Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-127/2024 · Heilbrigðisráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 varðandi kostnað sveitarfélaga við uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Heilbrigðisráðuneytið áformar að gera breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Með frumvarpinu verður lagt til að fella brott skyldu sveitarfélaga til að greiða 15% stofnkostnað við uppbyggingu hjúkrunarheimila, sbr. 32. gr. laganna. Markmiðið er að lögin liðki fyrir uppbyggingu og tryggi fullnægjandi viðhald á þeim eignum sem nýttar eru undir þessa mikilvægu almannaþjónustu og endurspegli þau sjónarmið sem fram koma í skýrslu sem unnin var í samstarfi fjármála- og efnahagsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis og var gefin út í byrjun árs. Að öðru leyti vísast til umfjöllunar í áformunum.

S-127/2024· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. jún. 2024 – 27. júl. 2024· 2 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007

Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 varðandi kostnað sveitarfélaga við uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-127/2024)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. júlí 2024
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (26. ágúst 2024)

Umsagnir bárust frá Alþýðusambandi Íslands og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu um áformaskjalið og verða þær teknar til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps. Þegar það frumvarp liggur fyrir verður það sett í Samráðsgátt og kostur gefinn á athugasemdum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-127/2024: Áform um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 · Alviti