Breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun
Tilgangur frumvarpsins er að tryggja að styrkveitingar séu í sem mestu samræmi við markmið laganna og stefnu stjórnvalda í málaflokknum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-169/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 5. október 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 450)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. nóvember 2023)
Sjá umfjöllun um samráð í 5. kafla greinargerðar með frumvarpi til laga um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Bændasamtök Íslands
Meðfylgjandi er umsögn BÍ
- #2Samtök iðnaðarins
Góðan dag. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins vegna breytinga á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.
- #3Fjórðungssamband Vestfirðinga
Fjórðungssamband Vestfirðinga ítrekar þá afstöðu sem sambandið setur fram í umsögn um áform um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun. Unnið er að úrbótum á samgöngukerfinu á Vestfjörðum er varðar stofnvegi og verður svo fram að þeim tíma sem stefnt er að endurskoðun laga um svæðisbundna flutningsjöfnun eða í lok árs 2025. Auk þess sem vetrarþjónusta á flutningsleiðum út frá Vestfjörðum með styttri þjónustutíma miðað við aðra landshluta Samkeppnisstaða fyrirtækja á Vestfjörðum er því lakari en annarra fyrirtækja í landinu, skerðing á framlögum til fyrirtækja á Vestfjörðum er því hé… Lesa alla
Fjórðungssamband Vestfirðinga ítrekar þá afstöðu sem sambandið setur fram í umsögn um áform um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun. Unnið er að úrbótum á samgöngukerfinu á Vestfjörðum er varðar stofnvegi og verður svo fram að þeim tíma sem stefnt er að endurskoðun laga um svæðisbundna flutningsjöfnun eða í lok árs 2025. Auk þess sem vetrarþjónusta á flutningsleiðum út frá Vestfjörðum með styttri þjónustutíma miðað við aðra landshluta Samkeppnisstaða fyrirtækja á Vestfjörðum er því lakari en annarra fyrirtækja í landinu, skerðing á framlögum til fyrirtækja á Vestfjörðum er því hér með mótmælt. Til að koma á móts við aðstæður minni framleiðenda er ekki annað séð en auka verði við fjárveitingar til svæðisbundinnar flutningsjöfnunar. Fjórðungssamband Vestfirðinga leggur því til að við framlagningu frumvarps á Alþingi liggi fyrir greining á stöðu minni framleiðenda og mat á hver væri líkleg fjárhæð sem kæmi til móts við stöðu þeirra. Gerð yrði breyting á frumvarpinu þar sem afmörkuð verði fjárveiting til minni framleiðenda. f.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga Aðalsteinn Óskarsson, sviðsstjóri byggðaþróunar Vestfjarðastofu
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.