Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-204/2023 · Heilbrigðisráðuneytið

Breyting á drögum að frumvarpi - Aldursskilyrði við afgreiðslu lyfja

Heilbrigðisráðherra kynnir breytingu á drögum að frumvarpi til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.).

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Í kjölfar umræðu í þjóðfélaginu um afhendingu lyfja til einstaklinga yngri en 18 ára birtir heilbrigðisráðuneytið til umsagnar tillögu að breytingu á drögum að frumvarpi sem nú er til umsagnar, sbr. mál nr. 174/2023. Í breytingunni felst að bætt er við lagastoð sem felur í sér heimild til handa ráðherra til að kveða á um aldurstakmarkanir á afhendingu lyfja til einstaklinga yngri en 18 ára í reglugerð. Nái frumvarpið fram að ganga og verði að lögum á Alþingi mun vinna fara af stað við að útfæra slíkar takmarkanir í reglugerð sem verður unnin í breiðu samráði við hagsmunaaðila. Samráð stendur yfir til 5. nóvember nk. Hægt er að senda inn umsagnir varðandi aldursskilyrðin undir þetta mál eða mál nr. 174/2023.

S-204/2023· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2023 – 5. nóv. 2023· 2 umsagnir

Breyting á drögum að frumvarpi - Aldursskilyrði við afgreiðslu lyfja

Heilbrigðisráðherra kynnir breytingu á drögum að frumvarpi til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-204/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. nóvember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (12. júlí 2024)

Endurgert frumvarp verður birt í samráðsgátt stjórnvalda fyrir næsta löggjafarþing.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-204/2023: Breyting á drögum að frumvarpi - Aldursskilyrði við afgreiðslu lyfja · Alviti