Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-120/2024 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um loftslagsmál (ný heildarlög)

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti kynnir til samráðs áform um setningu nýrra heildarlaga um loftslagsmál.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

Málaflokkur loftslagsmála hefur verið í örri þróun undanfarin ár en 12 ár eru liðin frá setningu laga nr. 70/2012 um loftslagsmál og hefur lögunum verið breytt margoft frá gildistöku þeirra. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að styrkja eigi stjórnsýslu loftslagsmála og endurskoða eigi hlutverk Loftslagsráðs. Frumvarp þess efnis hefur því verið á þingmálaskrá síðustu tvo vetur en beðið var greiningingar á hlutverki loftslagsráðs. Breytingar vegna setningar laga nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og frekari greining á lögum um loftslagsmál leiddu í ljós að þörf væri á heildarendurskoðun laganna með setningu nýrra heildarlaga. Heildarendurskoðun loftslagslaga mun gefa tækifæri til að uppfæra ákvæði laganna með tilliti til markmiðs Íslands í loftslagsmálum og útfæra betur þann ramma sem lög um loftslagsmál þurfa að vera.

S-120/2024· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 18. jún. 2024 – 16. júl. 2024· 5 umsagnir

Frumvarp til laga um loftslagsmál (ný heildarlög)

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti kynnir til samráðs áform um setningu nýrra heildarlaga um loftslagsmál.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-120/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. júlí 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Hörður Einarsson
    Ekki verður betur séð en á það vanti, að gerð hafi verið raunveruleg greining valkosta um það, hvað aðgerðir eru árangursríkastar og vænlegastar til þess að draga úr hinum neikvæðu áhrifum á loftslagið. Gera t.d. grein fyrir aðgerðum, sem (1) beint minnka áhrifin, og aðgerðum, (2) sem hafa óbeinni áhrif, svo sem ýmsar svokallaðar mótvægisaðgerðir, tæknilausnir, sem visindalegar sannanir liggja þegar fyrir um, að virki, og (3) mótvægisaðgerðir eða tæknilausnir, sem enn eru á tilraunastigi og ekki hafa þegar sannað gildi sitt og kunna einhverjar frekar að flokkast undir grænþvott og braskhugmydi… Lesa alla

    Ekki verður betur séð en á það vanti, að gerð hafi verið raunveruleg greining valkosta um það, hvað aðgerðir eru árangursríkastar og vænlegastar til þess að draga úr hinum neikvæðu áhrifum á loftslagið. Gera t.d. grein fyrir aðgerðum, sem (1) beint minnka áhrifin, og aðgerðum, (2) sem hafa óbeinni áhrif, svo sem ýmsar svokallaðar mótvægisaðgerðir, tæknilausnir, sem visindalegar sannanir liggja þegar fyrir um, að virki, og (3) mótvægisaðgerðir eða tæknilausnir, sem enn eru á tilraunastigi og ekki hafa þegar sannað gildi sitt og kunna einhverjar frekar að flokkast undir grænþvott og braskhugmydir. Hver tegund aðgerðanna er líklegust til þess að ná tilskildum árangi innan setts tímaramma? Ef menn vilja ekki ráðast beint á vandamálin, þá verður að gera hreinskilnislega grein fyrir því og rökstyðja þá afstöðu og færa fram sannfærandi rök fyrir því, að menn geti raunverulega leyst vandann með öðrum og óbeinni aðgerðum. Annað, sem undirritaður hefur velt sérstaklega fyrir sér í tilefni af tíðu umtalinu stjórnvalda um "samráð við hagsmunaaðila": Hverjir eru hagsmunaaðilar í þessu máli? Eru það bara þeir, sem eru mengunarvaldar? Eða geta þolendur loftslagsvandans ekki einnig talizt hagsmunaaðilar? Ætli þeir reynist ekki vera helztu hagsmunaaðilarnir? Hingað til virðast stjórnvöld fyrst og fremst hafa viljað hafa samráð við mengunarvaldana, sem af mannlegum ástæðum eru almennt tregastir til aðgerða gegn skammtímahagsmunum sjálfra sín. Í kjölfar alls þessa samráðs við mengunarvaldana hefur losun sífellt haldið áfram að aukast. Reynslan af þessu samráði virðist því ekki árangursrík. Kannski væri ráð fyrir stjórnvöld að snúa sér - a.m.k. einnig - að öðrum hagsmunaaðilum til samráðs, þ.e.a.s ef menn hafa raunverulegan áhuga á að ná árangri.

  • #2Staðlaráð Íslands

    Umsögn Staðlaráðs Íslands um frumvarp til laga um loftslagsmál

  • #3International Carbon Registry ehf.

    Umsögn International Carbon Registry ehf. um heildarendurskoðun laga um loftslagsmál.

  • #4Svava Svanborg Steinarsdóttir

    Umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

  • #5Haukur Logi Jóhannsson

    Í viðhengi er að finna umsögn Fagstaðlaráðs í umhverfis- og loftslagsmálum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-120/2024: Frumvarp til laga um loftslagsmál (ný heildarlög) · Alviti