Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-154/2024 · Heilbrigðisráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (ýmsar breytingar)

Kynnt eru áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (ýmsar breytingar).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Gildandi lög um sjúkraskrár, voru sett árið 2009, og taka ekki nægilega mið af stafrænni þróun og þeim tækifærum sem í henni felast. Brýnt er að uppfæra lögin til samræmis og tryggja að þau styðji við innleiðingu stefnu stjórnvalda um stafrænar umbætur og endurspegli þá staðreynd að stafræn heilbrigðisþjónusta er ört vaxandi hluti almennrar heilbrigðisþjónustu. Meðal þeirra breytinga sem munu koma til álita við vinnslu frumvarpsins, er hvort gera eigi frekari kröfur til skráningar í rafrænar sjúkraskrár og um nýtingu rafrænna sjúkraskrárkerfa, hvort þörf sé á lagabreytingum til að stíga frekari skref í átt að miðlægri sjúkraskrá og hvernig tryggja eigi viðeigandi og fullnægjandi heimildir fyrir miðlun sjúkraskrárupplýsinga við veitingu samþættrar félags- og heilbrigðisþjónustu.

S-154/2024· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2024 – 4. sep. 2024· 5 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (ýmsar breytingar)

Kynnt eru áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (ýmsar breytingar).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-154/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. september 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 258)
Niðurstöður samráðs (5. nóvember 2024)

Alls bárust 5 umsagnir við frumvarpið. Frumvarpið fór til frekari vinnslu í ráðuneytinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Persónuvernd

    Í viðhengi er að finna umsögn Persónuverndar, dags. 19. ágúst 2024.

  • #2Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir
    Lyfjafræðingafélag Íslands fangnar tillögu á að vinna sé hafin við að undirbúa sameiningu sjúkraskráa á Íslandi. Mörg lyfjatengd atvik á heilbrigðisstofnunum verða vegna þess að erfitt er að lesa úr sjúkraskrám og lyfjafyrirmælakerfum á milli stofnana og lyf sem fólk á að vera á eru þá ekki rétt sett inn á nýrri stofnun. Í dag er oft öruggast að senda einstaklinga með yfirlit yfir lyfin sín á pappír á milli stofnana sem er mjög skakkt fyrirkomulag í eins stafrænu samfélagi og við búum í. Lyfjaöryggi myndi aukast ef hægt væri að flytja á einfaldan hátt lyfjafyrirmæli frá einni stofnun yfir á… Lesa alla

    Lyfjafræðingafélag Íslands fangnar tillögu á að vinna sé hafin við að undirbúa sameiningu sjúkraskráa á Íslandi. Mörg lyfjatengd atvik á heilbrigðisstofnunum verða vegna þess að erfitt er að lesa úr sjúkraskrám og lyfjafyrirmælakerfum á milli stofnana og lyf sem fólk á að vera á eru þá ekki rétt sett inn á nýrri stofnun. Í dag er oft öruggast að senda einstaklinga með yfirlit yfir lyfin sín á pappír á milli stofnana sem er mjög skakkt fyrirkomulag í eins stafrænu samfélagi og við búum í. Lyfjaöryggi myndi aukast ef hægt væri að flytja á einfaldan hátt lyfjafyrirmæli frá einni stofnun yfir á aðra (t.d. ef um sama tölvukerfi væri að ræða sem talaði saman á milli stofnana).

  • #3Benedikt Sveinbjörn Benediktsson

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka heilbrigðisfyrirtækja um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (ýmsar breytingar).

  • #4Íris Gunnarsdóttir

    Sjá meðfylgjandi bréf.

  • #5Steinunn Þórðardóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Læknafélags Íslands (LÍ). Bestu kveðjur, Steinunn Þórðardóttir - formaður LÍ

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-154/2024: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár, nr. 55/2009 (ýmsar breytingar) · Alviti