Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-225/2022 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og við endurnotkun á tryggingu

Frumvarpinu er ætlað að innleiða efni Evrópugerðar um fjármögnunarviðskipti með verðbréf og endurnotkun á veði.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Eftirlitsaðilar og fjárfestar hafa ekki haft aðgang að fullnægjandi upplýsingum um fjármögnunarviðskipti með verðbréf. Þessi skortur á upplýsingum hefur komið í veg fyrir að stjórnvöld, eftirlitsaðilar og fjárfestar hafi getað metið og haft fullnægjandi eftirlit með áhættu og umfangi tengsla milli aðila. Samkvæmt frumvarpinu skulu þeir sem stunda fjármögnunarviðskipti með verðbréf tilkynna um þau til svokallaðrar viðskiptaskrár, sem er ný tegund starfsleyfisskylds aðila. Viðskiptaskrár taka á móti þessum tilkynningum og birta á aðgengilegan hátt upplýsingar um fjármögnunarviðskipti með verðbréf sundurliðað eftir gerð fjármögnunarviðskipta. Með fjármögnunarviðskiptum með verðbréf er átt við: 1. Endurhverf viðskipti sem fela í sér sölu á verðbréfum og samkomulag um að kaupa þau aftur síðar. 2. Lán á verðbréfi eða hrávöru. 3. Kaup- og endursöluviðskipti eða sölu- og endurkaupaviðskipti. 4. Lán sem er veitt í tengslum við kaup og sölu verðbréfa án þess að lánið sé tryggt með veði í verðbréfum. Í frumvarpinu er einnig fjallað um upplýsingagjöf sjóða um sameiginlega fjárfestingu um fjármögnunarviðskipti með verðbréf og heildarskiptasamninga. Þá er kveðið á um lágmarkskröfur þegar trygging er endurnotuð. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2365 um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og um endurnotkun og breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012 (SFTR).

S-225/2022· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. nóv. 2022 – 2. des. 2022· 1 umsögn

Frumvarp til laga um gagnsæi í fjármögnunarviðskiptum með verðbréf og við endurnotkun á tryggingu

Frumvarpinu er ætlað að innleiða efni Evrópugerðar um fjármögnunarviðskipti með verðbréf og endurnotkun á veði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-225/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. desember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 588)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (31. október 2023)

Ein umsögn barst er laut að gildistöku fyrirhugaðra laga.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.