Frumvarp til laga um vindorku
Drög að frumvarpi til breytingar á lögum að því er varðar málefni vindorku með það að markmiði að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku en um leið að lágmarka umhverfisáhrif
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-1/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. janúar 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 46 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (18. nóvember 2025)
Niðurstaða málsins i stuttu máli; Alls bárust 46 umsagnir um frumvarpið í samráðsgátt. Í framhaldi af framlagningu draga að frumvarpi var lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (virkjunarkostir í vindorku) á 155. löggjafarþingi (þingskjal 280 -274. mál). Tekið var tillit til umsagna eins og unnt var, sbr. meðfylgjandi samantekt. Frumvarpið varð ekki að lögum.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun
- Tillaga til þingsályktunar um vindorku.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (46)
- #1Grímsnes-og Grafningshreppur
Viðhengt má finna umsögn sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps um málið.
- #2Karólína Elísabetardóttir
"Sú meginbreyting er hins vegar lögð til að ákveðnir virkjunarkostir í vindorku geti að uppfylltum skilyrðum sætt sérstakri málsmeðferð vegna markmiða um orkuskipti og kolefnishlutleysi." Hér er um grundvallaratriði að ræða eða betur sagt grundvallarmisskilning. Ísland framleiðir meira rafmagn á íbúa en nokkuð annað land í heimi - þar sem orkufrekur stóriðnaður, í höndum erlendra fyrirtækja, notar um 80% af framleiddu rafmagni. Varla getur verið markmið að raska íslensku náttúruna, fuglalífið innifalið, enn meira til að mæta orkuþörfum þessara fyrirtækja. En einmitt þetta gerist með þessu fr… Lesa alla
"Sú meginbreyting er hins vegar lögð til að ákveðnir virkjunarkostir í vindorku geti að uppfylltum skilyrðum sætt sérstakri málsmeðferð vegna markmiða um orkuskipti og kolefnishlutleysi." Hér er um grundvallaratriði að ræða eða betur sagt grundvallarmisskilning. Ísland framleiðir meira rafmagn á íbúa en nokkuð annað land í heimi - þar sem orkufrekur stóriðnaður, í höndum erlendra fyrirtækja, notar um 80% af framleiddu rafmagni. Varla getur verið markmið að raska íslensku náttúruna, fuglalífið innifalið, enn meira til að mæta orkuþörfum þessara fyrirtækja. En einmitt þetta gerist með þessu frumvarpi. Það er enginn rafmagnsskortur; þess vegna þarf ekki að "virkja meira", hvort það er um vatnsorku eða vindorku að ræða. Sérstaklega varasamt má telja að það á að liggja í höndum sveitarfélaga að taka víðtækar ákvarðanir. Það eru miklar líkur á því, ekki síst í minni sveitarfélögum, að þeir sem taka ákvarðanir eru í rauninni vanhæfir sökum fjárhagslegra tengsla. Fyrir öfluga fjárfesta er auðvelt að "kaupa sig inn" í svoleiðis samfélag og ekki síst í sveitarstjórn. Á sama tíma eiga vindrafstöðvar það til að áhrif þeirra ná langt yfir mörk sveitarfélaga, bæði út frá skaðlegum áhrifum á fuglalífið (dæmi: það eru 2 arnarhreiður á áhrifssvæði fyrirhugaða vindorkugarða í Dölunum) og út frá sjónmengun (sem hefur bein áhrif á ferðamannageirann - burtséð frá heimamönnum).
- #3Karólína Elísabetardóttir
Viðbót - mál S-251/2023 varðar sama efnið og til öryggis langar mig að endurtaka umsögnina sem ég skilaði inn þar 22.12.2023: "Jákvætt er að stefnan er að "lágmarka umhverfisáhrif". En hér er um grundvallaratriði að ræða sem ætti að vinna úr á þverfaglegan hátt og fara í rauninni eitt skref til baka. Til þess þarf ég að koma með ýmis atriði sem snerta frumvarpið bara óbeint en sem eru samt ómissandi. "Græn orka" - hvað þýðir það? Þetta slagorð varð til í löndum þar sem stóriðnaður skiptir höfuðmáli og þar sem rafmagn hefur verið framleitt með kol og kjarnorku. Í þessum löndum er "ósnert nátt… Lesa alla
Viðbót - mál S-251/2023 varðar sama efnið og til öryggis langar mig að endurtaka umsögnina sem ég skilaði inn þar 22.12.2023: "Jákvætt er að stefnan er að "lágmarka umhverfisáhrif". En hér er um grundvallaratriði að ræða sem ætti að vinna úr á þverfaglegan hátt og fara í rauninni eitt skref til baka. Til þess þarf ég að koma með ýmis atriði sem snerta frumvarpið bara óbeint en sem eru samt ómissandi. "Græn orka" - hvað þýðir það? Þetta slagorð varð til í löndum þar sem stóriðnaður skiptir höfuðmáli og þar sem rafmagn hefur verið framleitt með kol og kjarnorku. Í þessum löndum er "ósnert náttúra" svo gott sem ekki lengur til, landslagið er að langmestu leyti mótað af mannvirkjum og í besta falli einsleitri skógrækt. Þessi þéttbýld lönd þurfa rafmagn fyrir stóriðnað og fyrir íbúana. Á Íslandi hins vegar lítur það allt öðruvísi út: 1. Rafmagn er framleitt svo gott sem mengunarlaust. Nú þegar er eingöngu um "græna" orku að ræða. 2. Ósnert náttúra og landslag er enn ríkjandi á langstærsta hluta landsins - sem er nærri einstakt í vestrænum heimi og sem útskýrir þennan stóra aðdráttarafl landsins fyrir ferðamenn. 3. Stóriðnaður á Íslandi er svo gott sem eingöngu í höndum erlendra fyrirtækja og miðað við gríðarlega mengun og orkuþörf eru störfin sem skapast í gegnum hann bara örfá. Enn verra lítur það út varðandi gagnaver sem skapa svo gott sem engin störf, eru mjög orkufrek og þjóna svo gott sem eingöngu hagsmunum erlendra banka/fyrirtækja/einstaklinga. Íbúar landsins eru mjög fáir miðað við landstærðina og orkuþörf þeirra mjög takmarkað. Oft er talað um að "orkuskiptin" (rafbílar) séu nauðsynleg til að bjarga heiminum. Það eru gervirök. Mengun allra fólksbíla og bílaleigubíla 2020 á Íslandi er minna en skemmtiferðaskipanna sem komu til landsins sama ár (tölur: Hagstofan). Og bara helmingurinn af því sem álverin þrjú valda. Það þýðir: Meira að segja ef allir bílar á Íslandi eru skipt út fyrir rafmagnsbíla, breytist í heildinni mjög lítið. Rafmagnsbílar eru mjög umdeildir á meðal vel upplýsts fólks (góð samantekt er að finna í nokkrum greinum eftir Hörð Kristjánsson í Bændablaðinu); þeir þjóna aðallega hagsmunum bílaframleiðenda. Með öðrum orðum: Ísland þarf ekki að framleiða meira rafmagn. Þess vegna er óþarfi að byggja vindorkuver. Þeir sem græða á því (erlendir fjárfestir, erlendir framleiðendur vindorkurafstöðva) segja auðvitað annað og þeir lofa mikinn pening þeim sem hlýða þeim. Auk þess er það "í tísku" í stóriðnaðalöndum í ESB og Ameríku að "skuldbinda sig" að byggja upp "græna orku". En rökin þeirra eiga bara alls ekki við á Íslandi (sjá fyrir ofan). Vindorkuver hafa margvísleg neikvæð áhrif á umhverfið (fuglalífið, vistkerfi og margt fleira) sem hafa sannað sig í mörgum löndum, m.a. í Noregi og í Þýskalandi. Hér á landi er auk þess önnur auðlind sem vindorkuver eyðileggja: "ósnerta" náttúran. Sá sem vanmetur þessa auðlind og segir að hún sé "einskis virði" eða fullyrðir meira að segja að vindrafstöðvar séu að fegra landslagið, ætti að skoða niðurstöður úr nýrri könnun á meðal tæplega 300 þýskumælandi ferðamanna, sem var framkvæmd frá 9. til 12. desember; spurt var hvort vindorkuver hafa jákvæð eða neikvæð áhrif á fegurð íslenskrar náttúru eða hvort þeim sé sama um það. Niðurstöður eru þannig (294 svör samtals): 91% telja vindorkuver hafi neikvæð áhrif 6% jákvæð áhrif 3% er sama Sérstæða Íslands er einstök náttúrufegurð. Aðdráttarafl landins byggir á því. Þótt það megi deila um hvort straumur ferðamanna til landsins sé æskilegur í núverandi umfangi, er óumdeilt að ferðamannageirinn sé einn mesti þáttur efnarhagslífsins hér á landi. Í stuttu máli: Ísland þarf ekki meira rafmagn. Ísland þarf bara minna af erlendum stórfyrirtækjum, fjárfestum og minna af innlendum skammsýnum áhrifavöldum sem trúa að "fjárfestingar" séu töfralausn. Fjárfestingar sem nýta aðallega fjárfestum eru hættulegar. Og Ísland þarf alls ekki vindorkuver - en Ísland þarf að læra úr mistökum annara landa. Frumvarpið ætti að skoða í ljósi þessara atriða - það þarf að fara skref til baka. Þá verður frumvarpið sem slíkt óþarfi."
- #4Gunnar Einarsson
Höfundur er lesblindur. Það þarf engar vindmyllur á Íslandi. Hér áður og fyrrum voru vindmyllur ekki stærri en svo að þær féllu ágætlega að bæði byggð og landslagi. Þannig eru þær ekki lengur. Vindmyllur sem fyrirhugað er að reisa hér á landi eru risastórar 200 metrar háar jafnvel meira og sjást úr tugkílómetra fjarðlægð.. Þannig mannvirki falla aldrei vel að íslenskri náttúru. Vindmyllur hafa víða verið reistar. Fyrst voru þetta oft nokkrar saman í röð. Núna má sjá myndir af stórum svæðum, þöktum með vindmyllum. Á alla venjulega mælikvarða eru þær dæmi um umhverfis slys af verstu tegund. V… Lesa alla
Höfundur er lesblindur. Það þarf engar vindmyllur á Íslandi. Hér áður og fyrrum voru vindmyllur ekki stærri en svo að þær féllu ágætlega að bæði byggð og landslagi. Þannig eru þær ekki lengur. Vindmyllur sem fyrirhugað er að reisa hér á landi eru risastórar 200 metrar háar jafnvel meira og sjást úr tugkílómetra fjarðlægð.. Þannig mannvirki falla aldrei vel að íslenskri náttúru. Vindmyllur hafa víða verið reistar. Fyrst voru þetta oft nokkrar saman í röð. Núna má sjá myndir af stórum svæðum, þöktum með vindmyllum. Á alla venjulega mælikvarða eru þær dæmi um umhverfis slys af verstu tegund. Vindmyllur myndu eyðileggja ásýnd víðerna Íslands og það eitt og sér ætti að stoppa vindmylluvæðinguna. Ef af öllum þessum vindmyllugörðum verður, þá á björtum degi munu blasa við vindmyllur ef maður réttir úr sér og horfir yfir landið. Þarna væri verið að breyta stórum hluta Íslands í iðnaðarsvæði. Það væri skárra að virkja Gullfoss. Með því að forðast að fara þangað þyrfti maður ekki að sjá hörmungina. Fuglarnir og vindmyllur. Það er þekkt að vindmyllur höggva niður fugla. Endi spaðana getur náð miklum hraða. Spaðarnir þurfa ekki einu sinni að hitta fuglana. Þrýstings munur nálægt spöðunum er nóg til að sprengja þá. Ég spurði aðila sem eru áhugasamir um að reisa vindmillur að ef það kæmi í ljós að vindmyllurnar þeirra dræpu fugla umfram það sem áætlanir gerðu ráð fyrir, hvort þeir myndu taka myllurnar niður? Svarið var nei, þetta snerist um mótvægisaðgerðir. Það á að reyna að fæla fuglana burt af svæðinu. Það gætu orðið til af þessu áhugaverðar myndir, fjöldi 200 metra vindmylla með fugla hræðum allt um hring. Eitthvað fyrir túristana að skoða. Vitanlega verður dauðum fuglum safnað saman og þagað yfir árangrinum. Það er þetta sem er að gerast svo víða í heiminum, náttúran er rekin burt. Hvað erum við sátt við að vindmyllur drepi marga erni? Mengun. Spaðarnir slitna. Það molna úr þeim fínar plastagnir, örplast, sem dreifist um nágrennið. Þessir spaðar eru gríðarlegir að umfangi. Á myndum má sjá að yfirborðið getur kvarnast, getur orðið eins og hraun að framan, þannig að það er mikið magn af örplasti sem kemur frá vindmillugörðum. Þetta örplast sest að í bæði fuglum og kindum sem beita sér á svæðinu. Á ekki náttúran að njóta vafans? Vindmyllublöðin endast ekki nema 20-25 ár. Dæmi er um miklu styttri endingu, allt niður í 2 ár. Endur vinnsla á blöðunum. Í BNA er verið að rífa eldri vindmyllur. Hverju sem haldið er fram er raunin þar sú að blöðin eru mest grafin eða safnað í ofanjarðar vindmyllu kirkjugarða. Það er vissulega hægt að mylja þá, en það kostar. Trefjaplast er ekki heppilegt til endurvinnslu. Það væri skást að mylja blöðin niður og brenna þau. Vindmyllu orkan Vindmyllur framleiða mjög mismikið rafmagn. Framleiðslan fellur líka oft illa að sveiflum í notkun. Bæði þegar vindur er lítill og þegar hann er mikill framleiða vindmillur ekki neitt. Strax og vindur fer í 24 metra er slökkt á þeim. Í 200 metra hæð ná vindar oft þeim styrkleika hér á landi. Vindmyllur og sólarorka hafa fyrst og fremst verið settar upp, með góðum árangri, á stöðum þar sem jarðefnaeldsneyti hefur verið ráðandi í raforkuframleiðslu. Þar eiga þær heima. Vindmyllurnar hafa þá dregið úr notkun á jarðefnum. Brennsla á jarðefnum er engu að síður alltaf í bakhöndinni til að taka yfir þegar vindmyllurnar og sól skila litlu. Ein og sér er vindmyllu orkan vond. Í Þýskalandi hefur sýnt sig að vindmyllu og sólar fylgir óhjákvæmilega mikil notkun á jarðefna eldsneyti. Þeir sem eru að hugsa un að minnka kolefnisspor með vindmyllum ættu að fara og reisa þær annarstaðar, þar sem verulegur hluti af raforkunni fer til húshitunar. Reynsla annara. Margir Norðmenn hafa vaknað af vondum draumi og telja að vindmyllunum hafi verið logið inn á þá. Umhverfisáhrifin verri og orkan dýrari, en ekki ódýrari eins og lofað var. Í Ontaríó fylki í Kanada fóru stjórnvöld á græna trippið, með því að leggja ofuráherslu á vindmyllur og sólarsellur. Skattgreiðendur hafa borgað dýrt fyrir. Lífeyrissjóðirnir hafa tapað og rafmagnið er dýrara. Örfáir fjárfestar, sem fengu áhættuna færða á aðra, hafa hagnast. Það er ekki langt síðan að því var haldið að okkur að aðstæður á Íslandi væru þannig að laxalúsin þrifist ekki hér og ekki þyrfti að nota eitur til að halda henni niðri. Ég trúi því ekki að hægri menn sjái ekki hvað Ísland er fallegt og sé jafn umhugað og vinstri mönnum um að vernda landið. Vindmylluvæðingin eins og hún hefur verið rekin annarstaðar er dæmigerð vinstri stefna með ofríki ríkisins og aukinni skattheimtu sem niðurstöðu. Það þarf engar vindmyllur á Ísland. Stefna Landsvirkjunar. Það hefur verið stefna Landsvirkjunar að virkja meira að stækka þenjast út. Það er í sjálfu sér eðlilegt, en ekki sjálfkrafa rétt. Landsvirkjun hefur látið gera auglýsingar til að selja almenningi þessa stefnu og þannig notað fjármuni almennings til að reka áróður fyrir fleiri virkjunum. Ástæða þess að Landsvirkjun talar um orkuskort er að þeir hafa selt meiri orku en lélegur vatnsbúskapur getur ráðið við og er það hluti af áróðrinum að hamra á orkuskorti. Þegar hægt er að selja meira rafmagn, er orkuskortur séð með augum Landsvirkjunar. Eftirlit með Landsvirkjun. Landsvirkjun er stórt fyrirtæki, svolítið eins og ríki í ríkinu. Þeir birtir allskonar upplýsingar, sem væntanlega túlka sannleikann eins og þeir vilja láta hann líta út. Þegar þeir gefa upp hagnað af sölu rafmagns til álvera geta þær tölur fengist með ýmsu móti. Þeir eru að nota peninga almennings til að reka áróður, með auglýsingum, til dæmis rómantískar myndir með fjölskyldu ( brosandi) með vindmyllur í bakgrunninum. Það eru fjölmargir sem hafa bent á að það sé í raun engin orkuskortur. Það þyrfti sem mótvægi starfsman inn í Landsvirkjun sem umhverfissamtök veldu, til að endurskoðanda og fara yfir rekstur fyrirtækisins. Dæmi um umræðuna er að það sé ekki til raforka fyrir fiskimjöls verkssmiðjurnar. Þessar verksmiðjur eru aðeins reknar á fullum afköstum þrjá mánuði á ári og í lélegum loðnuárum enn skemmri tíma. Það er eðlilegt að ekki sé til forgangsorka á niður settu verði í lélegum vatnsárum. Trúir því nokkur að það verði settar upp vindmyllur til að sjá fiskimjöls verkssmiðjum fyrir rafmagni á því verði sem þeir eru tilbúnir að borga? Að framleiða ál með vindorku. Hér fyrir fáum árum ætlaði eitt af álverunum að hætta framleiðslu, nema að þeir fengju verulegan afslátt af raforkuverði. Margar greinar birtust í blöðum um að vitanlega yrðum við að hætta að okra á rafmagninu til Álversins. Það kom fram að það hefði aldrei verið hugsunun að við Íslendingar værum að framleiða rafmagn til að hagnast á því, heldur væri þetta þjónusta, sem ekki þyrfti að skila neinu umfram kostnaði við rekstur orkuveranna og dreifingu orkunnar. Það væri vinnan, blessuð vinnan sem stóriðjan skaffaði sem væri okkar hagnaður. Margir þeirra, sem unnið hafa hjá umræddu álveri hafa unnið þar árum og áratugum saman, þannig að álverið hefur greinilega verið mörgum góður vinnuveitandi. Þetta annað, sem stundum var bent á að gæti skaffað atvinnu, þóttu loftkennt, draumórar. Ef við skoðum samhengið kemur í ljós að miklu fleiri starfa í dag (milli 7 og 8000) í Flugstöð Leifs Eiríkssonar en í öllum álverunum og tengdum störfum (við getum bætt við þessum 800 sem vinna við laxeldið). Það eru fleiri störf í landinu en það er mannskapur til að sinna. Ef eitt álverið lokaði, þýddi það að aðeins minna þyrfti að flytja inn af fólki. Hið Íslenska Sovétt. Það er með ólíkindum hvað Íslensk stjórnvöld hafa verið Sovétt sinnuð í hugsun. Tökum sem dæmi Kárahnjúkavirkjun. Það var lítil trú á að atvinnulífið myndi skapa störf, það yrði að koma til Ríkisfrumkvæði og skipulag til að fólkið visnaði ekki upp í eymd og volæði. Í dag berast stöðugt fréttir að hugmyndaauðgi landans, sem margar hverjar myndu án meiriháttar röskunum á umhverfinu, skapa mikið af störfum, jafnvel fleiri en þörf er á. Þegar þessi umræða var í gangi heyrði ég aldrei minnsta hvísl frá Landsvirkjun, um að það þyrfti miklu meiri orku. Ekki minnst á að það þyrfti ekkert að óttast að rafmagnið seldist ekki, það bráðvantaði rafmagn hér og þar og hægt væri að selja það á miklu betra verði. Í staðin fyrir að við hefðum ódýra umframorku þegar álverið lokaði eigum við að fá í staðin rándýra ótrygga vindorku. Ef við stoppum aðeins sjáum við að það á að nota vindorku til að framleiða ál og láta Íslenska neytendur greiða niður umfram kostnaðinn, sem verður óhjákvæmilega af vindorkunni. Hér verður um að ræða enn meiri skattlagningu á þjóð, þar sem Ríkið ráðstafar nú þegar stórum hluta tekna vísitölu fjölskyldunnar. Áhættan af álverum. Rafmagnsverð til álveranna er að hluta til tengt verði á áli. Kínverjar hafa verið að taka yfir álframleiðsluna í heiminum. Framleiddu ca 5% árið 2000 en meira en 50% í dag. Það er óþarfa áhætta að vera með þrjú álver á Íslandi. Þenslu skatturinn. Það er ekki hægt að ráðast í flýti meðferð á miklum framkvæmdum án þess að velta fyrir sér áhrifum á efnahagslífið. Verðbólgan í nágranaríkjunum hefur lækkað hratt, þrátt fyrir að stýrivextir næðu aldrei þeim hæðum, sem þeir gerðu hér. Seðlabankinn og Ríkisstjórnin eru sammála um að þetta sé vegna þenslu í efnahagslífinu hér á landi. Það á að sporna við þenslunni með því að leggja skatt á ferðaþjónustuna, Innflutningur á fólki. Atvinnulífið dregið hingað mikinn fjölda fólks frá útlöndum. Þetta hefur og mun valda þenslu. Það verður til dæmis mjög erfit að koma öllu þessu fólk, sem flutt hefur verið inn, fyrir í íbúðarhúsnæði, án þess að húsnæði hækki, bara til að taka dæmi. Flýtiuppbygging á vindmillum mun gera vont verra og leiða til þess að vextir munu síður lækka hér eins og þeir munu gera annarstaðar. Uppbyggingin legði vaxtaskatta á öll lán þar á meðal húsnæðislán. Það er þannig út frá efnahagslegum sjónarmiðum goðgá að ætla að stuðla að frekari þenslu og miklu skynsamlegra bíða við og hægja á framkvæmda gleðinni. Í raun er það þannig að raforkuskortur er frekar blessun en böl miðað við þær aðstæður sem eru hér á landi. Horft til framtíðar. Er hluti ástæðunnar fyrir hvað heimurinn er háður jarðefna eldsneyti í dag, til komin vegna lobbíisma í BNA? Það er nauðsynlegt að líta á hlutina í stóra samhenginu. Þeir sem lagst hafa yfir samhengið hafa gert sér grein fyrir að vind og sólar orka muni ekki geta leist af jarðefnaeldsneyti. Margir umhverfissinnar sem áður töldu framleiðslu á rafmagni með kjarnorku vera það versta af því vonda, hafa skipt um skoðun og gera sér grein fyrir að kjarnorka verður að vera hluti af dæminu, ef menn ætla í alvöru að draga verulega úr notkun á jarðefnaeldsneyti. Mörgum líkar illa hvernig vind og sólar eru nú þegar að valda mikilli röskun á nátúrunni og hryllir við þeirri hugsun hvað vindmillur og sólarsellur muni kaffæra stór svæði, ef vind og sólar ættu að sjá um mikið af orkuframleiðslunni. Hræðslan við kjarnorkuna hefur orðið til þess að lítið hefur verið byggt af nýjum og öruggari kjarnorkuverum á Vesturlöndum og að þeim gömlu hefur, vegna orkuskorts, verið haldið gangandi lengur en upphaflega var gert ráð fyrir. Hræðslan við kjarnorkuna hefur þannig aukið hættuna af kjarnorkunni. Frakkar veðjuðu á kjarnorkuna sem orkugjafa. Framleiddu 75% af rafmagninu með kjarnorku. Því miður virtist trú Frakka sjálfra á kjarnorku dvína á tímabili. Þeir virðast vera að ná áttum aftur og hyggjast byggja mörg ný. Þjóðverjar hentu frá sér kjarnorkunni og hafa eytt fúlgum fjár í endurnýjanlega orkugjafa, vindmillur og sólar. Það er pínlegt að sjá Þjóðverja núna vera í vandræðum með orku og eru frekar að auka kolabrennslu, frekar en að halda kjarnorkuverunum gangandi. Þórín brennarar. Það er önnur hlið á kjarnorku. Það var byggt og rekið allt önnur tegund af kjarnorkuveri í BNA fyrir 70 árum síðan. Það var saltkælt ver. Það notaði þórín sem orkugjafa og þurfti ekki vatn til kælingar. Þetta ver byggja á tækni sem er svo til hættu laus, nýtir orkuna miklu betur og hefur lítinn geislavirkan úrgang og getur meira að segja nýtt úrgang frá eldri tegundum af kjarnorkuvera. Þannig ver væri hægt að staðsetja nærri borgum og þá þyrfti ekki þessi gríðarlegu háspennuvirki, sem eru um allt í dag og munu aukast til mikilla muna ef mikið af orkunni á að koma frá vind og sólar. Þetta tilraunaverkefni var stöðvað. Það gekk vel og þeir vísindamenn, sem stóðu að því skildu ekki af hverju. Það eru margir vísindamenn, sem telja að það liggi miklir möguleikar í Þórín verum. Þrátt fyrir að stjórnvöld í BAN hafi tekið undir að það þurfi að draga úr bruna á jarðefnaeldsneyti, hafa þau ekki stutt rannsóknir á þórínofnum fram að þessu og hafa beinlínis lagt steina í götu þeirra sem hafa viljað gera tilraunir á þessu sviði. Nú eru Kínverjar, Danir og fleiri komnir af stað með tilraunir á Þórínverum. Þórín ofnar þurfa ekki að vera stærri en svo að hægt væri að fjöldaframleiða þá, til dæmis í skipasmíðastöðvum og draga þá þangað, sem á að nota þá. Ef BNA hefði sett viðlíka kraft í þórínbrennara upp úr 1990 og lagður var ýmis verkefni í stríðinu, rynnu þórín brennarar í dag frá verksmiðjum í í tugum ef ekki hundraðatali á hverju ári. Bakvið þessarar tregðu virðast vera pólitík, lobbíismi hagsmunaaðila af verstu gerð. Þetta hefur tafið þróunina en stoppar hana ekki til lengdar. Það væri aftur á móti galið ef við hér upp á Íslandi ætlum að fórna Íslenskri náttúru undir vindmillur til að bæta fyrir tregðu í BAN, Þjóðverja og annara við að snúa sér að tækni lausnum, sem gætu valdið straumhvörfum. Þórínbrennarar eru dæmi um tæknilausn. Ef það er einhver alvara á bakvið að skipta út jarðefnaeldsneyti, þarf fyrst og fremst að gera það með því að þróa nýja tækni. Að framleiða eldsneyti með vindorku. Það er víða í heiminum hægt að framleiða rafmagn í stórum stíl án jarðefnaeldsneytis og tæknilega mögulegt að framleiða úr því eldsneyti. Grunnurinn að þannig framleiðslu er oftast fengin með því að kljúfa vatn og nota vetnið sem grunn í framleiðslunni. Það hafa til dæmis verið uppi hugmyndir um að reisa gríðarlega stór sólarorkuver í Sahara. Flytja orkuna með strengjum til Evrópu, og eða framleiða eldsneyti, sem flytja mætti með leiðslum eða skipum á markaðinn í Evrópu. Það er verið að tengja sólarorkuver, sem er í Marokkó yfir sundið til Evrópu. Þetta er gert með miklum stuðningi frá Þjóðverjum. Ég hef ekki heyrt um að fyrirhugað sé að gera þetta í stórum stíl. Tengingar með strengjum frá Sahara til Evrópu eru einfaldlega of dýrar. Það er of dýrt að framleiða eldsneyti og flytja það til Evrópu. Það eru líka í gangi hugmyndir um að framleiða vindmillurafmagn í stórum stíl á austurströnd Kanada og framleiða vetni. Það er ákaflega erfitt að flytja hreint vetni, það þarf annað hvort mikinn þrísting og eða kulda niður -253C gráður. Sambland af þrístingi og kulda krefst samt kælingar í -150 gráður. Það er til eitt skip sem siglir milli Ástralíu og Japan þar sem verið er að gera tilraunir með að flytja vetni, en raunsæir sjá að það er ekki líklegt að hreint vetni verði flutt á hagkvæman hátt langar leiðir með þeirri tækni sem þekkt er í dag.. Það er hægt að breyta raforkunni í ammoníak. Tæknin til að flytja ammoníak er vel þekkt og mikið notuð. Í vindmillugörðunum, sem er verið að velta fyrir sér í Kanaga er gert ráð fyrir að framleiða Ammoníak. Ammoníak er grunurinn að áburðarframleiðslu. Ammoníak er í dag mest framleitt úr gasi eða kolum og þannig verulegur ávinningur af því skipta því út fyrir hreint. Ekki virðist hafa verið meiningin að gera það með ammoníakið frá Kanada, heldur að halda áfram að notast við jarðefna ammoníak í áburðinn og flytja Kanada ammoníakið það til Þýskalands til brennslu. Það virðast hér vera á ferðinni einhverjar bókhalds brellur frekar en raunsæ viðleitni til að draga úr co2 útblæstri. Áburðarverksmiðjan í Gufunesi, blessuð sé minning hennar, framleiddi hreinan áburð. Rafgreiningin reyndist dýr og var það ein af ástæðunum fyrir því að hún hætti starfsemi. Vetnið sem var framleitt með rafgreiningu var á þeim tíma 5 sinnum dýrara en það sem framleitt var úr jarðefnum. Það væri fróðlegt að vita hvað áburður sem framleiddur væri með vindmyllu rafmagni kostaði. Kunnugir hafa bent á að hvort sem er framleiðsla á vetni eða og ammoníaki í stórum verksmiðjum þurfi stöðugan straum og flöktandi vindmillurafmagn myndi henta illa. Bein og óbein notkun á rafmagni. Notkun á rafmagni beint annarsvegar og hins vegar framleiðsla á eldsneyti, sem síðan er notað sem orka, leiðir til mikillar sóunar á orku, hvernig sem það er reiknað eða gert. Verulegur hluti orkunnar tapast, fyrst við framleiðsluna og síðan við að breyta eldsneytinu aftur í rafmagn. Reikningar (háskóla í Oxford) hafa sýnt allt að 75% tap verður við að breyta rafmagni í ammoníak og síðan ammoníakinu aftur í raforku. Þá var ekki miðaða við flutning. Meðan skortur er á orku í margt annað þar sem rafmagnið er notað beint er það varla réttlætanlegt. Tökum dæmi: Hjá meðal fjölskyldu í norður Evrópu, fer 40% af rafmagns notkuninni í að kinda heimilinn, önnur 20% í að hita vatn. Verulegur hluti orkunnar kemur frá jarðefnum. Þarna er hægt að nota vindmillurafmagnið beint. Við notuðuð mikið af jarðefnum í þetta hér á landi áður, en erum hætt því. Við erum komin langt á undan. Það getur vel verið að framleiðsla á eldsneyti verði hagkvæm þegar fram líður, en ekki í dag. Það er ágæt að hafa í huga að verið er að byggja kolaver í heiminum og þó það sé sjálfsagt að við fylgjum öðrum er ekki ástæða til að fórna Íslandi fyrir sparnað sem skiptir engu máli, alls engu máli. Ræktun á eldsneyti tengist umræðunni um vindmyllur. Stjórnmálamenn verða að hugsa sjálfstætt og gleypa ekki hrátt hvað sem að þeim er rétt. Tunguliprir fengu stjórnvöld í BAN að gera það að skildu að blanda etanol í bensín. Það er notað gríðarlega mikið af maís í þessa framleiðslu. Meira en 40% af ræktuðum maís í BAN fer í þetta. Það þarf að plægja þessa akra, herfa og sá. Það þarf að nota áburð, skordýraeitur og illgresiseyði. Það þarf að þreskja og keyra kornið í verksmiðjur og breyta korninu í etanól. Ef allt er reiknað er ekkert minna kolefnisspor af þessu en ef þessu væri sleppt og óblandað bensín notað. Ræktun á eldsneyti er vond fyrir náttúruna. Það eru önnur og jafnvel enn sterkari rök gegn þessu. Það er meira en 40% af maís ökrum BNA notaðir til þessarar ræktunar. Þetta er ákaflega einhæf ræktun á gríðarlega stórum svæðum, sem vegna eitrunar er illbyggilegt skordýrum eða fuglum. Hér áður var þó allavegana einhver svæði hringum bæina væru með öðrum gróðri jafnvel voru tré algeng. Svæðin í hring um bæjar húsin voru gjarnan eins og eyjar í maíshafinu, griðarstaður fyrir skordýr og fugla. Meðan bændur bjuggu jarðirnar var ræktunin ekki jafn einhæf, bæði var miklu meiri skiptiræktun og tún og skepnur. Eftir að jarðirnar voru teknar yfir af fjárfestum og öllu landinu breytt í maís akra voru bæjar húsin gjarnan rifnir og plægt fyrir. Hvað haldið þið þeir hafi sáð, meiri maís. Hér áður var gjarnan einhver gróður, „önnur seinni uppskera“ höfð með til beitar eftir að búið var að þreskja og voru þá akrarnir með gróðri yfir veturinn, en núna eru gríðarleg flæmi án gróðurs á veturna. Moldin er ber fyrir ágangi veðra og vinda yfir veturinn. Það tapast jarðvegur á hverju ári, með tilheyrandi kolefnisspori. Á þessum svæðum hefur mold verið að tapast og talið að víða sé 50% af moldinni farin. Þessi ræktun er ekki sjálfbær frekar eins og námugröftur. Ræktunin kemur í veg fyrir skynsamlegan búskap. Neikvæðu áhrifin hætta ekki hérna. Nú hafa góðbændur í BNA, Gabe Brown frá Dakota, sem dæmi sýnt að það má ná góðum árangri með því að reka fjölbreyttan búskap með skiptiræktun og áherslu á að hugsa um heilbrigði moldarinnar og þannig komast hjá því að nota áburð, skordýraeitur, illgresiseyðingalyf og lítið sem ekkert af lyfjum fyrir dýrin. Hann og fleiri hafa sýnt að vel væri gerlegt að hleypa nautgripunum, sem núna eru fóðraðir í örsmáum hólfum, oft í skít og drullu, út í náttúrulega haga. Mælingar hjá honum sýna að hann er að binda kolefni í jarðveginum ekki að tapa honum. Hann plægir ekki og er að byggja upp jarðveginn með skiptirækt. Þetta myndi líka geta fjölda fólks mögulegt að snúa út á slétturnar, skapað mannlíf sjálfstæðra bænda þar sem núna er Wolstrít eyðimörk. Það eru enn fleiri vondar hliðar á þessu. Bandaríkja og reyndar fleiri er algjörlega að nauðsynja lausu að flytja inn nautakjöt frá Brasílíu sem framleitt er á landi, sem skógurinn hefur verið höggvin af, á Amasonsvæðinu. Eins er skógurinn ruddur til að framleiða soja baunir og fleira, sem flutt er út og notað til kjötframleiðslu, sem hægt væri að framleiða á Wolstrít ökrunum. Notkun á etanóli er afar vond fyrir náttúruna í raun meiriháttar umhverfisslys. Þetta er ekki framleiðsla sem almenningur kallar eftir. Þetta er og varið af grimmum hagsmunum enda Big bicines. Blöndun lífdísil í dísilolíu er af svipuðum toga. Vindmillu eldsneytið er ekki það sama en það er margt sem þarf að vera svipað í umgerðinni. Þegar tunguliprir ætla núna að koma á framleiðslu á dýru eldsneyti, helst með vindmillum, (allt fyrir náttúruna) sem stjórnmálamenn eiga að ábyrgast að almenningur verði að kaupa ætum við, hin almennu borgarar að spyrna á móti. Einu sinni þegar þetta kerfi verður komið í gang er erfitt að stoppa það þó vitlaust sé. Hér er gott að hafa í huga ummæli Martins Freemans „hér áður urðu menn ríkir á því að framleiða eitthvað í samkeppni við aðra, núna verða þeir helst ríkir sem fá úthlutað einhverslags einokun frá Ríkinu“ Tunguliprir geta sagt vatn streyma upp á móti, en við hinir verðum aðeins að hugsa. Við höfum áður lent í ógöngur vegna framtaks fárra. Ef svo illa fer að hér verði reistir vindmillugarðar er lámarkið að lagðar verði á þær nokkurskonar skila gjald sem næmi kostnaðinum við að rífa þær og farga, án þess að almenningur þurfi að bera kostnaðinn, ef og þegar garðarnir fara á hausinn. Reynslan frá BNA hefur sýnt að þetta er nauðsynlegt, Rannsóknir líklegasta leiðin.´ Í Delí, Peking og miklu fleiri borgum, sést stundum varla milli húsa vegna mengunar. Það hljóta flestir að vera sammála um að það þurfi að draga úr brennslu á jarðefna eldsneyti. Jarðefnaeldsneyti er líka takmörkuð auðlind og nauðsynlegt bara þess vegna draga úr notkun. Það eru margar leiðir til þess. Fyrst og fremst er þetta tæknilegt vandamál. Vilji menn stuðla að minni notkunar á jarðefnaeldsneyti er sennilega hægt að ná mestum sparnaði fyrir minnstan pening með því að verja peningum til rannsókna. Rannsóknir og þróun á rafhlöðum hefur skilað sífellt betri rafhlöðum og það hillir undir rafhlöður, sem gætu gjörbreytt öllum forsendum, bæði með meiri orku á kíló og með minna af sjaldgæfum málmum og hægt verður að hlaða þau oftar. Það er ekki langt í að dagróðrabátar geti notast við rafhlöðurafmagn. Þórínbrennarar er annar möguleiki. Listi möguleikanna er langur. Þó við Íslendingar séum ekki margir þá getum við gert ýmislegt til að leggja okkar að mörkum með rannsóknum og kynningu á því sem við kunnum. Tökum tvö dæmi um hvernig við Íslendingar höfum hjálpað til að leggja grunn, sáð færum sem geta með tímanum sparað gríðarlega mikla notkun á jarðefna eldsneyti. Það eru annarsvegar að kenna öðrum hverinn við notum jarðhita bæði til rafmagnsframleiðslu og til hitunar. Þetta höfum við þegar gert til í dæmis í Kína, Rússlandi og miklu víðar. Jarðhitaskólinn er dæmi um að tiltölulega litlir fjármunir geta gert mikið. Þarna er fræ sem gæti sparað óhemju magn að co2 þegar fram líða stundir. Það er framleitt gríðarlegt magn af steypu í heiminum og allar líkur á að sú framleiðsla aukist. Það er mikil kolefnisspor af þessari framleiðslu. Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins vann að merkum rannsóknum á steinsteypu. Meðal annars var unnið að rannsóknum á að framleiða steypu með miklu minni losun kolefnis. Sparnaðurinn getur numið allt að 80%. Ólafur Wallervik hefur ferðast víða til að kynna möguleika á að breyta framleiðslu á steypu. Hann hefur meðal annars verið í Kína að leiðbeint þarlendum. Þessi breyting þegar og ef hún gengur eftir bara í Kína, myndi spara á einu ári meira en heildarnotkun okkar á jarðefna eldsneyti í áratug. Það mætti efla rannsóknir á steypu og jafnvel reka steinsteypu skóla. Það voru mikil mistök að leggja niður Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins Ef við gætum þannig haft áhrif á steinsteypu framleiðslu í heiminum munaði mikið um það. Vindmillur á Íslandi munu aldrei skipta neinu í stóra samhenginu en það gætu rannsóknir gert. Professor Simon Michaux. Simon vann lengi í námuiðnaðinum í Ástralíu og er núna prófessor við háskóla í Finnlandi. Hann hefur farið í saumana á hugmyndum um orkuskiptin. Reiknað út hvað myndi þurfa af málmum og öðrum steinefnum til að kolefnislaus framtíð geti átt sér stað. Það skal tekið fram að hann telur sjálfsagt að stefna í átt að því að draga úr brennslu jarðefna eldsneytis, þó ekki væri nema vegna þess að þessar auðlindir eru takmarkaðar. Það sé ekki nóg að seta sér markmið, það þurfi líka að hugsa hvernig á að ná þeim og að það verði að gefa þróuninni lengri tíma það séu draumórar að stefnan að á að ná þessu fyrir 2050. Hann hefur mörgum eflaust til ama og armæðu, sest niður og reiknað hvað þyrfti til af málmum, til að þessi orkuskipti geti átt sér stað. Það eru vel á annan milljarð bíla í heiminum og framleiddir 65-70 miljón bílar á ári. Ef orkan kemur ekki frá jarðefna eldsneyti þarf gríðarlegt magn af vindmillum sólarsellum og kjarnorkuverum til að framleiða alla orkuna bæði til að framleiða þá og reka. Bílarnir eru samt aðeins brot af öllu saman. Alla innviði þarf að styrkja. Í UK tala menn um að það þurfi að tvöfalda háspennulínur og spennistöðvar til að orkuskiptin geti átt sér stað. Hann tekur kopar sem dæmi um málm sem þarf í gríðarlegu magni til að orkuskiptin geti orðið. Það hafi verið algengt þegar hann var að byrja í námuiðnaðinum að kopar hafi verið unnin úr málmgrýti sem hafði haft meira en 2% kopar. Í dag sé algengt að kopar innihaldið sé langt undir 1%. Jafnvel niður í 0,1 % Það þarf þannig að vinna miklu meira af jarðefnum sem krefst miklu meiri orku en áður þurfti. Orka kemur í dag fyrst og fremst frá jarðefnaeldsneyti. Ef ný náma er opnuð þarf mikla orku í mörg ár áður en fyrsta kílóið af kopar kemur frá námunni. Það þarf að byggja vinnslustöðina, flytja efni til að komast að sjálfu málm grýtinu. Það þarf síðan frumskóg af vindmillum leiðslum og spennistöðum til að framleiða rafmagnið sem þyrfti til að koma af stað og reka hverja nýja námu svo þurfa þessar gömlu líka sitt. Í þessum námum er oft 20 til 30 trukkar, sem hver flytur meira en 200 tonn af efni. Þessir trukkar ganga allan sólarhringinn alla daga. Þeir ganga fyrir dísil og eru öflugar dælur, sem fylla á þá og tekur það aðeins 2-3 mínútur. Hagkvæmni námanna byggir á góðri nýtingu véla og tækja. Það eru ekki til batterí fyrir svona bíla og ef þau væru til, yrði að stoppa þá tímum saman til að hlaða þá. Það er eins gott að það blási. Kopar yrði að snarhækka í verði. Það sem Simon telur þó verra að það er ekki vitað hvar ætti að vinna allan þennan kopar, sem þarf til að orkuskiptin geti átt sér stað. Það horfir enn verr með aðra ýmsa aðra málma. Þegar greinilega vantar kopar á heimsvísu, væri illa farið með góðan kopar að seta hann í vindmylur á Íslandi. Simon hefur flutt fjöldann allan af fyrirlestrum um allan heim meðal annars fyrir stjórnmálamenn og embættismenn. Stjórnvöld víða um heim reka stefnu sem gengur ekki upp. Stjórnvöld hlusta á hann en virðast ekki vita hvernig þau eiga að bregðast við. Menn virðast fastir í farinu. Það eru fjöldinn allur af fyrirlestrum og viðtölum á YouTube við Simon, sem ég ráðlegg þeir sem eru áhugasamir um orkuskipti ættu endilega að kynna sér. Hugmyndin um að framleiða eldsneyti með vindmillum á Austurströnd Kanada. James Fleay er líka Ástralskur með mikla þekkingu á námugreftri og framleiðslu á eldsneyti. Það eru fróðleg viðtöl við hann á YouTube um vetnisframleiðslu og um reynslu Ontario á að veðja á vind og sólar og hugmyndir um að framleiða græna orku til útflutnings frá Kanada. Lokaorð. 1. Fullyrðingar um orkuskort byggja á túlkun, sem margir hafa bent á að sé röng. Hún byggir á vilja til að virkja meira af því það er hægt að selja meiri orku. 2. Ísland er fallegt land. Risastórar vindmyllur myndu vegna stærðar sinnar gnæfa yfir landinu og eyðileggja þá upplifun, sem ég og mjög margir hafa af landinu. Myndir af vindmyllugörðum erlendis eru oft hreinn hryllingur. Þetta eitt og sér ætti að stoppa vindmyllu væðingu hér á landi. 3. Hingað hefur flust mikið af fólki. Stjórnvöld boða miklar húsbyggingar og ýmsar aðrar framkvæmdir. Í einkageiranum er mikil gróska. Stjórnvöld og Seðlabankinn telja þenslu orsök verðbólgu. Alþingi ætti að reyna að hægja á, ekki ýta undir þenslu. Að ætla sér að flýta vindmillu framkvæmdum, í þessu ástandi væri glapræði. Hvert eitt af þessum þremur atriðum ætti að stoppa þessa lagasetningu. Gunnar Einarsson fyrrverandi bóndi. Langholti 19 Akureyri.
- #5Dagur Indriðason
Sem íbúi í Langanesbyggð langar mig að benda á að það er ekki skortur á rafmagni sem er vandamálið, heldur bæði skortur á dreifikerfi og nýtingu þeirra náttúrulegra valkosta sem við höfum nú þegar á svæðinu. Hér renna árnar hlið við hlið óbeislaðar til sjávar og mjög auðvelt að gera rennslisvirkjanir innarlega í hverri á fyrir sig án þess að raska laxveiði eða hafa stórkostleg áhrif á umhverfið. Það er hins vegar ógerlegt í dag vegna Þess að dreifikerfið er ekki fyrir hendi. Það að halda því fram að vindmyllur séu umhverfisvænn valkostur er í besta falli barnalegt og greinilegt að menn hafa ek… Lesa alla
Sem íbúi í Langanesbyggð langar mig að benda á að það er ekki skortur á rafmagni sem er vandamálið, heldur bæði skortur á dreifikerfi og nýtingu þeirra náttúrulegra valkosta sem við höfum nú þegar á svæðinu. Hér renna árnar hlið við hlið óbeislaðar til sjávar og mjög auðvelt að gera rennslisvirkjanir innarlega í hverri á fyrir sig án þess að raska laxveiði eða hafa stórkostleg áhrif á umhverfið. Það er hins vegar ógerlegt í dag vegna Þess að dreifikerfið er ekki fyrir hendi. Það að halda því fram að vindmyllur séu umhverfisvænn valkostur er í besta falli barnalegt og greinilegt að menn hafa ekki kynnt sér hvaða áhrif þær hafa á fuglalíf og annað nærumhverfi. Hér í Langanesbyggð hefur verið á teikniborðinu að byggja vindmyllugarð á Brekknaheiði sem eiga að vera allt að 200 metra háar. Landsvæði þetta er afar blautt og langt niður á fast. Það ætti því að segja sér sjálft að það þarf að leggja út í gríðarlega kostnaðarsama og óumhverfisvæna vegagerð til að koma efni, tækjum og búnaði á sinn stað. Undirstöður fyrir slík mannvirki þyrfu einnig að vera risavaxnar. Til að bíta svo höfuðið af skömminni er ekkert efni á svæðinu til að nota í vegagerð sem slíka og því er ljóst að hér eru umhverfis sjónarmið ekki höfð í hávegum. Eitt af vandamálum vindmylla er hversu illa spaðarnir endast. Hafi þeir enst illa í meginlandi Evrópu, hvernig má þá ímynda sér að þeir þoli íslenskt veðurfar?? Þegar þeir eru ónýtir hefur svo lausnin verið að grafa þá í vinmyllukirkjugarði í Frakklandi. Sjálfur er ég ekki á móti vinmyllum þar sem aðrir kostir eru ekki í boði. Við hins vegar höfum aðra og betri kosti. Við ættum við að byrja á að skoða í hvað við erum að nota orkuna ásamt því að bæta dreifikerfið. Þá fyrst er hægt að virkja fleiri ár með það í huga að raska landinu og umhverfi okkar sem allra minnst. Er það góður kostur fyrir okkur að selja okkar grænu orku til þeirra sem eru stórnotendur af henni hér á landi? Hvað með gagnaver, álver og slíka stórnotendur? Við eigum stórkostlegt land og náttúru fær fólk um allan heim til að koma og heimsækja okkur og njóta hennar með okkur. Það er glapræði að þekja landið okkar með vindmyllum og henda þar með krónunni fyrir aurinn. Að lokum langar mig að að benda á grein frá RÚV sem undirstrikar mál mitt um hvernig við vannýtum þá orku sem við höfum nú þegar til staðar vegna þess hversu úrelt dreifikerfi okkar er. https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-12-29-orka-fra-karahnjukum-komst-ekki-a-sudvesturhornid-og-for-til-spillis-400872
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.