Breyting á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir (reglugerðarheimild)
Með frumvarpinu er lagt til að setja reglugerðarheimild í lögin svo ráðherra sé heimilt að kveða með nánari hætti á um stoðþjónustu, m.a. um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks og fæðisfé starfsfólks.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-246/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. desember 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 772)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Svavar Kjarrval Lúthersson
Er ekki sérstaklega versaður í sveitarstjórnarrétti en það vakna upp spurningar um hversu traust lagastoð myndi vera til staðar að óbreyttum texta. Ég myndi telja ákjósanlegast að fyrst ráðuneytið veit að þetta er ætlunin, að kveða skýrar á um hana í lögunum sjálfum, og ráðherra veitt heimild til að útfæra hana nánar í reglugerð.
- #2Alma Dögg Guðmundsdóttir
Mikilvægt er að samræma reglur milli sveitarfélaga og ríkis. Möguleg útfærsla væri að fyrir hverja máltíð sem starfsmaður borðar með þjónustunotenda myndi sveitarfélag/ríki borga ákveðna upphæð sem að sjálfsögðu væri tengd við breytingu á matar- og drykkjuvörulið í vísitölu neysluverðs. Eins og fram kemur í tillögu frumvarpsins væri mikilvægt að elta ekki kjarasamninga í þeim efnum til að samræma milli stétta. Sú upphæð sem sett yrði þyrfti þó að vera hærri en því sem nemur í kjarasamningum því óraunhæft er að elda máltíð fyrir tvo fyrir 1544 kr. með núverandi verðlagningu, ef horft er á það… Lesa alla
Mikilvægt er að samræma reglur milli sveitarfélaga og ríkis. Möguleg útfærsla væri að fyrir hverja máltíð sem starfsmaður borðar með þjónustunotenda myndi sveitarfélag/ríki borga ákveðna upphæð sem að sjálfsögðu væri tengd við breytingu á matar- og drykkjuvörulið í vísitölu neysluverðs. Eins og fram kemur í tillögu frumvarpsins væri mikilvægt að elta ekki kjarasamninga í þeim efnum til að samræma milli stétta. Sú upphæð sem sett yrði þyrfti þó að vera hærri en því sem nemur í kjarasamningum því óraunhæft er að elda máltíð fyrir tvo fyrir 1544 kr. með núverandi verðlagningu, ef horft er á það sem svo að íbúi leggi jafnt fram á móti starfsmanni. En skv. gildandi kjarasamningum er upphæð fæðisfés 772 kr. árið 2023. Horft væri þá hádegisverð og kvöldverð. Eins þyrfti að greiða fæðisfé fyrir næturvakt þó starfsmaður snæði ekki með íbúa þar sem að kveðið er á um fæði fyrir næturvaktarstarfsmann í kjarasamningum. Þá væri hæglega hægt að setja upp formúlu sem væri: Upphæð fæðisfés x meðaltal daga í mánuði x matartímar á dag (með næturvakt innifalinni) = mánaðarlegur kostnaður á fæðisféi starfsfólks. Þörf væri fyrir að setja upp formúluna tvöfalt, skipta henni upp í dagvinnu og vaktavinnu þar sem munur er á fjölda daga í mánuði fyrir dagvinnufólk annar vegar og vaktavinnufólk hinsvegar. Set dæmi af formúlu í viðhengi sem er gerð út frá heimili með sameiginlegan hússjóð íbúa og gert er þá ráð fyrir að þetta sé mánaðarleg greiðsla.
- #3Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (reglugerðarheimild)
- #4Öryrkjabandalag Íslands
Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (reglugerðarheimild), mál 246/2023.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.