Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-172/2022 · Innviðaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október); 154. þing (áætlað: september).

Frumvarpið er samið í innviðaráðuneytinu vegna fyrirhugaðrar innleiðingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/858 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum og eftirvögnum þeirra og á kerfum, íhlutum og aðskildum tæknieiningum sem ætlaðar eru í slík ökutæki, reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1242 um að setja staðla um frammistöðu vegna losunar koltvísýrings fyrir ný, þung ökutæki, reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/956 um vöktun og skýrslugjöf vegna koltvísýringslosunar og eldsneytisnotkunar nýrra þungra ökutækja, reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1054 frá 15. júlí 2020 um lágmarkskröfur um daglegan og vikulegan hámarksaksturstíma, lágmarksvinnuhlé og daglegan og vikulegan hvíldartíma og tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/645 um breytingu á tilskipun 2003/59/EB um grunnþjálfun og reglubundna þjálfun ökumanna tiltekinna ökutækja til vöru- eða farþegaflutninga og á tilskipun ráðsins 2006/126/EB um ökuskírteini. Starfshópur um smáfarartæki skilaði skýrslu í júní síðastliðnum og eru breytingar lagðar til í ljósi tillagna starfshópsins. Umferð smáfarartækja, sérstaklega rafhlaupahjóla, hefur aukist mjög og slys eru algeng. Þessar breytingar á umferðarvenjum hafa leitt til þess að 17% þeirra sem slösuðust alvarlega í umferðinni á síðastliðnu ári voru á rafhlaupahjólum, en umferð þeirra er þó innan við 1% af allri umferð. 42% alvarlega slasaðra í umferðinni á síðasta ári voru gangandi, hjólandi eða á rafhlaupahjóli og stór hluti fyrrgreindra slysa átti sér stað seint á föstudögum eða laugardögum. Ölvun var áberandi hjá þeim sem slösuðust seint þessa daga og samkvæmt könnun höfðu 40% vegfarenda á aldrinum 18 til 24 ára ekið rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Í hópi óvarinna vegfarenda sem slösuðust alvarlega í umferðinni á síðastliðnu ári voru ungmenni áberandi og komu mörg ung börn, allt niður í átta ára gömul á neyðarmóttöku Landsspítalans vegna slysa á rafhlaupahjólum. Framleiðendur mæla almennt fyrir um 14 til 16 ára aldurstakmark til notkunar rafhlaupahjóla sinna en ung börn má sjá á rafhlaupahjólum ætluðum eldri notendum. Þá er með einfaldri breytingu hægt að aka aflmiklum rafhlaupahjólum á mun meiri hraða en þeim er ætlað að ná, svo að þau eiga til dæmis enga samleið með umferð gangandi vegfarenda. Sá samfélagslegi ávinningur sem leitt getur af öruggri notkun rafhlaupahjóla og annarra smáfarartækja er auðséður. Má þar í dæmaskyni nefna samdrátt í koltvísýringslosun, minni umferðarhávaða og umferðartafir en það krefst breytinga á regluverki umferðar. Að lokum eru lagðar til aðrar breytingar, svo sem vegna umferðar á reiðstígum og heimilda ríkisaðila til álagningar og innheimtu stöðugjalda.

S-172/2022· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. sep. 2022 – 6. okt. 2022· 33 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-172/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. október 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 33 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 589)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júlí 2023)

Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 birtist í samráðsgátt 22.09.2022 og var frestur til að skila umsögnum til 06.10.2022. Alls bárust 33 umsagnir. Frumvarpið var lagt fram á 153. löggjafarþingi en varð ekki að lögum. Umfjöllun um niðurstöður samráðs er að finna í greinargerð frumvarpsins á vef Alþingis, sjá hlekk.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (33)
  • #1Bjarni Geir Guðjónsson
    Þó mikikvægt sé að gæta öryggis í umferðinni þá er einnig mikilvægt að aðilar geti notfært sér þá umhverfisvænu fararmáta sem til eru í heiminum. Takmarkanir sem hér er lagt fram ásamt ákvæðum eldri laga gera það að verkum að bæði rafhlaupahjól og einnig rafbifhjól lenda á milli flokka sem gera þau óhæf í flesta notkun. Það sem hér er rætt um á við um fullorðna en ekki börn. Sjálfur á ég hlaupahjól sem kostar 300.000kr og er búið batterý og mótor sem hefur afköst langt umfram það sem þessi lög heimila. Almennt nota ég móturhjólafatnað og fer ekki á hjólið nema með hjálm. Þó 25km/klst er fínt i… Lesa alla

    Þó mikikvægt sé að gæta öryggis í umferðinni þá er einnig mikilvægt að aðilar geti notfært sér þá umhverfisvænu fararmáta sem til eru í heiminum. Takmarkanir sem hér er lagt fram ásamt ákvæðum eldri laga gera það að verkum að bæði rafhlaupahjól og einnig rafbifhjól lenda á milli flokka sem gera þau óhæf í flesta notkun. Það sem hér er rætt um á við um fullorðna en ekki börn. Sjálfur á ég hlaupahjól sem kostar 300.000kr og er búið batterý og mótor sem hefur afköst langt umfram það sem þessi lög heimila. Almennt nota ég móturhjólafatnað og fer ekki á hjólið nema með hjálm. Þó 25km/klst er fínt innanbæjar og á gangstéttum innan um annað fólk þá eru sumar leiðir sem annað hvort bjóða ekki upp á slíkt eða eru svo langar að tíminn sem það tæki að fara á 25 km/klst væri óhóflegur. Sem dæmi má nefna að ekki er almennilegur gangstígur alla leið frá Njarðvík og að Bláa Lóninu/Grindavík og er eina leiðin að ferðast meðfram götunni hluta leiðar. Á íslandi meiga fullorðnir nota reiðhjól án hjálms og fara á þeim hraða sem gata segir til um en rafhlaupahjól má ekki gera hið sama. Hvað gerir reiðhjól svona mikið öruggari umfram rafhlaupahjól? Hvernig stendur á því að hjólreiðamaður má vera á 30,40 jafnvel 50km/klst án hjálms en takmarka þarf rafhlaupahjól við lægri hraða. Af hverju þarf að refsa mér sem fullorðnum aðila sem kýs að nota umhverfisvænan fararmáta því ákveðinn hópur getur ekki nýtt þetta rétt. Þó flestir hjólreiðamenn hegði sér í umferðinni er það þekkt að margir þeirra brjóta reglur hægri vinstri og virða engin umferðalög en engum dettur í hug að banna notkun þeirra. Þó reglur þurfi að vera til staðar til að passa að notkun sé rétt þá eru algildar reglur án undantekninga ekki rétta leiðin. Svipað og létt bifhjól ætti þessum tækjum að vera skipt í tvennt. Annars vegar flokk sem er fyrir börn og hefur strangari reglur varðandi kraft og notkun og hins vegar flokk sem fullorðnir geta fallið undir að uppfylltum kröfum. Slíkt myndi gefa þeim færi á að nýta krafmeiri tegundir sem áheifaríka fararmáta sem einnig eru imhverfisvænir og sparsamir. Sama á við um rafmagnsbifhjól en þau sem eru á markað í dag þurfa að takmarkast við 45km/klst en meiga einnig eingöngu vera á götu. Þetta gerir það að verkum að þrátt fyrir að munur á þessum hjólum og móturhjólum fari síminnkandi þá eru stofnbrautir of hraðar og takmörk á notagildi. Sem dæmi má aftur nefna Njarðvík yfir í Bláa Lónið/Grindavík. Nær öll leiðinn er 90 gata og því aðeins hægt að vera á 50% hraða miðað við aðra umferð. Þó skiljanlega þurfi að flokka þessi hjól á ákveðinn máta þá er enginn leið(amk sem ég hef fundið) til að láta endurflokka slík hjól til að falla undir móturhjólapróf og fjarlægja þennan hraðatakmarkara. Hjól sem eru á markað í dag eru fullfær um að ná 80-90km/klst án breytinga annað en að fjarlægja takmarkara en enginn leið er til að nýta þessa getu. Til að draga saman í eitt þá er mikilvægt að útbúa betri reglur fyrir þennan flokk en það er einnig mikilvægt að gefa aðilum færi á að nýta sér þessi farartæki að fullu jafnvel þó að því fylgi t.d. skráningarskilda og tryggingar. Eldri reglur og þær nýju hafa slæm áhrif á notkunarmöguleika og hindrar fólk í að nýta sér farartæki sem eru bæði sparsöm og umhverfisvæn. Þörf er á skipu kerfi þar sem aðilar geta að uppfylltum kröfum og skilyrðum nýtt sér fulla getu sem þessi tækni veitir.

  • #2Emil Sigursveinsson
    Athugasemd er gerð við 5. grein frumvarpsins um bann yngri en 13 ára við notkun rafhlaupajóla. Einnig eru gerðar athugasemdir við rök sem fylgja frumvarpinu. Ekki er augljós samfélagslegur ávinningur af þessu banni. Eftirtalin eru rök á móti greininni í frumvarpinu: • Mjög mikið af börnum undir 13 ára nota rafhlaupahjól daglega til ferða í skóla, frístundir, íþróttir og aðrar tómstundir. Á þetta sérstaklega við í mörgum úthverfum höfuðborgarsvæðisins sem byggð eru í brekku, hlíðum fella og þess háttar. Börnin þurfa að teyma reiðhjól upp brekkuna til að komast heim til sín úr t.d. íþróttast… Lesa alla

    Athugasemd er gerð við 5. grein frumvarpsins um bann yngri en 13 ára við notkun rafhlaupajóla. Einnig eru gerðar athugasemdir við rök sem fylgja frumvarpinu. Ekki er augljós samfélagslegur ávinningur af þessu banni. Eftirtalin eru rök á móti greininni í frumvarpinu: • Mjög mikið af börnum undir 13 ára nota rafhlaupahjól daglega til ferða í skóla, frístundir, íþróttir og aðrar tómstundir. Á þetta sérstaklega við í mörgum úthverfum höfuðborgarsvæðisins sem byggð eru í brekku, hlíðum fella og þess háttar. Börnin þurfa að teyma reiðhjól upp brekkuna til að komast heim til sín úr t.d. íþróttastarfi. Ekki verður séð að bann þessa hóps við notkun rafmagnshlaupahjóla styðji við þann ávinning sem lýst er í texta sem fylgir frumvarpinu um „samdrátt í koltvísýringslosun, minni umferðarhávaða og umferðartafir“. Þvert á móti er jafn augljóst að bannið myndi auka akstur og óhagræði hjá foreldrum þessa hóps sem í auknu mæli myndu skutla og sækja börnin á bíl. • Varðandi slysatíðni barna þarf að taka tillit til þess að rafmagns hlaupahjól eru nýjung og þarf að leiðandi er ekki við örðu að búast en að tíðnin aukist. Bera þyrfti slysatíðnina saman við slys barna á hefðbundnum reiðhjólum. Spyrja mætti hvort börnum væri bannað að nota reiðhjól ef þau væru fundin upp í dag. • Varðandi leiðbeiningar framleiðanda má benda á að þessir framleiðendur eru bara að reyna að verja sjálfan sig. Lagt er í efa að þeir hafi gert rannsóknir á hvort börn yngri en 13 séu með þroska til að nota hjólin. Erlendir tækjaframleiðendur ættu í það minnsta ekki að stjórna íslenskri löggjöf. • Lög um bann við notkun vegna þess hversu auðvelt er að breyta rafhlaupahjólum til að fara hraðar stenst ekki skoðun. Það gengur ekki að setja ný lög vegna þess að auðvelt sé að brjóta önnur. Við gætum þá allt eins bannað bíla vegna þess að það er hægt að aka þeim of hratt. Undirritaður er faðir 10 ára barns sem notar rafhlaupajól sem samgöngutæki vegna íþróttastarfs þar sem mikil brekka er til þess að komast aftur heim.

  • #3Pétur Gylfi Kristinsson
    Hver var upphaflegur tilgangur löggjafar þegar bann var lagt við akstri undir áhrifum áfengis? Jú, hann var væntanlega að koma í veg fyrir það mikla tjón og jafnvel dauða sem ölvaður ökumaður gat valdið öðrum akandi um í þungu stálboxi á hjólum. Ég tel í hæsta máta óeðlilegt að fella rafhlaupahjól / smáfarartæki undir þann flokk. Sá sem notar smáfarartæki undir áhrifum áfengis sem takmarkað er við max 25 km hraða er aldrei að fara að valda stórfelldu tjóni á einu né neinu nema þá á sjálfum sér. Það er grundvallarmunur á þessu tvennu, þ.e.a.s. akstur bifreiðar undir áhrifum eða akstur smáfar… Lesa alla

    Hver var upphaflegur tilgangur löggjafar þegar bann var lagt við akstri undir áhrifum áfengis? Jú, hann var væntanlega að koma í veg fyrir það mikla tjón og jafnvel dauða sem ölvaður ökumaður gat valdið öðrum akandi um í þungu stálboxi á hjólum. Ég tel í hæsta máta óeðlilegt að fella rafhlaupahjól / smáfarartæki undir þann flokk. Sá sem notar smáfarartæki undir áhrifum áfengis sem takmarkað er við max 25 km hraða er aldrei að fara að valda stórfelldu tjóni á einu né neinu nema þá á sjálfum sér. Það er grundvallarmunur á þessu tvennu, þ.e.a.s. akstur bifreiðar undir áhrifum eða akstur smáfarartækis undir áhrifum. Þeir miklu kostir sem þessi farartæki hafa í för með sér vega að mínu mati mun þyngra en svo að réttlætanlegt sé að taka upp harðar refsingar við notkun þeirra þó áfengis hafi verið neitt. Til að fækka slysum væri mun skynsamlegra að taka upp hraðatakmörkun þannig að hraði væri að hámarki 12-15 km/klst t.d. eftir miðnætti og til 06 á morgnana á afmörkuðu svæði miðbæja eða annarra svæða þar sem búast má við fjölda fólks undir áhrifum.

  • #4Ásdís Skúladóttir

    Rafhlaupahjól þurfa að vera með hjólabjöllu til að gera vart við sig þegar þau koma aftan að fólki á gangstétt sem ekki eru með akrein sérlega fyrir hjól. Það verður að skoða hvaða hljóð í bjöllu henta flestum þar sem heyrn fólks er mismunandi og byjrar tiltölulega snemma á lífsferlinu. Hafa í því efni samráð við fagmenn. Það skal og ver saknæmt að nýta ekki þessa bjöllu. Einnig skal ver sakæmt að keyra fram úr fólki báðum megin við það bæði á ómerkti gangstétt og sérmerktum göngubrautum.

  • #5Viðar Freyr Guðmundsson
    Geri þá athugasemd að í núgildandi lögum er þegar hægt að taka á ölvunarakstri á rafhlaupahjólum og reiðhjólum. Það væri kannski hreinlegast að brýna þetta fyrir lögreglunni og biðja um að framfylgja þessum lögum. En rafhlaupahjól teljast til 'reiðhjóla' í skilningi laganna. (sjá skilgreiningu á reiðhjóli í lögunum) Ein skilgreiningin á 'reiðhjóli' er: "Annað lítið vélknúið ökutæki sem ekki telst til létts bifhjóls og er hannað til aksturs á hraða frá 6 km á klst. upp í 25 km á klst. Undir þessa skilgreiningu fellur m.a. vélknúið hlaupahjól og tvíhjóla ökutæki á einum öxli. Slíkum fara… Lesa alla

    Geri þá athugasemd að í núgildandi lögum er þegar hægt að taka á ölvunarakstri á rafhlaupahjólum og reiðhjólum. Það væri kannski hreinlegast að brýna þetta fyrir lögreglunni og biðja um að framfylgja þessum lögum. En rafhlaupahjól teljast til 'reiðhjóla' í skilningi laganna. (sjá skilgreiningu á reiðhjóli í lögunum) Ein skilgreiningin á 'reiðhjóli' er: "Annað lítið vélknúið ökutæki sem ekki telst til létts bifhjóls og er hannað til aksturs á hraða frá 6 km á klst. upp í 25 km á klst. Undir þessa skilgreiningu fellur m.a. vélknúið hlaupahjól og tvíhjóla ökutæki á einum öxli. Slíkum farartækjum má ekki aka á akbraut." (takið sérstaklega eftir orðinu 'ökutæki' þarna. Það skiptir máli hérna.) Þá er líka gerður greinarmunur á 'vélknúnum ökutækjum' og 'ökutækjum'. Allt sem sagt er í lögunum um 'ökutæki' hlýtur þá að eiga einnig við um reiðhjól og rafhlaupahjól eins og það er skilgreint. Það er sérstaklega tekið fram að 'reiðhjól' teljist ekki til 'vélknúinna ökutækja'. En nærri öll önnur farartæki á hjólum teljast til 'ökutækja'. "Vélknúið ökutæki: Ökutæki, annað en reiðhjól, sem ætlað er til aksturs á landi og er búið aflvél til að knýja það." .. "Ökutæki: Tæki á hjólum, beltum, völtum, meiðum eða öðru sem ætlað er til aksturs á landi og eigi rennur á spori." (OK, má þá stýra lest fullur?) Þannig að lögin þurfa þá að lesast með þetta í huga. Í fyrsta lagi: að rafhlaupahjól = reiðhjól. Í öðru lagi: rafhlaupahjól = ökutæki. Það eina í lögunum sem gildir því ekki um rafhlaupahjól er þar sem sérstaklega er sagt 'vélknúið ökutæki', eða eitthvert annað skilgreint hugtak. Þá segir tam. í 48. gr, 2.mgr.: " Enginn má stjórna eða reyna að stjórna ökutæki ef hann vegna veikinda, hrörnunar, ellihrumleika, ofreynslu, svefnleysis eða neyslu áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna eða af öðrum orsökum er þannig á sig kominn að hann er ekki fær um að stjórna ökutækinu örugglega." ..þetta gildir því um hjól líka Varðandi vínandamagn þá er ekki tekið fram að þetta gildi eingöngu um 'vélknúin ökutæki' eða 'bifreiðar': "Ef vínandamagn í blóði ökumanns nemur 0,20‰, en er minna en 1,20‰, eða magn vínanda í lofti sem hann andar frá sér nemur 0,1 milligrammi í lítra lofts, en er minna en 0,60 milligrömm, eða ökumaður er undir áhrifum áfengis þótt magn vínanda í blóði hans eða útöndun sé minna telst hann ekki geta stjórnað ökutæki örugglega." Og lögregla hefur fulla heimild til að fara fram á öndunarpróf hjá þeim sem stýra hverskonar 'ökutæki', enda ekki tekið fram að átt sé við 'vélknúin ökutæki' eingöngu: "Lögreglan getur fært ökumann til rannsóknar á öndunar-, svita- og munnvatnssýni eða til blóð- og þvagrannsóknar ef ástæða er til að ætla að hann hafi brotið gegn ákvæðum 2. [hér að ofan] eða 4. mgr. 48. gr., sbr. 49. og 50. gr., eða hann neitar lögreglunni um að gangast undir öndunarpróf eða láta í té svita- eða munnvatnssýni eða er ófær um það. Liggi fyrir grunur um önnur brot en akstur undir áhrifum áfengis getur lögreglan auk þess fært ökumann til læknisskoðunar. Sama á við þegar grunur er um akstur undir áhrifum áfengis og sérstakar ástæður mæla með því." Svo þetta sé alveg skýrt, þá er sumstaðar tekið fram sérstaklega í lögunum að átt sé við hjól og hesta líka (þó hestar teljist ekki til ökutækja, eins og það er skilgreint): "Enginn má hjóla eða reyna að hjóla eða stjórna eða reyna að stjórna hesti ef hann er undir svo miklum áhrifum áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna að hann getur ekki stjórnað hjólinu eða hestinum örugglega." (óljóst er þá hvaða viðurlög eru við að stjórna hesti undir áhrifum við mína snöggu yfirferð) En mér sýnist að kannski þurfi bara að framfylgja núgildandi lögum. Og ætti ekki að bíða með það.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-172/2022: Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 · Alviti