Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-224/2023 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnbifreiða)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnbifreiða).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 154. þing (áætlað: október).

- Fjölgun vistvænna og sparneytinna bifreiða hefur leitt til þess að skatttekjur ríkissjóðs af ökutækjum og eldsneyti hafa rýrnað umtalsvert og munu halda áfram að lækka á næstu árum verði ekkert að gert. Samhliða þeirri þróun hefur myndast misræmi í núverandi gjaldtökukerfi milli þeirra sem nýta samgönguinnviðina. Annars vegar eru tekjur af gjaldtöku á ökutæki og eldsneyti, einkum vörugjöld, teknar að fjara smám saman út sökum þess að fram hafa komið nýir orkugjafar og sparneytnari ökutæki. Hins vegar hafa stjórnvöld markað þá stefnu að auka notkun hreinna orkugjafa í samgöngum og hraða þannig orkuskiptum, m.a. með verulegum skattastuðningi síðustu ár. Ört stækkandi hópur þeirra sem eiga og reka bifreiðar hefur því verið að greiða afar lítið fyrir afnot sín af samgöngukerfinu. Fyrir vikið stendur Ísland hins vegar flestum þjóðum framar í orkuskiptum í vegasamgöngum. - Á sama tíma er fyrir hendi viðvarandi þörf fyrir, og áform um, að byggja upp og viðhalda vegakerfinu. Sú þörf mun síst minnka í fyrirsjáanlegri framtíð með vaxandi íbúafjölda, grósku í ferðaþjónustu og tilheyrandi umferð. Við þessari þróun þarf að bregðast og innleiða nýtt einfaldara, gagnsærra og sjálfbærara fyrirkomulag gjaldtöku til framtíðar. Þannig verður tryggð betri samsvörun á milli slíkra tekna og áframhaldandi uppbyggingar og viðhalds vegakerfisins. - Lagt er til að fyrsta skrefið verði stigið í lögfestingu á nýju tekjuöflunarkerfi af ökutækjum og eldsneyti með því að taka upp kílómetragjald frá og með 1. janúar 2024 vegna notkunar rafmagns- og vetnisbifreiða annars vegar og tengiltvinnbíla hins vegar á vegakerfinu. Til einföldunar er lagt upp með að lögin verði í upphafi einskorðuð við fólks- og sendibifreiðar. - Gert er ráð fyrir að meginreglan verði sú að skráðir eigendur gjaldskyldra bifreiða verði gjaldskyldir, þó með ákveðnum frávikum. - Þá er gert ráð fyrir að fjárhæð kílómetragjalds vegna aksturs rafmagns- og vetnisbifreiðar verði 6 kr. á hvern kílómetra og 2 kr vegna tengiltvinnbifreiða. - Lagt er upp með að ríkisskattstjóri geri áætlun um akstur á hverju tímabili sem eigandi/umráðamaður geti breytt í smáforriti eða á vefsetrinu Ísland.is, þannig að áætlun og greiðsla fari fram með svipuðum hætti og gjöld fyrir þjónustu veitu- og orkufyrirtækja vegna sölu á heitu vatni og rafmagni til heimila og fyrirtækja. - Að lokum fari fram álagning/uppgjör og innheimta út frá skráningu gjaldskylds aðila eða faggiltrar skoðunarstofu á á stöðu akstursmælis þar sem ríkisskattstjóri leggur leggur kílómetragjald á gjaldskyldan aðila vegna þeirra liðnu mánaða sem ekki hefur verið lagt á.

S-224/2023· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. nóv. 2023 – 10. nóv. 2023· 13 umsagnir

Frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnbifreiða)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnbifreiða).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-224/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. nóvember 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (154. þing, mál 507)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. febrúar 2024)

Sjá niðurstöðuskjal.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #1Guðríður Björk Magnúsdóttir

    Þetta er galinn landsbyggðaskattur, landsbyggðin þarf að sækja margvíslega þjónustu í nærliggjandi þettbýli og svo í höfuðborgina þar sem ýmis þjónusta er ekki í boði í nærbyggðum. Það væri þá nær að hafa x hámark á ári eins og var með dísel bílana forðum daga og hafa væg notkunargjöl á ýmsum vegum, brúm, jarðgöngum, það kostar að nota ferjur vegagerðarinnar og af hverju er það? En 6 kr á km er helming of hátt gjald meðan tengitvinnbílar geta notað rafmagn í öllum sínum keyrslum í þettbýliskjörnum landsins og hlaðið yfir nótt og borga bara 2kr/km

  • #2Björn Sigtryggsson

    Það er mjög eðlilegt að greiða km.gjald af rafmagnsbílum een það þarf að vera tryggt að það fari í viðhald vega en hverfi ekki í ríkishítina.

  • #3Jón Örn Loðmfjörð Arnarson

    Ekki er getið um tvíorku farartæki sem nota metan og bensín. Farartæki sem takmarka mengun og brenna ekki gjaldeyri. Í upphafi krafðist EB um að metan bifreiðir skuli hafa 1/3 gas/bensín og nú 2/3 gas/bensín, er skýldi nýta gas fyrst. Hver sem orkan er sem knýr farartækið, þá er álag á vegakerfið einungis háð þunga farartækisins.

  • #4Grétar H Guðmundsson
    Reykjavík 10.nóvember 2023 Berist til Fjármála- og efnahagsráðuneytis. Málefni: Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnifreiða). Landssamband vörubifreiðastjóra ( kt. 420269-0569) gerir eftirfarandi athugasemdi við frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnifreiða). Frumvarpið þarf að taka til allra orkugjafa sem ekki eru að greiða gjöld til vegamála (veganotkunar), t.d. metan bílar. Í frumvarpið vantar að… Lesa alla

    Reykjavík 10.nóvember 2023 Berist til Fjármála- og efnahagsráðuneytis. Málefni: Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnifreiða). Landssamband vörubifreiðastjóra ( kt. 420269-0569) gerir eftirfarandi athugasemdi við frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnifreiða). Frumvarpið þarf að taka til allra orkugjafa sem ekki eru að greiða gjöld til vegamála (veganotkunar), t.d. metan bílar. Í frumvarpið vantar að stærri ökutæki sem eru rafknúin (t.d. rútur, vörubílar) greiði kílómetragjald til samræmis við olíugjald, en rafknúin ökutæki hafa heimild til meiri þyngdar á vegum en þau ökutæki sem nota jarðefnaeldsneyti. F.h.Landssambands vörubifreiðastjóra Grétar H. Guðmundsson Gsm: 892-5642 ghgsel@gmail.com Formaður LV. Þessi umsögn er send í nafni Landssambands vörubifreiðastjóra kt. 420269-0569

  • #5Harpa Þórunn Pétursdóttir

    Hjálögð er umsögn Orku náttúrunnar við mál nr. 224/2023.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-224/2023: Frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða (hreinorku- og tengiltvinnbifreiða) · Alviti