmera og samræming ákvæða. Umsagnafresti lýkur 18. september nk.

S-163/2023· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. sep. 2023 – 18. sep. 2023· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002 (hringrásarhagkerfi, umbúðir, ökutæki o.fl.)

Umhverfis,- orku- og lotslagsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum um úrvinnslugjald.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-163/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. september 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 924)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. janúar 2026)

Lauk með setningu laga nr. 101/2024

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-163/2023: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002 (hringrásarhagkerfi, umbúðir, ökutæki o.fl.) · Alviti