Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-148/2023 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um högun í upplýsingatækni í rekstri ríkisins

Til stendur að skilgreina ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins á stefnumótun og fyrirkomulagi upplýsingatæknimála ríkisins og kveða á um heimildir til að mæla fyrir um samræmd viðmið.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: nóvember).

Upplýsingatækni spilar sífellt stærra hlutverk í rekstri ríkisins, jafnt inn á við sem þeim hluta sem felst í að þjónusta almenning. Samhliða hafa væntingar til þess að þjónusta ríkisins sé aðgengileg með þægilegum og hraðvirkum en jafnframt öruggum hætti í gegnum stafrænar lausnir aukist jafnt og þétt. Núverandi fyrirkomulag á rekstri upplýsingatæknimála ríkisins er ekki nægjanlega vel til þess fallið að standa undir þessum væntingum. Það er dreifstýrt, þannig að ríkisaðilar og stofnanir bera bæði rekstrarlega og eftir atvikum stefnumótandi ábyrgð á högun eigin upplýsingatæknirekstrar. Þessu hefur fylgt óhagræði þar sem framkvæmd er ósamræmd og möguleikar vegna stærðarhagkvæmni eru ekki fullnýttir. Til að vinna bug á þessu vandamáli stendur til að leggja fram lagafrumvarp þar sem ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins á stefnumótun og fyrirkomulagi upplýsingatæknimála ríkisins er skilgreind sem og ábyrgð og hlutverk ráðuneyta og stofnana í því fyrirkomulagi. Þar verður jafnframt kveðið á um heimild ráðuneytisins til að setja reglur eða gefa fyrirmæli um grundvallarviðmið í högum upplýsingatækni og gagna. Ætlunin er ekki að færa ábyrgð á rekstri upplýsingatæknikerfanna sjálfra frá ríkisaðilunum, heldur fyrst og fremst að styðja við þær þannig að þær séu betur í stakk búnar til að sinna lögbundnum verkefnum. Ávinningur breytts fyrirkomulags ætti að geta komið fram með ýmsum hætti. Í fyrsta lagi aukast möguleikar til að bæta þjónustu ríkisins þegar dregið er úr sundurleitri og ósamræmdri högun upplýsingatæknimála. Ríkisaðilar fá betri tækifæri til nýsköpunar í sinni starfsemi, með notkun nýrra aðferða og betri verkfæra. Í öðru lagi aukast möguleikar til hag- og samnýtingar gagna milli ríkisaðila, sem stóreykur færni til að taka sem bestar ákvarðanir. Í þriðja lagi er stefnt að því að auka öryggi skilvirkni og hagkvæmni í upplýsingatæknirekstri ríkisaðila, meðal annars með því upplýstari og samræmdari forgangsröðun á fjárfestingu.

S-148/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. ágú. 2023 – 30. ágú. 2023· 5 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um högun í upplýsingatækni í rekstri ríkisins

Til stendur að skilgreina ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins á stefnumótun og fyrirkomulagi upplýsingatæknimála ríkisins og kveða á um heimildir til að mæla fyrir um samræmd viðmið.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-148/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. ágúst 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 141)
Niðurstöður samráðs (26. febrúar 2024)

Fimm athugasemdir bárust. Umsögn frá Öryrkjabandalagi Íslands snerti innleiðingu reglugerðar Evrópusambandandsins um aðgengiskröfur sem stendur til að innleiða með sérstöku lagafrumvarpi. Þá var í skýringum í greinargerð með frumvarpsdrögum fjallað um stöðu aðila m.t.t. ábyrgðar á notkun tiltekinna lausna, sem Persónuvernd kom inn á í sinni umsögn. Aðrar ábendingar kölluðu ekki á sérstök viðbrögð.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.