Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-120/2023 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar (DORA)

Áformuð er lagasetning um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar, til innleiðingar á DORA-reglugerð ESB 2022/2554 hér á landi, ásamt tilheyrandi breytingatilskipun.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: mars).

Birt eru til umsagnar áform um lagasetningu til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2022/2554 um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar (DORA eða DORA-reglugerðin) og tilheyrandi breytingatilskipun (ESB) 2022/2556. Fyrirhugað er frumvarp til nýrra heildarlaga og um breytingar á gildandi lögum. DORA-gerðirnar tilheyra stafrænum fjármálapakka ESB sem ætlað er að stuðla að því að umgjörð fjármálamarkaða mæti þörfum og kröfum nútímans, sem meðal annars varða net- og upplýsingaöryggi. Unnið er að undirbúningi upptöku gerðanna í EES-samninginn og stefnt að því að nýtt regluverk öðlist gildi í EFTA ríkjunum innan EES á svipuðum tíma og í aðildarríkjum ESB. Með DORA eru kröfur til viðbúnaðar og umgjarðar áhættustýringar ólíkra aðila á fjármálamarkaði samræmdar, að teknu tilliti til stærðar og áhættusniðs starfsemi. Nýmæli varða meðal annars vöktun áhættu vegna útvistunar og kröfur til aðkeyptrar tækniþjónustu, svo og tilkynningaskyldu um alvarleg atvik gagnvart lögbæru stjórnvaldi (hér á landi Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands). Aðilum á fjármálamarkaði verður eftir atvikum skylt að framkvæma einfaldar eða ógnamiðaðar netöryggisprófanir, sem stuðla eiga að bættu áfallaþoli. Þá rennir DORA frekari stoðum undir heimildir til miðlunar upplýsinga um ógnir og áhættu sem steðjað getur að starfsemi á fjármálamarkaði, enda sé samstarf um slíkt formgert og nánar tilgreind skilyrði uppfyllt. Með DORA er sameiginlegri umgjörð yfirsýnar evrópska fjármálaeftirlitskerfisins komið á gagnvart allra stærstu tækniþjónustuveitendum á sameiginlegum innri markaði fjármálaþjónustu (e. Union Oversight Framework).

S-120/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jún. 2023 – 4. sep. 2023· 0 umsagnir

Stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar (DORA)

Áformuð er lagasetning um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar, til innleiðingar á DORA-reglugerð ESB 2022/2554 hér á landi, ásamt tilheyrandi breytingatilskipun.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-120/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. september 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 261)
Niðurstöður samráðs (4. september 2024)

Engar umsagnir bárust. Drög að frumvarpi voru birt til umsagnar í máli S-146/2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-120/2023: Stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar (DORA) · Alviti