Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-245/2022 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri, höfuðsjóðir og fylgisjóðir)

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: janúar).

Með frumvarpinu verða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1156 og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/1160 um dreifingu sjóða um sameiginlega fjárfestingu yfir landamæri innleiddar í íslenskan rétt. Markmiðið með gerðunum er að auðvelda dreifingu sjóða yfir landamæri með því að draga úr laga- og reglubundnum hindrunum í tengslum við slíka markaðsetningu, en á sama tíma að gæta að fjárfestavernd. Umræddar hindranir felast í landsbundnum kröfum vegna markaðssetningar, kostnaði og gjöldum hjá stjórnvöldum og kröfum um tilkynningar. Með því að fjarlægja þessar hindranir ætti kostnaður að minnka fyrir markaðssetningu yfir landamæri, sem ætti að flýta fyrir vexti slíkrar dreifingar innan EES og auka samkeppni og fjölga fjárfestingartækifærum fyrir fjárfesta innan EES. Í frumvarpinu verða einnig lagðar til breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, til að þar verði kveðið á um heimildir fyrir því að sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta verði reknir sem höfuðsjóðir og fylgisjóðir, til samræmis við það sem gildir um verðbréfasjóði.

S-245/2022· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. des. 2022 – 6. jan. 2023· 1 umsögn

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri, höfuðsjóðir og fylgisjóðir)

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-245/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. janúar 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 880)
Niðurstöður samráðs (22. febrúar 2023)

Ein umsögn barst. Gildi-lífeyrissjóður leggur til að fjármálaráðuneytið hugi samtímis að því að rýmka fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða að því er varðar fylgisjóði sem fjárfestingarkost skv. 6. og 7. mgr. 36. gr. c. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Ráðuneytið tekur afstöðu til umsagnarinnar í samráðskafla í drögum að lagafrumvarpi. Drög að frumvarpi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-245/2022: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, lögum um verðbréfasjóði og fleiri lögum (sala sjóða yfir landamæri, höfuðsjóðir og fylgisjóðir) · Alviti