Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-217/2022 · Forsætisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Breytingarnar snúa að meginstefnu til að fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember); 154. þing (áætlað: október).

Í gildandi lögum um Seðlabanka Íslands er kveðið á um að fjármálaeftirlitsnefnd taki allar ákvarðanir sem faldar eru Fjármálaeftirlitinu í lögum. Einnig er kveðið á um að nefndin geti framselt vald sitt til töku ákvarðana sem ekki teljast meiri háttar til varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits. Í skýrslu úttektarnefndar sem forsætisráðherra skipaði í júní 2021 til að annast úttekt á reynslunni af starfi nefnda Seðlabanka Íslands er bent á að með þessu fyrirkomulagi sé flækjustig aukið í rekstri og samskiptum við eftirlitsskylda aðila og að betur færi á því að Seðlabankanum væri falið í lögum að taka ákvarðanir á sviði fjármálaeftirlits. Þá var gerð athugasemd við hið umfangsmikla valdaframsal til varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits. Einnig kemur fram að rétt væri að afmarka þær ákvarðanir sem lagðar eru fyrir fjármálaeftirlitsnefnd og er lögð fram sú tillaga að ákvarðanir verði takmarkaðar við refsikennd viðurlög og íþyngjandi stjórnsýsluákvarðanir. Í ljósi framangreindra ábendinga eru í frumvarpinu að finna tillögur að breytingum á lögum um Seðlabanka Íslands sem einkum lúta að því að Seðlabanki Íslands taki að meginstefnu þær ákvarðanir sem faldar eru Fjármálaeftirlitinu í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum, en að fjármálaeftirlitsnefnd taki eða hafi aðkomu í tilteknum tegundum veigameiri mála, sem að meginstefnu fela í sér beitingu stjórnsýsluviðurlaga og þvingunarúrræða.

S-217/2022· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. nóv. 2022 – 21. nóv. 2022· 1 umsögn

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019. Breytingarnar snúa að meginstefnu til að fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-217/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. nóvember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 541)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. júlí 2024)

Ein umsögn barst frá Seðlabanka Íslands.Tekið er undir þá afmörkun á ákvörðunum fjármálaeftirlitsnefndar sem lögð er til í 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins um breytingu á 15. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands. Bankinn gerir athugasemd við tillögur að nýjum málsliðum sem fela í sér hefðbuindnar eftirlitsákvarðanir sem heyri undir rekstur bankans. Um niðurstöðu má nánar lesa í frumvarpinu sem samþykkt var á 153. löggjafarþingi, https://www.althingi.is/altext/153/s/0683.html

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-217/2022: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands · Alviti