Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum
Áform um breytingu á lögum nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-6/2024)
- Umsagnarfrestur hefst · til 26. janúar 2024
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (8. janúar 2026)
Unnið var úr samráði en það leiddi ekki til framlagningar á 154. löggjafarþingi.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Fjallabyggð
Þau áform að auka á skýrleika laganna um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum eru mjög góð. Með þessum breytingum á lögunum er sérstaklega verið að útvíkka hlutverk Ofanflóðasjóðs þannig að heimildir nái til varnarvirkja fyrir atvinnusvæði. Þessi breyting er jákvæð, en að mínu mati þurfa íbúabyggðir alltaf að vera í forgangi þegar kemur að vörnum gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Á Siglufirði eru hitaveitu- og neysluvatnstankar á sk. C-svæði. Þar sem báðir tankar eru ómannaðir , þ.e. ekki starfsfólk að jafnaði að störfum þar sem þeir eru staðsettir, gilda ekki sömu öryggiskröfur um þá og um… Lesa alla
Þau áform að auka á skýrleika laganna um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum eru mjög góð. Með þessum breytingum á lögunum er sérstaklega verið að útvíkka hlutverk Ofanflóðasjóðs þannig að heimildir nái til varnarvirkja fyrir atvinnusvæði. Þessi breyting er jákvæð, en að mínu mati þurfa íbúabyggðir alltaf að vera í forgangi þegar kemur að vörnum gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Á Siglufirði eru hitaveitu- og neysluvatnstankar á sk. C-svæði. Þar sem báðir tankar eru ómannaðir , þ.e. ekki starfsfólk að jafnaði að störfum þar sem þeir eru staðsettir, gilda ekki sömu öryggiskröfur um þá og um atvinnusvæði. En hins vegar eru tankarnir gríðarlega mikilvægir innviðir fyrir byggðarlagið. Ef tjón yrði á tönkunum í skriðum eða snjóflóðum myndi það hafa í för með sér vatnsleysi og mikil neikvæð samfélagsleg áhrif bæði fyrir íbúa og atvinnustarfsemi. Hvað varðar það atriði að festa í sessi að eftirlit með hættu á skipulögðum skíðasvæðum sé á ábyrgð rekstraraðila þeirra, finnst mér skjóta skökku við. Ekki fer vel á að hafa á sömu höndum rekstur skíðasvæða og eftirlit á svæðunum þannig að rekstraraðilum sé gert að hafa eftirlit með sjálfum sér. Betur fer á að eftirlitsskyldur Veðurstofunnar með landfræðilegum og veðurfarslegum aðstæðum með tilliti til hættu f ofanflóðum nái einnig til skíðasvæða líkt og þær gera varðandi þéttbýli. Það er alltaf til góðs að gera regluverkið skýrara. Nái þetta frumvarp fram að ganga ættu heimildir Ofanflóðasjóðs til að kosta varnir og uppkaup á atvinnusvæðum að liggja ljósar fyrir. Sigríður Ingvarsdóttir, bæjarstjóri
- #2Samband íslenskra sveitarfélaga
Góðan dag Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um framlagt áformaskjal. Kv. Flosi H. Sigurðsson
- #3Snorri Sigurðsson
Í viðhengi er umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands.
- #4Stefán Hjaltalín Vilbergsson
Meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.