Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu (heilbrigðisskrár)
Áformað er að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. Varða breytingar ákvæði um heilbrigðisskrár sem embætti landlæknis heldur.
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).
Heilbrigðisráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, en frumvarpinu er ætlað að kveða á með ítarlegri hætti um efni 8. gr. laganna um heilbrigðisskrár. Samkvæmt gildandi lögum er heimilt að halda tilgreindar heilbrigðisskrár í þeim tilgangi að afla þekkingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu, hafa eftirlit með þjónustunni, tryggja gæði hennar og meta árangur þjónustunnar, ásamt því að nota þær við gerð áætlana um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustunni og vísindarannsóknum. Síðasta áratug hafa miklar framfarir orðið í tækniþróun í heilbrigðiskerfinu og þörf á að uppfæra núgildandi ákvæði um heilbrigðisskrár til samræmis við þá þróun. Eru áform um að skilgreina frekar tilgang og markmið heilbrigðisskráa, kveða á um grunnskrár heilbrigðisþjónustu, meðferðartengdar heilbrigðisskrár, heilbrigðisskrár sem byggja á samþykki einstaklinga og gæðaskrár. Þá eru áform um að veita ráðherra skýrari heimild til að kveða á um heilbrigðisskrár sem heimilt er að halda í reglugerð, án þess að lagabreytingu þurfi til, auk þess sem áformað er að yfirfara ákvæði um persónugreinanlegar heilbrigðisskrár m.t.t. persónuverndar.
Áform um lagasetningu - Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu (heilbrigðisskrár)
Áformað er að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. Varða breytingar ákvæði um heilbrigðisskrár sem embætti landlæknis heldur.
Að hafa aðgang að sjúkraskrám er grundvöllur þátttöku okkar í alþjóðlegu vísindastarfi fyrir MND veika til dæmis. Að ekki séu til miðlægar upplýsingar um taugasjúkdóma hefur háð innlendum og erlendum vísindamönnum að leita nýrra leiða til að bæta líf þessa hóps.
Ég skora á löggjafann að hleypa fleirum að þessum mikilvægu upplýsingum og innifela sem flesta sjúkdóma flokka í svona miðlægum skrám.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)