Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-212/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (EES-innleiðing)

Lagt er til að sett verði sérlög um ETS-kerfið ásamt innleiðingu EES gerða sem breyta tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir vegna herts markmiðs um samdrátt í losun til 2030.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Frumvarpið felur í sér innleiðingu þriggja EES-gerða sem gert er ráð fyrir að verði samþykktar af sameiginlegu EES-nefndinni í desember nk. Í gerðunum eru gerðar breytingar á ETS-kerfinu vegna herts markmiðs ESB um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030. Þær þrjár EES-gerðir sem hér um ræðir eru: 1) Reglugerð (ESB) 2023/957 sem breytir reglugerð ESB 2015/757 til að gera kleift að fella sjóflutningastarfsemi inn í ETS-kerfi og varðandi vöktun, skýrslugjöf og vottun á losun gróðurhúsalofttegunda og losun frá fleiri tegundum skipa, 2) Tilskipun (ESB) 2023/958 hvað varðar framlag til flugstarfsemi til markmiðs ESB um samdrátt í losun sem hefur áhrif á allt hagkerfið og viðeigandi framkvæmd hnattrænnar markaðstengdrar ráðstöfunar (ETS-kerfi í flugi) 3) Tilskipun (ESB) 2023/959 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan ESB og ákvörðun (ESB) 2015/1814 um að koma á fót og starfrækja markaðstöðugleikavarasjóð fyrir kerfi Sambandsins fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda. ESB gerir ráð fyrir 62% samdrætti í losun frá þeim geirum sem falla undir ETS-kerfið. Til að því markmiði verði náð verður losunarheimildum í ETS-kerfinu fækkað hraðar, dregið úr endurgjaldslausri úthlutun losunarheimilda, starfsemi sjóflutninga verður felld undir kerfið og nýtt hliðstætt ETS kerfið verður sett á fót, svokallað ETS2-kerfi sem mun ná utan um losun frá byggingum, vegasamgöngum og smærri iðnaði. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku gerðanna í EES-samninginn mun mun ekki taka gildi fyrr en löggjöf til innleiðingar tekur gildi í Íslandi, Liechtenstein og Noregi. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sjóflutningar verði felldir undir ETS-kerfið frá 1. janúar 2024, ásamt öðrum breytingum sem þurfa að taka gildi um næstu áramót. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að umfjöllun um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið) verði í sérlögum til að auka skýrleika. Auk frumvarps þessa er gert ráð fyrir framlagningu frumvarps um ETS2-kerfið á vorþingi.

S-212/2023· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 31. okt. 2023 – 14. nóv. 2023· 6 umsagnir

Frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (EES-innleiðing)

Lagt er til að sett verði sérlög um ETS-kerfið ásamt innleiðingu EES gerða sem breyta tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir vegna herts markmiðs um samdrátt í losun til 2030.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-212/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 14. nóvember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 543)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-212/2023: Frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (EES-innleiðing) · Alviti