Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Orkusjóð
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-250/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. janúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 942)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Rannsóknamiðstöð Íslands
Umsögn Rannsóknamiðstöðvar Íslands um „Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Orkusjóð“ Mál nr. 250/2022. 153. löggjafarþing 2022-2023 Rannís lýsir yfir ánægju með áform um lagasetningu sem hefur að markmiði að sameina tvo opinbera samkeppnissjóði, Orkusjóð og Loftslagssjóð. Rannís telur það skilvirkara að hafa færri og stærri samkeppnissjóði, auk þess sem slíkt fyrirkomulag mun leiða til sparnaðar við umsýslu. Rannís hefur séð um umsýslu Loftslagssjóðs með góðum árangri frá upphafi í góðu samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Ekki kemur fram í greinargerð um fyrir… Lesa alla
Umsögn Rannsóknamiðstöðvar Íslands um „Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Orkusjóð“ Mál nr. 250/2022. 153. löggjafarþing 2022-2023 Rannís lýsir yfir ánægju með áform um lagasetningu sem hefur að markmiði að sameina tvo opinbera samkeppnissjóði, Orkusjóð og Loftslagssjóð. Rannís telur það skilvirkara að hafa færri og stærri samkeppnissjóði, auk þess sem slíkt fyrirkomulag mun leiða til sparnaðar við umsýslu. Rannís hefur séð um umsýslu Loftslagssjóðs með góðum árangri frá upphafi í góðu samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Ekki kemur fram í greinargerð um fyrirhugaða lagasetningu hver yrði umsýsluaðili nýs Orku- og loftslagssjóðs, en Rannís er tilbúið að sinna þeirri umsýslu sé þess óskað. Virðingarfyllst, Ágúst H. Ingþórsson Forstöðumaður
- #2Samband íslenskra sveitarfélaga
Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. sambandsins Valgerður Rún
- #3Jón Björn Skúlason
Orkusjóður hefur gegnt lykilhlutverki í orkuskiptaverkefnum á undanförnum árum. Stærð sjóðsins var lengi vel takmörkuð þar til á síðasta ári var úthlutað yfir 1.000 milljónum kr. Orkuskiptaverkefni eru ekki alltaf loftslagsverkefni, nema ef notuð er vistvæn orka. Loftslagsverkefni eru síðan af fjölbreyttum toga og ansi mörg hver eru ekki orkuskiptaverkefni. Fjármagnsþörf fyrir báða málaflokka er afar mikil ef ná á miklum árangri. Ef ná á settum markmiðum stjórnvalda í orkuskiptum þarf að auka framlög verulega til orkuskipta. Framundan eru mun flóknari og dýrari umskipti en því sem lokið er… Lesa alla
Orkusjóður hefur gegnt lykilhlutverki í orkuskiptaverkefnum á undanförnum árum. Stærð sjóðsins var lengi vel takmörkuð þar til á síðasta ári var úthlutað yfir 1.000 milljónum kr. Orkuskiptaverkefni eru ekki alltaf loftslagsverkefni, nema ef notuð er vistvæn orka. Loftslagsverkefni eru síðan af fjölbreyttum toga og ansi mörg hver eru ekki orkuskiptaverkefni. Fjármagnsþörf fyrir báða málaflokka er afar mikil ef ná á miklum árangri. Ef ná á settum markmiðum stjórnvalda í orkuskiptum þarf að auka framlög verulega til orkuskipta. Framundan eru mun flóknari og dýrari umskipti en því sem lokið er, þ.e. stærri farartæki á landi, skip og flugvélar. Ljóst er að þátttaka frá opinberum aðilum mun að miklu leiti stýra hversu hratt slík verkefni geta komist á skrið. Ef sameining sjóða fer fram er því afar mikilvægt að skilgreina mismunandi verkefni - þ.e. skilgreina þau svið sem hægt er að sækja um á þannig að verkefni tengd t.d. metanólvæðingu fiskiskipaflota séu ekki metin á móti verkefnum um votlendi, o.s.frv. Þá er brýnt að greina leiðir til að auka fjölbreytni umsækjenda og styrkveitinga sameinaðs sjóðs. Íslensk NýOrka telur að það gæti orðið framfaraskref ef sjóðirnir eru sameinaðir ef þeir eru efldir samtímis. Mikilvægast er þó að fagleg vinnubrögð séu höfð í hávegum við mat á umsóknum og að sjálfstæðir matsaðilar geri grein fyrir og rökstyðji verkefnaval. Þetta hefur verið gagnrýnt af fyrirtækjum varðandi mat á umsóknum í Orkusjóð þar sem umsækjendur hafa ekki fengið einkunn, eða mat á sínum umsóknum, aðeins já eða nei. Gagnsæi í mati þar hefur einnig verið gagnrýnt. Einnig er afar mikilvægt að stjórn sjóða sé fullkomlega sjálfstæð, samsett af fagfólki og ekki séu pólitískt skipaðir stjórnarmenn í mats-, eða úthlutunarnefndum. Ljóst er slíkur sameinaður sjóður mundi gegna lykilhlutverki í orkuskiptum á næstu árum. Eins og staðan er í dag munu markmið stjórnvalda í loftslagsmálum árið 2030 ekki nást. Það þarf því að efla slíkan sjóð umtalsvert og tækjakaup verða að verða hluti af slíkum sjóði, því annars mun hraði innleiðingar verða enn minni Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku
- #4Guðmundur Hörður Guðmundsson
Í umsögninni er ekki lagt mat á það hvort að fyrirhuguð breyting sé líklegri til að skila meiri eða minni árangri en núverandi fyrirkomulag varðandi samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, en einungis bent á að breytingarnar virðast ganga gegn Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og munu koma í veg fyrir að sveitarfélög, félagasamtök, skólafólk, fjölmiðlafólk, lítil fyrirtæki og aðrir geti fengið styrki til kynningar- og fræðslumála á þessu sviði.
- #5Konur í orkumálum
Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn stjórnar Kvenna í orkumálum (KÍO). f.h. félagsins Hildur Harðardóttir, formaður stjórnar
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.