Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-50/2024 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um breytingar á lögum um opinber innkaup

Áformað er að ráðast í afmarkaðar breytingar á lögum um opinber innkaup.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Um er ræða afmarkaða endurskoðun á tilteknum ákvæðum sem gilda á sviði opinberra innkaupa. Ekki er stefnt að verulegum breytingum á núverandi skyldum og kvöðum sem gilda um opinbera aðila samkvæmt núverandi ramma. Fyrst og fremst er um að ræða endurskoðun á tilteknum ákvæðum til að tryggja samræmda túlkun við EES-rétt og til að þau nái tilætluðum markmiðum. Þá er einnig talin þörf á að endurskoða stofnanaumgjörðina um Ríkiskaup sem er í gildandi lögum.

S-50/2024· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2024 – 6. mar. 2024· 5 umsagnir

Áform um breytingar á lögum um opinber innkaup

Áformað er að ráðast í afmarkaðar breytingar á lögum um opinber innkaup.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-50/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 919)
Niðurstöður samráðs (11. mars 2024)

Áform um frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup var birt í samráðsgátt og var tveggja vikna frestur veittur til að skila umsögnum. Í heildina bárust fimm umsagnir sem voru frá Samtökum iðnaðarins, Viðskiptaráði, Reykjavíkurborg, Consensa og einum einstaklingi. Umsagnirnar voru almennt jákvæðar gagnvart þeim breytingum sem lýst var í áformaskjali og þeim markmiðum sem þeim væri ætlað. Gengið verður frá frumvarpi vegna þeirra breytinga sem þörf er að gera á tilteknum ákvæðum í núgildandi lögum um opinber innkaup og leitast verður við að taka mið af þeim umsögnum sem bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-50/2024: Áform um breytingar á lögum um opinber innkaup · Alviti