Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-263/2023 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um námsstyrki nr. 79/2003

Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um námsstyrki, til að gera nemendum sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða kleift að sækja um styrk.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Á síðastliðnum árum hefur fjölda einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða fjölgað umtalsvert á Íslandi. Með hliðsjón af þeirri þróun hafa stjórnvöld leitast við að tryggja farsæla móttöku þessa hóps, t.d. með því að fjölga þeim sveitarfélögum sem taka þátt í svonefndri samræmdri móttöku. Í ljósi þess að sum þessara sveitarfélaga eru staðsett á landsbyggðinni er ljóst að börn, sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, munu í auknum mæli setjast að og stunda nám þar sem fjarlægðir á milli lögheimilis, fjölskyldu og skóla geta verið umtalsverðar. Framangreindir nemendur eiga þó ekki, ólíkt öðrum nemendum í sambærilegri stöðu, rétt á námsstyrk samkvæmt lögum um námsstyrki nr. 79/2003, enda er það skilyrði í núgildandi 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna að viðkomandi sé íslenskur ríkisborgari eða ríkisborgari erlends ríkis sem íslenska ríkið hefur gert samning við. Ljóst er að í þeim tilfellum þar sem t.d. er um að ræða nemendur sem teljast ríkisfangslausir og hafa fengið vernd á þeim grundvelli yrði umrætt skilyrði ekki uppfyllt. Með hinu áformaða frumvarpi er því stefnt að því að gera tilteknar breytingar á 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna, svo umræddir nemendur geti átt rétt til námsstyrkja og þar með sé jafnræðis gætt á milli umsækjenda um styrk.

S-263/2023· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. des. 2023 – 11. jan. 2024· 0 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um námsstyrki nr. 79/2003

Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um námsstyrki, til að gera nemendum sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða kleift að sækja um styrk.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-263/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. janúar 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 934)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. ágúst 2024)

Engar umsagnir bárust. Gert er ráð fyrir að drög að frumvarpi um þetta efni verði birt í Samráðsgátt í byrjun árs 2024.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-263/2023: Áform um breytingu á lögum um námsstyrki nr. 79/2003 · Alviti