Frumvarp til laga um námsgögn
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um námsgögn.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-74/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 25. mars 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 18 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (155. þing, mál 222)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. október 2026)
Alls bárust 17 umsagnir. Almennt voru umsagnir jákvæðar og komu ýmsar gagnlegar ábendingar fram sem var litið til við áframhaldandi vinnslu frumvarpsins. Þar á meðal var ábending um að umfjöllun um tónlistarskóla vantaði í 2. gr. frumvarpsins og varð ábendingin tilefni til breytinga á frumvarpinu. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 155. löggjafarþingi, þingskjal 223 – 222. mál, þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðum samráðs í 5. kafla frumvarpsins.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (18)
- #2Samtök iðnaðarins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins og Samtaka menntatæknifyrirtækja.
- #3Skagafjörður
Á 89. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 20. mars 2024 var tekið fyrir mál nr. 74/2024 til samráðs, Frumvarp til laga um námsgögn, og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar frumvarpinu en bendir á að æskilegt væri að skilgreina betur hugtakið námsgögn og yfir hvers konar gögn og gæði það nær yfir. Nær það eingöngu yfir bækur eða gögn á stafrænu formi eða nær það einnig til t.d. spjaldtölva, íþróttafatnaðar eða hesta og efniskaupa vegna iðnnáms? Byggðarráð bendir einnig á að sárlega skortir mat á áhrifum frumvarpsins á kostnað sem hugsanlega gæti lent á sveitarfélögum la… Lesa alla
Á 89. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 20. mars 2024 var tekið fyrir mál nr. 74/2024 til samráðs, Frumvarp til laga um námsgögn, og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar frumvarpinu en bendir á að æskilegt væri að skilgreina betur hugtakið námsgögn og yfir hvers konar gögn og gæði það nær yfir. Nær það eingöngu yfir bækur eða gögn á stafrænu formi eða nær það einnig til t.d. spjaldtölva, íþróttafatnaðar eða hesta og efniskaupa vegna iðnnáms? Byggðarráð bendir einnig á að sárlega skortir mat á áhrifum frumvarpsins á kostnað sem hugsanlega gæti lent á sveitarfélögum landsins. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #4Hagþenkir,félag höfunda fræðirita og kennslugagna
Umsögn Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna um frumvarp til laga um námsgögn Vert er að geta þess í upphafi að kennslugögn geta verið á mjög fjölbreyttu formi og félagar í Hagþenki eru höfundar að margs konar efni, svo sem bókum, rafbókum, vefsíðum, forritum, leikjum, fræðslu- og heimildamyndum. Félagar í Hagþenki eru núna 735 talsins. Hagþenkir fagnar umræðu um námsgögn og vilja til að stuðla að auknu framboði fjölbreyttra gæðanámsgagna, sem birtist meðal annars í Menntastefnu-2030 og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Sömuleiðis er ástæða til að gleðjast yfir áætlunum um… Lesa alla
Umsögn Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna um frumvarp til laga um námsgögn Vert er að geta þess í upphafi að kennslugögn geta verið á mjög fjölbreyttu formi og félagar í Hagþenki eru höfundar að margs konar efni, svo sem bókum, rafbókum, vefsíðum, forritum, leikjum, fræðslu- og heimildamyndum. Félagar í Hagþenki eru núna 735 talsins. Hagþenkir fagnar umræðu um námsgögn og vilja til að stuðla að auknu framboði fjölbreyttra gæðanámsgagna, sem birtist meðal annars í Menntastefnu-2030 og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Sömuleiðis er ástæða til að gleðjast yfir áætlunum um gjaldfrjáls námsgögn framhaldsskólanemenda og barna leikskólastigsins. Hvorutveggja kallar á aukið fjármagn og eflingu sjóða. Útgáfa námsefnis á íslensku hefur því miður verið í lægð. Við getum sannarlega gert betur og við skynjum áhuga fyrir því hjá stjórnvöldum – og öllum er málið varðar. Höfundar Að útbúa námsefni krefst mikillar hæfni og sérþekkingar á ýmsum sviðum. Höfundar eru oftast í aðalhlutverki, en verkið kallar engu að síður á samvinnu ólíkra sérfræðinga. Til staðar verður að vera góð þekking á viðfangsefninu, kennslufræðileg þekking, sú list að kunna að skrifa á máli sem við á, hæfni til að myndskreyta og gera skýringarmyndir, auk þess að ganga frá til útgáfu, hver svo sem miðillinn er. Þáttur góðs ritstjóra í margþættu verkefni er einnig ómetanlegur. Námsefnisgerð er augljóslega verk sem margir koma að. Til að skrifa fjölbreytt gæðanámsefni, eins og vilji stjórnvalda stendur til, þarf góða höfunda, raunverulegt fagfólk. Slíkt fólk er ekki á hverju strái. Það verður að hugsa vel um aðstæður og starfskjör þessa fólks og gera þeim almennilega kleift að helga sig skrifum. Undanfarin ár hefur því miður verið treyst á fórnfýsi og óeigingjarnt starf námsefnishöfunda. Á því verður að gera bragarbót. Hagþenki finnst skjóta skökku við að hvergi sé minnst á höfunda í lagagreinum í frumvarpi til laga um námsgögn. Einstaka athugasemdir við frumvarpið og greinargerðina 9. grein Hagþenkir gerir athugasemd við samsetningu stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna. Rök fyrir að þar eigi sæti fulltrúi atvinnulífsins koma ekki fram og erfitt er að koma auga á þau. Atvinnulíf er vítt hugtak, en í greinargerð sem fylgir frumvarpinu þar sem fjallað er um „meginefni frumvarpsins“ er tekið fram að fulltrúinn skuli vera tilnefndur af Samtökum iðnaðarins. Tengsl iðnaðar við menntun og námsefnisgerð eru óljós og órökstudd. Nemendur eru skv. frumvarpinu dregnir að stjórnarborðinu. Ekki er ástæða til að mæla gegn því að nemendur séu fengnir til að fjalla um mál er þá varðar, en miðað við hlutverk stjórnar er ef til vill þarna til of mikils mælst af ungu fólki. Í þessu samhengi má benda á að sjóðsstjórn er heimilt að fá utanaðkomandi ráðgjöf við mat á umsóknum. Það er ef til vill betri leið til að fá fram álit nemenda, þar sem á þarf að halda. Hagþenki þætti eðlilegt að í stjórn Þróunarsjóðs námsgagna ætti sæti námsefnishöfundur eða annar fulltrúi sem þekkir vel til námsefnisgerðar. Þess má til samanburðar geta að Hagþenkir á fulltrúa í stjórn Starfslaunasjóðs sjálfstætt starfandi fræðimanna. -- Hagþenkir leggur til að Þróunarsjóður námsgagna standi fyrir námskeiðum: Í ljósi þess að hlutverk Þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun og þróun í námsefnisgerð væri við hæfi að sjóðurinn stæði að námskeiðum fyrir höfunda og kennara í þeim anda. Þar væri eðlilegt að hafa samráð við Hagþenki ásamt Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, háskóla og aðra fagaðila. 10. grein Tekið er fram í frumvarpinu að styrkir úr Þróunarsjóði námsgagna skuli veittir einstaklingum, rekstraraðilum skóla og fyrirtækjum. Hagþenkir telur eðlilegt að allir geti sótt um og fengið styrki úr sjóðnum ef umsókn uppfyllir gæðakröfur og skilyrði sem sett eru. Að setja fram þennan lista yfir mögulega styrkþega getur útilokað að verðug verkefni hljóti styrki. Dæmi um það eru verkefni sem unnin eru af opinberum stofnunum, svo sem viðurkenndum söfnum sem gegna hlutverki í skólakerfinu og ber samkvæmt safnalögum að taka á móti nemendum í skipulögðum námsferðum. 11. grein Hér er fjallað um útgáfuáætlun. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MSS) ætti að vera með fingurinn á púlsinum hvað námsefnisgerð og -útgáfu varðar og því er eðlilegt að stofnunin komi að gerð útgáfuáætlunar, en ekki er minnst á hana í lagagreininni. Í upptalningu hagsmunaaðila væri og eðlilegt að sjá höfunda, auk háskóla sem mennta kennara og stunda jafnvel rannsóknir á námsefni. Þess má geta að í greinargerðinni sem fylgir frumvarpinu þar sem fjallað er um 11. greinina er sagt: „Útgáfuáætlunin skal gefin út af ráðuneyti en unnin í samstarfi við Menntamálastofnun, hagsmunaaðila, nemendur, kennara og skóla og út frá greiningu á þróun og nýsköpun í námsefnisgerð.“ Hér gætir augljóslega ósamræmis og Menntamálastofnun er verið að leggja niður. Í inngangi greinargerðar: „Starfshópurinn skilaði drögum að skýrslu um starf sitt með tillögum að úrbótum til ráðherra í byrjun mars 2024.“ Þetta er orðum aukið. Í kaflanum Samráð: „Helstu hagsmunaaðilar eru skólasamfélagið, þ.m.t. börn, foreldrar, starfsfólk og stjórnendur í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum, atvinnulífið, þ.m.t. bókaútgefendur og menntatæknifyrirtæki og stjórnvöld, þ.m.t. sveitarfélög.“ Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna saknar þess að sjá ekki höfunda í þessari upptalningu. Í raun réttri ættu þeir að vera þarna framarlega. Í kaflanum er enn beint sjónum að hinu víða hugtaki atvinnulífi, en nú er kastljósinu sérstaklega beint að bókaútgefendum og menntatæknifyrirtækjum. Um þýðingar í tengslum við 1. grein: Í frumvarpinu er lagt til að gildissvið laganna nái til þýðinga á námsefni. „Í undirbúningi frumvarpsins, þar á meðal í umræðu starfshóps sem vann undirbúningsvinnu fyrir það, kom fram skýr vilji til að styðja á þennan hátt við þýðingar á námsefni. Af þessari breytingu leiðir meðal annars að þróunarsjóður námsgagna getur styrkt þýðingar á námsefni sem ekki hefur verið heimilt hingað til.“ Í starfshópnum var rætt um mikilvægi þýðinga og sérstakan þýðingarsjóð fremur en að Þróunarsjóður námsgagna styrkti þýðingar. Ef niðurstaðan er sú að Þróunarsjóðurinn veiti styrki til þýðinga er mikilvægt að fjármagn til þeirra sé skýrt afmarkað svo nýsköpun og þróun íslensks efnis fái sanngjarnan og æskilegan skerf. Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna ítrekar ánægju yfir að stuðlað verði að útgáfu fjölbreytts gæðanámsefnis á komandi árum. Skortur er á námsefni og þörfin knýjandi. Við vonum og treystum að fagleg vinnubrögð verði viðhöfð og þar skiptir 5. grein laganna miklu máli. Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, ítrekar að höfundar eru í lykilhlutverki hvað varðar gerð námsefnis á hvaða formi sem þau eru. Því er eðlilegt að höfundar komi með afgerandi hætti að allri stefnumótun og áætlunum sem varða námsgögn. Fyrir hönd stjórnar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Sólrún Harðardóttir í stjórn Hagþenkis, Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra og Gunnar Þór Bjarnason formaður Hagþenkis
- #5Hljóðbókasafn Íslands
Hljóðbókasafn Íslands minnir á mikilvægi þess að ávallt sé hugað að því að námsgögn séu aðgengileg fyrir blinda, sjónskerta og fólk sem glímir við lestrarhömlun, annað hvort frá fyrstu hendi eða með virku samstarfi við Hljóðbókasafnið. Eitt hlutverk Hljóðbókasafnsins er að annast framleiðslu, útgáfu og dreifingu á safnefni, þar á meðal námsgögnum (aðallega fyrir framhaldsskóla), í sem bestu samræmi við óskir og þarfir notenda, og í því formi sem er viðeigandi hverju sinni.
- #6Anna Magnea Hreinsdóttir
Sjá meðfylgjandi umsögn stjórn félags um menntarannsóknir um frumvarp til laga um námsgögn
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.