Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-76/2023 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003, o.fl

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá og fl. v. ákvæða í tilskipunum og reglugerðum framkvæmdastjórnar ESB um samtengingarkerfi skráa skv. 22. gr. tilskipunar 2017/1132.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember); 154. þing (áætlað: nóvember).

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá og fleiri lagabálkum vegna ákvæða í tilskipunum ESB og framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnar ESB um samteningarkerfi skráa skv. 22. gr. tilskipunar (ESB) 2017/1132. Í framangreindu ákvæði er kveðið á um að samteningu aðal-, fyrirtækja- og félagaskráa í aðildarríkjunum. Í ákvæðum tilskipunarinnar og framkvæmdareglugerða framkvæmdastjórnarinnar settra á grundvelli hennar er kveðið á um að nánar tilgreindar upplýsingar um hlutafélög, einkahlutafélög, útbú erlendra hlutafélaga og einkahlutafélaga skuli vera aðgengilegar í gegnum samteningarkerfið. Einnig er í tilskipun (ESB) 2015/849 kveðið á um aðgang lögbærra yfirvalda og tilkynningaskyldra aðila eins og þeir eru skilgreindir í tilskipuninni að upplýsingum um raunverulega eigendur lögaðila í gegnum samteningarkerfið.

S-76/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. mar. 2023 – 3. apr. 2023· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003, o.fl

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá og fl. v. ákvæða í tilskipunum og reglugerðum framkvæmdastjórnar ESB um samtengingarkerfi skráa skv. 22. gr. tilskipunar 2017/1132.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-76/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. apríl 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 627)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (5. apríl 2024)

Frumvarpið var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 24. mars - 3. apríl 2023. Nokkrar breytingar urðu á frumvarpinu haustið 2023 og frumvarpið því kynnt aftur í samráðsgáttinni 22.-28. nóvember 2023, sjá mál S-244/2023. Tvær umsagnir bárust um frumvarpið í nóvember 2023. Umfjöllun um umsagnir og viðbrögð við þeim má finna í samráðskafla frumvarpsins eins og það var lagt fram á Alþingi, sjá nánar um þinglega meðferð málsins: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/154/627/?ltg=154&mnr=627

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-76/2023: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003, o.fl · Alviti